Fréttablaðið - 15.04.2011, Side 2
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR2
FRÉTTABLAÐIÐ, WASHINGTON Þrátt fyrir að það sjái til
lands í kreppu fjármála- og efnahagslífs stendur heim-
urinn frammi fyrir nýjum áhættuþáttum og erfiðum
breytingum, segir Robert Zoellick, forseti Alþjóða-
bankans.
Í opnunarræðu sinni á vorfundi bankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gær benti Zoellick á hátt
og sveiflukennt matvælaverð, hátt eldsneytisverð með
hliðaráhrifum til hækkunar á matvælaverði, pólitísk-
an óstöðugleika í Miðausturlöndum og Norður-Arfíku.
Eins nefndi hann upplausnarástandið á Fílabeins-
ströndinni, endurteknar náttúruhamfarir, hækkandi
verðbólgu í nýmarkaðsríkjum með hættu á ofhitnun
og skuldavanda ríkja Evrópu.
Zoellick lagði sérstaka áherslu á þann vanda sem
hækkandi matvælaverð ylli og sagði þjóðir heims
verða að vera samstíga í að taka á þeim vanda, hvort
sem það tæki hálft ár, heilt eða tvö.
„Matvælaverð er 36 prósentum yfir því sem var
fyrir ári og stendur nærri sveiflunni árið 2008,“ benti
Zoellick á og kvað 44 milljónir manna hafa orðið
fátækt að bráð síðan í júní í fyrra. „Ef vísitala mat-
vælaverðs hækkar um 10 prósent í viðbót teljum við
að 10 milljónir manna til viðbótar verði sárri fátækt
að bráð, en þá hefur fólk ekki nema 1,25 dali til að lifa
af á dag,“ sagði Zoellick og fagnaði því sérstaklega að
Frakkar geri matvæli að höfuðmálefni 20 helstu iðn-
ríkja (G20) í formennskutíð sinni í þeim hópi. - óká
Hátt og sveiflukennt matvælaverð er það sem helst ógnar fátækum svæðum:
Matvæli eru 36% dýrari en í fyrra
SPURNINGATÍMI Robert Zoellick bregst við spurningum blaða-
manna í Washington í gær. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
Hollt og gott veganesti
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Þráinn, eruð þið þá loksins að
verða róleg?
„Við erum sallaróleg – og eigum
von á fjölgun. Ég veit ekki betur en
að menntamálaráðherra sé komin
á steypirinn þannig að það kemur
alltaf maður í manns stað.“
Ásmundur Einar Daðason, sem kenndur
var við „órólegu deildina“ í Vinstri
grænum, er genginn úr þingflokknum.
Þráinn Bertelsson er þar enn.
LÖGREGLUMÁL Tveimur mönnum
sem setið hafa í gæsluvarðhaldi,
grunaðir um að hafa beitt sjö ára
dreng kynferðislegu ofbeldi, hefur
verið sleppt. Gæsluvarðhaldið rann
út í gær en mönnunum var sleppt
í fyrradag. Ekki var talin ástæða
til að fara fram á framlengingu
á varðhaldi, hvorki á grundvelli
rannsóknar hagsmuna né almanna-
hagsmuna, að sögn Friðriks Smára
Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu.
Mennirnir voru yfirheyrðir en
neituðu staðfastlega sök. Þá hefur
lögreglan farið yfir tölvur og tölvu-
gögn sem lagt var hald á á heimil-
um þeirra er þeir voru handteknir.
Grunur lék á að þar væri myndefni
sem sýndi börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt. Að sögn Friðriks
Smára hefur ekkert slíkt efni fund-
ist í tölvunum. Hann segir rannsókn
málsins langt í frá lokið, því enn sé
unnið úr gögnum og upplýsingum
sem liggi fyrir.
Mennirnir sem um ræðir eru
faðir og frændi drengsins sem þeir
eru grunaðir um að hafa misnotað.
Faðir drengsins á að baki lang-
an sakaferil og hefur meðal ann-
ars hlotið dóm fyrir árás á móður
drengsins. Hann hefur þó ekki verið
úrskurðaður í nálgunarbann. - jss
Engar kynferðislegar ofbeldismyndir fundust í tölvunum:
Meintir barnaníðingar lausir
TÖLVUBÚNAÐUR Ekkert saknæmt fannst
í tölvum mannanna tveggja.
