Fréttablaðið - 07.04.2011, Page 54
7. apríl 2011 FIMMTUDAGUR42
sport@frettabladid.is
GUNNAR EINARSSON þekkir það manna best að vera að fara að spila oddaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeist-
aratitilinn. Gunnar hefur spilað sex slíka oddaleiki á ferlinum, þar af þann fyrsta fyrir sextán árum. Keflavík hefur reyndar
aðeins unnið tvo af þessum sex leikjum en þar á meðal er sá síðasti sem var á móti ÍR fyrir þremur árum. Leikur kvöldsins
verður jaframt 17. oddaleikur Gunnars í úrslitakeppni en hann hefur verið í sigurliði í tíu þeirra.
KÖRFUBOLTI KR og Keflavík mæt-
ast í Vesturbænum í kvöld í
hreinum úrslitaleik um sæti í
úrslitaeinvíginu um Íslands-
meistaratitilinn. KR-ingar unnu
tvo fyrstu leiki sína og voru um
það bil að sópa öðru Reykjanes-
bæjarliðinu í röð út úr keppni
en Keflvíkingum tókst það sem
aðeins einu liði hefur tekist áður,
þeim sjálfum fyrir þremur árum,
að koma einvígi í oddaleik eftir
að hafa lent 0-2 undir.
Magnús Þór Gunnarsson var
langt frá sínu besta í tveimur
fyrstu leikjunum þar sem hann
var bara með 7,0 stig að meðaltali
og hitti aðeins úr 18,2 prósentum
skota sinna. Framlag Magnús-
ar í þessum tveimur tapleikjum
var aðeins upp á 5,0 framlagsstig
í leik og hann fann ekki fjölina
sína eins og fleiri leikmenn í lið-
inu. Magnús hafði þó ekki glat-
að sjálfstrausti sínu eftir tap á
heimavelli í öðrum leiknum.
„Við erum vissulega 2-0 undir
en þetta snýst um að vera fyrst-
ur að vinna þrjá leiki. Þetta er
ekkert flókið, við þurfum bara
að byrja á því að vinna einn úti-
leik,“ sagði Magnús Þór Gunn-
arsson í viðtali við Fréttablað-
ið eftir leik tvö. „Við þekkjum
þessa stöðu og það verður gaman
að sjá hvað gerist. Þetta er mikil
áskorun fyrir okkur að sjá hvort
við getum þetta eða ekki,“ sagði
Magnús enn fremur og það er
ljóst að hann tók þessa áskorun
persónulega.
Magnús skoraði 21 stig í leik
þrjú og var síðan með 29 stig í
síðasta leik. Hann hefur því skor-
að 25,4 stig að meðaltali í und-
anförnum tveimur leikjum þar
sem hann hefur sett niður 51,7
prósent skota sinna og státar af
framlagi upp á 24,5 framlagsstig
í leik.
Magnús hefur því bætt sig um
19,5 framlagsstig í leik, um 18
stig í leik og um 33 prósent í skot-
nýtingu frá því í fyrstu tveim-
ur leikjunum. Magnús náði því
að hækka framlag sitt um 390
prósent og það vefst ekki fyrir
neinum að frammistaða hans á
mikinn þátt í upprisu Keflavík-
urliðsins.
Gunnar Einarsson er annar
leikmaður sem hækkaði sig gríð-
arlega en framlag hans fór úr 1,0
upp í 11,5 eða upp um 1.150 pró-
sent. Gunnar var með 3,0 stig að
meðaltali í fyrstu tveimur leikjun-
um en hefur skoraði 12,0 stig í leik
í undanförnum tveimur leikjum.
Magnús er einn af þremur
skyttum Keflavíkurliðsins sem
fundu fjölina sína á ný og eiga
mikinn þátt í því að Keflavík-
urliðið skoraði 18 fleiri þriggja
stiga körfur í leikjum 3 og 4 en
í fyrstu tveimur leikjunum þar
sem KR-liðið fékk 27 fleiri stig
en þeir úr þriggja stiga skotum.
Þeir Magnús, Gunnar Einars-
son og Hörður Axel Vilhjálms-
son hittu saman ekki nema úr
fjórum af 27 þriggja stiga skot-
um sínum í fyrstu tveimur leikj-
unum en hafa nú skorað saman 19
þrista í sigurleikjunum tveimur.
