Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 18
18 15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í gær. Mark-miðið með því að veita Samfélagsverðlaun hefur frá upphafi verið að vekja athygli á góðum verkum sem unnin eru í samfélaginu, oft í svo miklu hljóði að fáir vita af þeim aðrir en þeir sem njóta. Með veitingu Samfélagsverðlauna er kastljósinu beint að þeim samborgurum okkar sem leggja meira á sig en þorri fólks til þess að láta gott af sér leiða. Sumt af þessu fólki hefur fundið sér far- veg í starfi þar sem framlag þess er heldur meira en til er ætlast eða í frumkvöðlastarfi þar sem allt hefur verið lagt í sölurnar til að sjá hugsjónirnar verða að veruleika. Aðrir eru virkir í félaga- samtökum þar sem þeir láta gott af sér leiða og enn aðrir vinna góðverk sín einir og sér. Fyrirkomulag Samfélagsverð- launanna hefur verið hið sama frá upphafi. Í ársbyrjun er lýst eftir tilnefningum til Samfélags- verðlauna frá lesendum. Með því er efnt til samtals við lesendur blaðsins og þeir beðnir að nefna til sögu einstaklinga og félaga- samtök sem þá langar að vekja athygli á, ekki síst vegna þess að starf þeirra er til eftirbreytni fyrir aðra. Lesendur bregðast jafnan vel við og senda inn fjölda tilnefninga. Svo var einnig í ár. Þegar tilnefningafrestur er úti tekur dómnefnd við. Hún velur úr tilnefningum og útnefnir þrjá í hverjum hinna fjögurra flokka sem Samfélagsverðlaunin eru veitt í, Hvunndagshetju, Frá kynslóð til kynslóðar, Til atlögu gegn fordómum og Samfélagsverðlaununum sjálfum. Auk þess eru veitt heiðursverðlaun fyrir ævistarf. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins komu að þessu sinni í hlut Reykjadals í Mosfellsdal. Í Reykjadal starfar drífandi hópur ungs metnaðarfulls fólks. Það kom sér vel þegar útlit var fyrir að leggja þyrfti vetrardvöl barna í Reykjadal af vegna fjárskorts. Þá efndi starfsfólkið til áheitagöngu og tókst að safna fé til að halda starfseminni gangandi í vetur. Ásmundur Þór Kristmundsson var valin Hvunndagshetja vegna þess afreks síns að bjarga erlendum ferðamönnum sem höfðu fest bíl sinn í Krossá og hætta með því lífi sínu. Jón Stefánsson hlýtur í ár verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Í kórstarfi sínu í Langholtskirkju hefur hann opnað heim tónlistarinnar fyrir fjölda barna og sum þeirra hafa svo lagt tónlistina fyrir sig síðar. Í flokknum Til atlögu gegn fordómum komu verðlaunin í hlut Listasmiðjunnar Litrófs sem starfar í Fella- og Hólakirkju. Í lista- smiðjunni er stuðlað að vináttu og sterkari tengslum milli barna af erlendum uppruna og íslenskra barna. Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins féllu Jennu Jensdóttur, kennara og rithöfundi, í skaut. Hún átti langan og far- sælan kennsluferil auk þess að rita á þriðja tug barnabóka í félagi við mann sinn, Hreiðar heitinn Stefánsson. Verðlaunahafarnir eru fulltrúar þeirra fjölmörgu sem leggja lóð sem um munar á vogarskálar þess að búa hér til betra samfélag. Það framlag ber að þakka. HALLDÓR Höskuldur Stjórnmálamenn eiga það til að segja eitt í dag en annað á morgun. Á þriðjudag sagði Höskuldur Þórhalls- son í þingræðu: „Væri þá ekki réttast, í ljósi þess að ég treysti ekki ríkisstjórninni, að hér kæmi fram vantraustsyfirlýsing … Hinn eðlilegi farvegur slíkrar tillögu væri að hún kæmi frá formanni stærsta stjórnarandstöðuflokksins á Alþingi og ég fagna því að hún er nú komin fram. Hún verður að koma úr þeirri átt til að mark sé á henni takandi.