Fréttablaðið - 15.04.2011, Síða 19

Fréttablaðið - 15.04.2011, Síða 19
FÖSTUDAGUR 15. apríl 2011 19 Mér er sagt að það hafi tekið mörg ár að venja Íslend- inga af því að spara. Fátækt fólk fær ekki lán, það þarf að spara. En svo spöruðu menn enn, af gömlum vana, löngu eftir að það hætti að vera rökrétt. Málshátturinn „Græddur er geymdur eyrir“ bergmálaði í hugum fólks á tímum taum- lausrar verðbólgu. Verðbólgan át upp námslán og húsnæðislán einnar kynslóðar og sparifé ann- arrar. Geymdur eyrir eins varð græddur eyrir annars. Á endanum tókst að troða nýjum málshætti í heila fólks, málshætti sem byggði á reynslu: „Lán er mikið lán.“ Það tók tíma að fá fólk til að hætta að spara. Nú er uppi stór- fellt átak í því að venja fólk af því að vinna. Það gengur raunar hægt. Margir vilja enn vinna af göml- um vana þrátt fyrir að margt gáfulegra megi gera við tímann fyrir litlu minni pening. Íslend- ingar eru, þrátt fyrir allt, undar- lega atvinnuglöð þjóð. En dropinn holar steininn. Atvinnuleysisbætur eru enn tekjutengdar í nokkurn tíma eftir atvinnumissi. Það tímabil sem menn geta þegið bætur hefur verið lengt. Sveitarfélög kappkosta við að gera líf atvinnulausra viðburða- ríkara með því að gefa þeim frítt í sund og lokka þá inn á bókasöfn. Það var skiljanlegt að fyrstu mánuði eftir bankahrunið hafi menn verið að gera allt sem hægt var til að dempa mestu höggin, og hindra það að götur fylltust af fólki, raðauglýsingar fylltust af íbúðaruppboðum, meðan íbúðirn- ar sjálfar stæðu auðar. Auðvitað var það að einhverju leyti skyn- samlegt. En allur þunginn nú ætti að vera á það að koma atvinnu- lífinu í gang, frekar en á það að breiða úr öryggisnetinu og gera lendinguna í því mýkri og þægi- legri. Tryggingargjald hefur verið marghækkað, meðal annars til að standa straum af stórauknum kostnaði vegna atvinnuleysisbóta. Hið opinbera má hugsanlega veita fólki einhverja lágmarks- tryggingu, en eru tekjutengdar atvinnuleysisbætur ekki einfald- lega góðærismunaður? Eigum við nokkuð efni á slíku lengur? Fólk mætti hafa val um viðbótar- tekjutryggingu í sjálfstæðum sjóðum en hið opinbera á ekki að veita fólki slíka tryggingu og rukka það um hana. Það á ekki að hella meiru eldsneyti í opinbera atvinnubótakerfið. Það er ekki endilega víst að sú vél sé hag- kvæmust á fullum snúningum. Raunverulegir fjárhagslegir hvatar til að fá vinnu eða hefja eigin rekstur þurfa að vera meiri. Þess í stað eru flest stjórnvöld föst í kjarajöfnunar- og tekju- tengingaráráttu sem hefur öfug áhrif. Ég hef til dæmis heyrt að í borgar stjórn Reykjavíkur séu margir spenntir fyrir aukinni tekjutengingu gjaldskráa. Það eru vondar hugmyndir. Eins og fram kom í nýlegri grein minni hér í Fréttablaðinu skilar einstaklingur með tekjur á bilinu 100-250 þús- und á mánuði næstum því 90 af þeim 100 krónum sem hann þénar aukalega aftur inn í kerfið. Muni sveitarfélög ákveða til dæmis að tekjutengja leikskólagjöld um 10% er allur ávinningur láglauna- fólks af því að bæta við sig vinnu farinn. Prósenturnar eru nefnilega bara 100, sama hvernig menn reikna. Og ef allar prósenturnar hundrað eru notaðar í þágu kjara- jöfnunar verður ekkert eftir. Það er ekki gott. Samspil bóta, skatta og tekju- tengingar gerir það til dæmis að verkum að munur á fjölskyldu- tekjum hjóna þar sem annað