Nýting þeirra hefur því hækkað
um 30 prósent og það hefur svo
sannarlega munað um þessi 57
stig sem þeir félagar hafa skorað
fyrir utan þriggja stiga línuna í
undanförnum tveimur leikjum.
ooj@frettabladid.is
MAGGI „GUN“ FANN
SKOTIN Í BYSSUNA
Eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum bætti Magnús Þór Gunnarsson framlag sitt
um 390 prósent og hefur átt stóran þátt í því að Keflvíkingar hafa risið upp frá
dauðum og mæta KR í oddaleik í DHL-höllinni klukkan 19.15 í kvöld.
EINN AF SJÖ Magnús Þór Gunnarsson
skoraði 7 þrista í leik fjögur.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Safamýri 61
108 Reykjavík
Rúmgóð hæð í Safamýrinni
Stærð: 178,5 fm
Fjöldi herbergja: 4-7
Byggingarár: 1963
Fasteignamat: 30.100.000
Bílskúr: Já
Verð: 40.900.000
RE/MAX Senter og Þóra kynna glæsilega sérhæð með bílskúr í Safamýrinni.
Íbúðin er með 3-4 svefnherbergjum, tvö hafa verið sameinuð í eitt, bjart eldhús og stórar stofur.
Baðherbergi á svefnherbergisgangi auk gestasnyrtingar í forstofu. Eigninni tilheyrir stór bílskúr,
sérþvottahús og geymsla í kjallara.
Húsð er allt í mjög góðu ástandi, málað að utan 2010.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra í s. 777-2882 eða thora@remax.is
Senter
Kristján Ólafsson
Lögg. fasteignasali
Þóra Birgisdóttir
Sölufulltrúi
kol@remax.is
thora@remax.is
Opið
Hús
Opið hús i dag kl. 18-18.30
RE/MAX Senter - Skútuvogur 11a - 101 Reykjavík - Sími: 4144700 - www.remax.is
0
7772882
3ja stiga skotnýtingin
Leikur eitt og tvö
Magnús Þór 18 prósent (2/11)
Hörður Axel 18 prósent (2/11)
Gunnar Einarsson 0 prósent (0/5)
Allt Keflavíkurliðið 23 prósent (11/47)
Leikur þrjú og fjögur
Magnús Þór 50 prósent (11/22)
Hörður Axel 44 prósent (4/9)
Gunnar Einarsson 36 prósent (4/11)
Allt Keflavíkurliðið 45 prósent (29/65)
Breytingin
Gunnar Einarsson +44 prósent
Magnús Þór Gunnarsson +31 prósent
Hörður Axel Vilhjálmsson +18 prósent
Allt Keflavíkurliðið + 21 prósent
Mikill munur á Magga
Leikur eitt og tvö
Stig í leik 7,0
Skotnýting 18,2 prósent (4/22)
3ja stiga körfur í leik 1,0
Framlag í leik 5,0
Leikur þrjú og fjögur
Stig í leik 25,0
Skotnýting 51,7 prósent (15/29)
3ja stiga körfur í leik 5,5
Framlag í leik 24,5
KÖRFUBOLTI Fimm Keflvíkingar og
einn KR-ingur, þá ÍR-ingur, voru
með fyrir þremur árum þegar
Keflavík náði eitt liða í sögu
úrslitakeppninnar að koma til
baka eftir að hafa lent 0-2 undir.
Gunnar Einarsson (23 stig),
Þröstur Leó Jóhannsson (5),
Jón Norðdal Hafsteinsson (12),
Magnús Þór Gunnarsson (10) og
Sigurður Gunnar Þorsteinsson (9)
skoruðu þá saman 59 stig í 93-73
sigri í oddaleiknum en Hreggvið-
ur Magnússon lék þá með ÍR og
skoraði 5 stig. - óój
Endurkoma Keflvíkinga:
Sex með fyrir
þremur árum
HREGGVIÐUR MAGNÚSSON Var í liði ÍR
sem tapaði fyrir Keflavík í undanúrslit-
unum 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI KR-ingar verða í
kvöld í sömu stöðu og þeir voru
í í fyrra þegar þeir mættu Snæ-
felli í oddaleik í DHL-höllinni og
í boði var sæti í úrslitaeinvíginu.
