Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
Sími: 512 5000
KJARAMÁL Gengið verður frá kjara-
samningum Alþýðusambandsins
(ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins
(SA) í dag. Hvort samningarn-
ir verða til nokkurra vikna eða
þriggja ára ræðst af því hvort
samkomulag næst í dag við ríkis-
stjórnina um sjávarútvegsmál,
samgönguframkvæmdir og fleiri
mál, samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Eftir því sem blaðið kemst næst
hljóðar fyrirkomulag launahækk-
ana í þriggja ára kjarasamningi
upp á 50.000 króna eingreiðslu
strax og tíu til ellefu prósenta
launahækkun í áföngum á þriggja
ára samningstíma, þar af fjögur
prósent 1. júní næstkomandi.
Ef ekki næst samkomulag við
stjórnvöld í dag verða að öllum lík-
indum gerðir skammtímasamning-
ar til 15. júní. Einu launabreytingar
verða þá 50.000 króna eingreiðsla.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir ekkert annað liggja fyrir en
að í dag verði gerðir samningar.
„Það er klárt að kjarasamningar
verða gerðir fyrir lok dags, hvort
sem þeir verða til skemmri eða
lengri tíma,“ segir Gylfi.
Samningamenn funduðu í gær
fram á kvöld og var að sögn ágæt-
ur andi í viðræðunum. Leiðtogar
stjórnarflokkanna funduðu með
fulltrúum í gærmorgun og segist
Gylfi þar hafa fengið þau svör sem
hann beið eftir. „Okkur fannst við
fá alvöru svör, en nú viljum við fá
að sjá þau í texta,“ segir Gylfi.
Vilmundur Jósefsson, formaður
SA, er hóflega bjartsýnn á að sam-
komulag um langtímasamninga
náist í dag. Hann segir fundinn
með fulltrúum ríkisstjórnarinnar
þó ekki hafa skilað miklum árangri
og enn þurfi að semja um fjölmörg
atriði. Ríkisstjórnin sé enn ekki
reiðubúin að gera nóg varðandi
samgönguframkvæmdir.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra kom á fund samn-
ingamanna í Karphúsinu seinni-
partinn í gær og ræddi áform um
orkuvinnslu og orkufrekan iðnað.
Ráðherra benti mönnum þar á
ársfund Landsvirkjunar í dag og
að þar yrðu tíðindi af framtíðar-
uppbyggingu í orkumálum.
„Þetta veitti okkur meiri bjart-
sýni. Ef fleiri mál gengju svona
væri hægt að líta bjartari augum
fram á veginn,“ segir Vilmundur.
Miklar áhyggjur eru meðal SA af
þeirri óvissu sem ríkir nú um láns-
hæfismat Íslands og þar af leið-
andi forsendur fyrir fjármögnun
stórframkvæmda og annarra fjár-
festinga.
„Við erum að leita að lausnum
sem hægt er að byggja á en í
mörgum málum er einfaldlega ekki
hægt að finna málamiðlanir,“ segir
Vilmundur. „Málin verða kláruð á
annan hvorn veginn. Við getum
ekki verið að velkjast með þetta
lengur.“ - sv
IÐNAÐUR Stefnt er að því að tvö-
falda raforkuframleiðslu Lands-
virkjunar á næstu fimmtán árum
með virkjanaframkvæmdum upp
á tæpa fjörutíu milljarða króna
á ári. Við það mun framleiðsla
fara úr átján teravattstundum á
ári í 30 til 35. Reiknað er með að
framkvæmdirnar skapi tíu þús-
und störf. Ekki er stefnt að því að
virkja á umdeildum svæðum.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir langtíma-
áætlun fyrirtækisins leiða af sér
fimmtán ára hagvaxtarskeið sem
ljúki árið 2025. - jab / sjá síðu 16
Föstudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
15. apríl 2011
88. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Hugleikur frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir Árna Hjartarson
í kvöld. Verkið nefnist Einkamál.is og verður sýnt í húsnæði
leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur fjöl-
skyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum
vanda. Nánari upplýsingar er að finna á www.hugleikur.is
Þ etta er réttur sem ég lærði að búa til af meðleigjanda mínum á Ítalíu þegar ég var þar í námi. Allir Ítal-ir kunna hann,“ segir Hjördís Ýr Ólafsdóttir iðnhönnuður, sem er matgæðingur vikunnar. Hjördís Ýr var við nám í tísku-borginni Mílanó og leigði þar með ítalskri stelpu sem hafði sérstakt yndi af því að ganga nakin um íbúð-ina. „Það var ekki síst þegar verð-andi eiginmaður minn var í heim-sókn að hún ákvað að labba um allsber,“ segir Hjördís Ýr hlæjandi.Rétturinn frá nakta kokkinum kemur upphaflega frá Sikiley. Uppistaðan er eggaldin en í hann fara líka tómatar, basil, mozz-arella og parmesanostur. „Íslend-ingar eru ekki sérstaklþ í ð
Iðnhönnuðurinn Hjördís Ýr kynntist einfaldleika ítalskrar matargerðar við nám í Mílanó.