STJÓRNMÁL Þrír þingmenn sem
gengið hafa úr þingflokki Vinstri
grænna eru að íhuga að stofna
nýjan þingflokk. Þau ætla að
styðja ríkisstjórnina í málum sem
eru í samræmi við stefnu Vinstri
grænna.
Lilja Mósesdóttir, einn þremenn-
inganna, segir erfitt að vera óháð-
ur þingmaður vegna skipulagsins
í þinginu. Óháðir þingmenn komi
ekki að ákvarðanatöku um dagskrá
og feril mála, og séu oft síðastir til
að frétta af dagskrá þingsins.
Lilja fundaði með Atla Gíslasyni
og Ásmundi Einari Daðasyni um
næstu skrefin í gær. Atli flaug af
landi brott um miðjan dag í gær
svo þau höfðu ekki tíma til að klára
að ræða málið. Lilja segir ekkert
liggja á, endanleg ákvörðun um
stofnun þingflokks verði mögulega
ekki tekin fyrr en eftir páska.
Spurð um stefnu þessa nýja þing-
flokks segir Lilja: „Við munum
styðja ríkisstjórnina í öllum þeim
málum sem samrýmast stefnu
Vinstri grænna. Það kom vel í ljós
í atkvæðagreiðslu í þinginu í dag [í
gær] að við fylgjum meirihlutanum
í flestum málum.“
Hún segir deilurnar innan
þingflokks Vinstri grænna hafa
snúist um fjögur mál; Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn, aðildar viðræður
við Evrópu sambandið, Icesave og
fjárlagafrumvarpið. „Vissulega
eru það stór mál, en þá þarf líka
að semja um þau,“ segir Lilja.
Hún segir að fari svo að þau
stofni nýjan þingflokk muni hann
eiga meiri samleið með stjórnar-
meirihlutanum en stjórnarandstöð-
unni, enda muni þau starfa eftir
stefnu Vinstri grænna. Þau séu
hins vegar óbundin af hvers kyns
málamiðlunum sem þingflokkur
Vinstri grænna geri í stjórnar-
samstarfi við Samfylkinguna.
Spurð um eigin framtíð segist
Lilja vera að skoða ýmsa mögu-
leika. „Þá er ég ekkert frekar að
tala um stofnun stjórnmálaflokks
heldur en bandalag við annan
flokk.“ Hún segist þó ekki ákveðin
í að bjóða sig fram aftur í næstu
þingkosningum. „Það hvarflar
stundum að manni hvort ekki sé
komið nóg, og ég er ekki sú eina
á þingi sem hugsar það. Margir
af núverandi þingmönnum munu
hætta í næstu kosningum.“
brjann@frettabladid.is
Þremenningar ætla að
starfa eftir stefnu VG
Þrír þingmenn sem gengið hafa úr þingflokki Vinstri grænna íhuga að stofna
nýjan þingflokk. Munu styðja stjórnina í þeim málum sem samrýmast stefnu
Vinstri grænna. Lilja Mósesdóttir óviss um hvort hún bjóði sig fram aftur.
SAMAN Þau Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason hafa eins og Ásmundur Einar Daðason
sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna, en ætla að fylgja stefnu flokksins á þinginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tveir þingmenn Framsóknarflokks hafa rætt hugmyndir um að Framsóknar-
flokkurinn gangi til liðs við ríkisstjórnina. Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur
Steingrímsson hafa lagt til að viðræður hefjist.
Eygló Harðardóttir, þingmaður flokksins, segir þessa afstöðu Sivjar og
Guðmundar ekki hafa komið flokksfélögum þeirra á óvart, og að hún hafi
eki verið rædd sérstaklega í þingflokkinum. Hún segir flokkinn vera í stjórn-
málum til að koma sínum stefnumálum á framfæri, ekki til að halda lífi í
ríkisstjórninni.
Hvorki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins, né Birki
J. Jónsson, varaformann flokksins, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gærkvöldi.
Ræða aðkomu Framsóknar að stjórn
STJÓRNMÁL Félagsfundur svæðis-
félags Vinstri grænna á Vest-
fjörðum hefur skorað á Ásmund
Einar Daða-
son, þing-
mann flokks-
ins, að segja
þegar af sér
þingmennsku.