vinn- ur en hitt þiggur bætur hins vegar og hjóna þar sem bæði vinna á lágum eða miðlungslaunum hins vegar er lítill. Menn þurfa að skila átta tímum, fimm daga vikunnar, koma sér til og frá vinnustað til að hækka í ráðstöfunartekjum um örfáa tugi þúsunda. Enda finnst mér sem margir þeirra sem leita sér að vinnu í kringum mann rök- styðji það með því að þeir vilji „hafa eitthvað að gera“ frekar en að þeir vilji „hafa eitthvað að borða“. Sé allrar sanngirni gætt þá eru öll skrif um réttlátari, eða árangurs tengdari, skiptingu kök- unnar innantómt þvaður, sé kakan engin. Og vissulega er minna um atvinnu nú um stundir en oft áður. En sú stefna að hækka sífellt launatengd gjöld í því skyni að fjármagna tekjutengdar bætur og langtímaatvinnuleysi er ekki sú kökugerð sem líklegust er til árangurs. Sjálfbært atvinnuleysi Pawel Bartoszek Stærðfræðingur Í DAG Í grein hér í blaði 12. apríl bregzt stjórnlagaráðsmaðurinn Lýður Árnason við tveimur greinum mínum 17. marz og 9. apríl, þar sem skipun stjórnlagaráðs var gagnrýnd, meðal annars með þess- um orðum: „Úrskurði Hæstaréttar var enn fremur hlýtt og umboð stjórnlaga- þingmanna afturkallað. Að segja úrskurðinn hundsaðan er því hrein og bein della. Bein skipan í stjórnlagaráð var einungis önnur leið að markmiðinu. Enda úrskurð- aði Hæstiréttur aldrei neitt gegn stjórnlagaþinginu sem slíku, ein- ungis kosningum til þess. Finnst dapurlegt að margreyndur lög- spekingur skuli þurfa leikmann til að segja sér þetta.“ Í grein minni í Fréttablaðinu 17. marz sl. sagði ég meðal annars þetta: „Nú liggur fyrir þingsálykt- un um að skipa 25 manna stjórn- lagaráð [hún var síðar samþykkt] og binda skipun þeirra og vara- manna við þá sem hlutu kosningu til stjórnlagaþings eða með öðrum orðum binda kjörið við hóp manna sem hlutu ógilda kosningu og eru því umboðslausir. Með þessu er Alþingi í reynd að fella ákvörðun Hæstaréttar úr gildi og ganga inn á svið dómsvaldsins. Jafnframt virðir Alþingi ekki þrískiptingu ríkisvaldsins og brýtur þann- ig gegn stjórnarskránni eða að minnsta kosti sniðgengur hana. Um leið ómerkir þingið eigin ákvörðun um að fela Hæstarétti endanlegt ákvörðunarvald. Ekki bætir úr þótt einhverjar málamyndabreyt- ingar hafi verið gerðar á hlutverki stjórnlagaráðs frá því sem ákveðið var um stjórnlagaþing.“ Ég læt lesendum eftir að leggja mat á framangreind skrif, en vil þó leggja áherzlu á tvennt: Með því að binda kjörið við þá sem voru ólöglega kjörnir og þar af leiðandi umboðslausir er ákvörðun Hæsta- réttar hnekkt. Bein skipan í stjórn- lagaráð er að mati Lýðs einungis „önnur leið“ að markmiðinu – eða með öðrum orðum: Ef markmiði verður ekki náð löglega er lög- brot einungis „önnur leið“ til að ná því. Mér skilst að einmitt þessar „aðrar leiðir“ hafi löngum verið farnar bæði í stjórnarháttum og viðskiptum í aðdraganda hrunsins og það átt drjúgan þátt í því. Guð- rún Pétursdóttir, formaður stjórn- laganefndar, hefur síðan brugðið upp þeirri myndlíkingu að fylgni við stjórnlög sé eins og að lenda í hríðarbyl, en skjólið sé í stjórn- lagabroti. – Þá höfum við það. Um leikmenn og lögspekinga Stjórnlagaráð Sigurður Líndal Lagaprófessor Með því að binda kjörið við þá sem voru ólöglega kjörnir ... er ákvörðun Hæstaréttar hnekkt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.