“ Daginn eftir Þegar Höskuldur greiddi atkvæði um tillöguna, sem sannarlega kom frá for- manni stærsta stjórnarandstöðuflokks- ins, var komið annað hljóð í strokkinn. Nú var grunnur hennar veikur þar sem það var Sjálfstæðisflokkurinn sem lagði hana fram en hann hafði, að meginstofni til, fylgt ríkisstjórn- inni að málum í Icesave. Og Höskuldur hélt áfram: „Hún er líka að mínu mati með öllu ótímabær, vegna þess að ef menn hefðu beðið og andað með nefinu, þá tel ég að það hefði verið hægt að leggja fram hér síðar á þessu þingi vantrauststillögu sem hefði getað leitt það af sér að ríkisstjórnin hefði farið frá völdum.“ Að gefnu tilefni „Nenntu ekki að sitja undir umræð- unum,“ var fyrirsögn fréttar hér í blaðinu í gær. Var þar vísað til þess að enginn sextán þingmanna Sjálf- stæðisflokksins var í þingsalnum þegar í það minnsta einn þingmaður hóf mál sitt í umræðunum um van- trauststillöguna. Svo því sé til haga haldið var Bjarni Benediktsson og hans fólk víst að hlusta, bara ekki í þingsalnum heldur í matsal Alþingis. bjorn@frettabladid.is Langt er síðan við fengum tækifæri til að sprengja vinstri stjórn, það verður skemmtilegt,“ sagði við mig gamalreyndur sjálfstæðismaður, þegar Jóhanna og Stein- grímur mynduðu ríkisstjórnina 2009. Áformin mjakast, þrír þingmanna VG hafa yfirgefið stjórnina. Sumir vegna ESB-aðildarumsóknar, sem VG samþykkti með ríkisstjórnarsáttmálanum, um leið og flokkurinn áskildi sér rétt til að vera á móti þegar til þjóðaratkvæðagreiðslu kæmi. Önnur í þremenningahópnum bera við flokksaga og kalla foringjaræði. En er slíkt annað en skuldbinding við gerða samninga, sem hlýtur að vera meginregla flokka sem vilja axla ábyrgð í samsteypuríkisstjórnum? Ef allir færu alltaf eftir eigin geðþótta (sem sumir kalla samvisku), er lítið að marka kosningar milli flokka og samsteypustjórnir virkuðu ekki. En skyldu félagsmenn VG vera sáttir? Ætla þeir að horfa á nokkra þingmenn eyðileggja VG sem stjórntækan flokk er axlar ábyrgð á erfiðum tímum? Vilja þeir að flokkurinn sé dæmdur frá mögu- legum áhrifum og ríkisstjórnarþátttöku á komandi árum? Eru þeir ekki eins og við flest í Samfylkingunni, bærilega sáttir við árangur sem náðst hefur í þröngri stöðu. Árangur sem þau Jóhanna og Steingrímur, sem bæði standa sig mjög vel, gerðu grein fyrir í vantraustsumræðunni: Jöfnuður hefur aukist, efnahags- og kjaramál á réttri leið, margvís leg málefni kvenna lagfærð, réttarbætur komist á fyrir innflytjendur, stjórnkerfisumbætur og lýðræðismál komin á rekspöl, rammaáætlun um nýtingu orku- auðlinda og langþráðar umbætur á fisk- veiðistjórnunarkerfinu í sjónmáli. Telja þingmennirnir þrír að betri árang- ur náist í baráttumálum VG í öðru ríkis- stjórnarsamstarfi? Eða er þeim kannske alveg sama? Aðalatriðið sé að raddir þeirra heyrist, þau láti ekki kúga sig til mála- miðlana? Allir sjá hvernig ritstjóri Morgunblaðsins hefur tekið stjórnarandstöðuna í VG uppá sína arma, hampar henni sífellt á síðum blaðsins. Með þeim árangri að þingmenn- irnir þrír telja sig í fararbroddi mikils- verðrar þjóðmálahreyfingar gegn ríkis- stjórninni. Við þurfum, bæði í Samfylkingu og VG að fara yfir árangur ríkisstjórnarinnar og meta hvort þau áhrif sem við höfum þar, réttlæti málamiðlanir sem báðir flokkar hafa gert. Ég er ekki í vafa um, að niður- staðan verður sú að þessu samstarfi beri að halda áfram. Þó ekki sé allt eins og við helst kysum, er árangurinn umtalsverður og síst ástæða að láta andstæðinga ríkisstjórnar- innar ráða ferðinni. Samsteypustjórnir krefjast málamiðlana Stjórnmál Margrét S. Björnsdóttir formaður framkvæmda- stjórnar SamfylkingarinnarÖflugur greiðendavefur með hagnýtum upplýsingum s.s. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins: Framlag til betra samfélags SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.