Ásmundur
sagði sig úr
þingflokki
Vinstri grænna
á miðvikudag.
„Ásmundur
Einar hefur
samþykkt vantraust á ríkisstjórn
sem VG á aðild að og sagt sig úr
þingflokknum án samráðs við
félögin sem að framboði hans
stóðu og því ekki hægt að sjá að
hann geti setið áfram í umboði
kjósenda VG,“ segir í ályktun
fundarins. - bj
Vilja að Ásmundur segi af sér:
Situr ekki í um-
boði kjósenda
ÁSMUNDUR EINAR
DAÐASON
LEIKSKÓLAMÁL Áætlanir eigna-
sviðs Reykjavíkurborgar um
að leigja hús við skólagarðana í
Fossvogi til dagforeldra mætir
andstöðu í hverfisráði Háaleitis
og Bústaða. Leggja á skólagarð-
anna af og taka í staðinn upp svo-
kallaða fjölskyldugarða.
Hverfisráð leggst gegn breyt-
ingunni á nýtingu hússins nema
um það sé samráð við íbúa í
næsta nágrenni og vill að málið
sé kynnt fyrir íbúunum og þeim
gefinn kostur á að taka afstöðu
til þess. „Þá lýsir hverfisráð
áhyggjum af aðstöðuleysi þeirra
fjölskyldna sem munu nýta sér
nýju fjölskyldugarðana og má
í því sambandi benda á skort á
salernis aðstöðu,“ segir í bókun.
- gar
Andstaða í hverfisráði:
Leggjast gegn
dagforeldrum í
skólagarðahúsi
REYKJAVÍK Jón Gnarr borgarstjóri
neitaði í gær að taka á móti yfir-
mönnum af þýskum herskipum
sem lágu við bryggju í Reykjavík.
Borgarstjóri sagði að ástæðan
væri sú að hann væri friðarsinni
og á móti hernaði í hvaða mynd
sem er. „Ég lít ekki svo á að í því
felist einhver óvirðing við þetta
fólk sem er hér í heimsókn núna.
Ég vil einfaldlega ekki tengjast
hernaðarbrölti.“
Jón bætir því við að það sé ein-
læg skoðun hans að Reykjavík eigi
að vera borg friðarins. - þj
Borgarstjórinn í Reykjavík:
Neitaði að hitta
flotaforingja
LÍBÍA, AP Ekkert fararsnið virð-
ist á Múammar Gaddafí, leið-
toga Líbíu, þrátt fyrir loftárásir
aðildar ríkja Atlandshafsbanda-
lagsins og uppreisn í landinu.
Gaddafí ók í gær um höfuðborg-
ina Trípólí í brynvörðum jeppa
og steytti hnefann í átt að himni.
Loftárásir voru gerðar á skot-
mörk í borginni í gær en engar
staðfestar fregnir hafa borist af
mannfalli. Líbíska ríkissjónvarp-
ið, sem halt er undir Gaddafí,
sagði einhverja óbreytta borgar-
ar hafa særst í árásunum. - bj
Loftárásir gerðar á höfuðborg:
Ekki fararsnið
að sjá á Gaddafí
STAÐFASTUR Ríkissjónvarpið í Líbíu
sýndi Múammar Gaddafí, leiðtoga
landsins, aka um höfuðborgina í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÆKNI Sala á einkatölvum dróst
saman um 1,1 prósent á heimsvísu
á fyrsta fjórðungi ársins, sam-
kvæmt upplýsingum markaðs-
rannsóknafyrirtækisins Gartner.
Salan hefur ekki verið daprari í
eitt og hálft ár.
Þetta er þvert á spár, en
reiknað hafði verið með þriggja
prósenta söluaukningu. Talið er
að aukinn áhugi á spjaldtölvum
skýri málið þótt framleiðslutafir
af völdum jarðskjálftans í Japan
kunni að vega þungt.
Salan dróst saman um 6,1 pró-
sent í Bandaríkjunum en jókst í
Asíu og Mið- og Suður-Ameríku.
- jab
Sala á einkatölvum minnkar:
Spjaldtölvum
um að kenna