KR tapaði leiknum 83-93 og
Snæfell fór síðan alla leið og
varð Íslandsmeistari. Brynjar
Þór Björnsson, Fannar Ólafs-
son, Skarphéðinn Freyr Ingason,
Finnur Atli Magnússon, Ólafur
Már Ægisson, Jón Orri Krist-
jánsson og Pavel Ermolinskij fá
allir annað tækifæri í kvöld.
- óój
Oddaleikur í DHL-höllinni:
KR-ingar í sömu
stöðu og í fyrra
HANDBOLTI Þórir Hergeirsson, þjálf-
ari norska kvennalandsliðsins, er
einn af þremur þjálfurum í kvenna-
boltanum sem koma til greina sem
þjálfari ársins hjá Alþjóðahand-
knattleikssambandinu.
Þórir gerði eins og kunnugt er
norska landsliðið að Evrópumeist-
urum í Danmörku í desember en
það var fyrsti stóri titillinn sem
liðið vinnur undir hans stjórn.
Aðrir sem koma til greina sem
besti þjálfarinn í heimi í kvenna-
boltanum eru þeir Oliver Krumb-
holz, landsliðsþjálfari Frakka,
og Jan Pytlick, landsliðsþjálfari
Dana. Claude Onesta, landsliðs-
þjálfari heims-, Evrópu- og Ólymp-
íumeistara Frakka, Ulrik Wilbek,
landsliðsþjálfari Dana, og Valero
Lopez Rivera, landsliðsþjálfari
Spánverja eru tilnefndir í karla-
flokki.
Það er hægt að taka þátt í kosn-
ingunni á netinu og þeir sem vilja
gefa Þóri atkvæði sitt geta gert það
inni á heimasíðu Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins. - óój
Tilnefningar Alþjóðahandknattleikssambandsins:
Verður Þórir þjálfari ársins?
ÞÓRIR HERGEIRSSON Gerði Noreg að
Evrópumeisturum. MYND/AFP
HANDBOLTI Mikkel Hansen og
Steinar Ege voru mennirnir á bak
við nauman 27-25 sigur AG Kaup-
mannahöfn á Tvis Holstebro í
gær í fyrsta leik í úrslitakeppni
dönsku úrvalsdeildarinnar.
Ege varði víti á lokasekúndun-
um áður en Hansen tryggði liðinu
sigurinn með lokamarki leiks-
ins. Snorri Steinn Guðjónsson
skoraði 3 mörk fyrir AG og Arnór
Atlason var með 2 mörk. Hansen
var markahæstur með 8 mörk.
Úrslitakeppni dönsku deildar-
innar er riðlakeppni þar sem átta
efstu liðunum er skipt niður í tvo
riðla. AG vann deildarmeistara-
titilinn en Team Tvis Holstebro
var áttunda og síðasta liðið inn í
úrslitakeppnina. Hin liðin í riðl-
inum eru lið AaB Håndbold og
Nordsjælland Håndbold. - óój
AG í úrslitakeppninni:
Sluppu með
skrekkinn í gær
SNORRI STENN Skoraði þrjú mörk fyrir
AG-liðið í gær. MYND/HEIMASÍÐA AG
FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson
er eftirsóttur þessa dagana
eftir frábæra frammistöðu sína
með AZ Alkmaar í hollensku
úrvalsdeildinni.
Meðal þeirra sem hafa mikinn
áhuga á landsliðsframherjanum
samkvæmt fréttum
erlendra miðla eru ensku
úrvalsdeildarfélögin Newcastle,
Everton, Sunderland, Bolton og
West Ham. Kolbeinn hefur skorað
11 mörk í 28 deildarleikjum á
tímabilinu en hann hefur aðeins
byrjað inn á í 15 leikjum. - óój
Kolbeinn Sigþórsson:
Mikill áhugi í
Englandi
KOLBEINN SIGÞÓRSSON Hefur skorað 14
mörk í öllum keppnum. MYND/AP
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010