4 eggaldin, afhýdd og skorin í sneiðar ólífuolía
3 hvítlauksrif, söxuð500 g tómatar, afhýddir, kjarnhreinsaðir og skornir í teninga.10 basil-blöð
6 msk. ólívuolía200 g mozzarella-ostur50 g parmesan-ostursalt og pipar
Afhýðið eggaldinið og skerið í sneiðar. Setjið í stóra skól og hellið ólífuolíu yfir ásamt svolitlu salti Lá
laukinn á
pönnu. Bætið tómötum, helmingnum af basil-blöðunum og svolitlu af salti og pipar við. Látiðmalla við lá
gullinbrúnar á báðum hliðum. Setjið meiri olíu ef þess þarf. Setjið eggaldin-sneiðarnar á eldhúspappír og þerrið aðeins.
Setjið svolítið af tómatsósunni í eldfast mót og raðið eggaldinsneiðunum yfir. Setjið svolítið af parmesanosti og að lokum mozzarella. Haldið
MELANZANE ALLA PARMIGIANA/EGGALDIN MEÐ PARMAOSTI
Lærði af
nöktum
kokki
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KL. 11.30
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 15. apríl 2011
Hrefna Björk
Sverrisdótti
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Var hrædd við ketti
Anna Kristine Magnúsdóttir
er nýr formaður
Kattavinafélagsins.
tímamót 24
www.forlagid.is
Alvöru netbókabúð
Ekkert sendingar-
gjald út apríl!
AUKASÝNINGAR!
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX 568 8000 | borgarleikhus.is
Algjört
súkkulæði!
Egill Skallagrímsson
kvenhetja
Dansfélagið Krummi sér
Egil Skallagrímsson fyrir
sér sem konu.
allt 2
ÉLJAGANGUR Í dag v erða suð-
vestan 8-15 m/s, en 10-18 úti fyrir
S- og SA-ströndinni. Lægir í kvöld.
Víða él en úrkomulítið NA- og A-til.
Hiti 0-5 stig.
VEÐUR 4
2
4
3
3
SAMFÉLAGSVERÐLAUNAHAFAR 2011 Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í gær. Jenna Jensdóttir rithöfundur hlaut
heiðursverðlaun Samfélagsverðlaunanna, Jón Stefánsson tónlistarmaður fékk verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar og Ásmundur Þór Kristmundsson
var valinn Hvunndagshetja. Samfélagsverðlaunin sjálf komu í hlut barnaheimilisins í Reykjadal og verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar gengu til
Listasmiðjunnar Litrófs í Fella- og Hólakirkju. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti verðlaunin í Þjóðmenningarhúsinu. Sjá síðu 10 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ársfundur Landsvirkjunar:
Tvöfalt meiri
orka árið 2025
Úrslitastundin í dag
Skrifað verður undir kjarasamninga í dag. Ef ekki næst samkomulag við ríkið um
sjávarútvegs- og samgöngumál verða samningar gerðir til 15. júní. Rætt um 50.000
króna eingreiðslu og 10 til 11 prósenta hækkun samtals ef semst til þriggja ára.
Málin verða kláruð á annan hvorn
veginn. Við getum ekki verið að
velkjast með þetta lengur.
VILMUNDUR JÓSEFSSON
FORMAÐUR SA
Stjarnan jafnaði metin
Stjörnumenn sáu til
þess að það er enn
spenna í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn.
sport 42