Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 20
20 15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Hólmsheiði/Almannadalur, Fjárborg Tillaga að breytingu á deiliskipulagi „Hólmsheiði/ Almannadalur/Fjárborg“. Í breytingunni felst að loftunargerði eru stækkuð við hesthús við Almannadalsgötu að vestanverðu. Skilyrði verða sett um að lóðarhafar gangi frá landmótun að reiðleið á eigin kostnað. Gerði við nyrsta staka húsið stækka til norðurs um þrjá metra. Breytingar munu ekki hafa áhrif á lóðarmörk. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 15. apríl 2011 til og með 31. maí 2011. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www. skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 31. maí 2011. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 15. apríl 2011 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Á hverju ári er haldinn alþjóðlegur ofneyslu-dagur um allan heim. Það er sá dagur ársins þegar neyslan fer yfir þolmörk jarðar. Árið 2010 var þessi dagur 21. ágúst og hvert ár færist hann framar. Þessi þróun getur ekki haldið áfram en hvernig breytum við um stefnu? Sjálfbær þróun er svarið og þar eru Norðurlönd í fararbroddi. Á undanförnum áratugum hafa Norður lönd sýnt fram á að það er hægt að ná aukn- um hagvexti án þess að íþyngja umhverfinu. Hug- myndafræðin um sjálfbæra þróun styður þannig við norræna velferðarkerfið, þar sem markmiðið er að bæta lífsgæði án þess að ganga á auðlindir jarðar. Áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um sjálf- bæra þróun var kynnt árið 2001. Það var jafnframt í fyrsta sinn sem nokkur lönd tóku sig saman um að taka stefnuna á sjálfbært samfélag. En hvar erum við stödd núna, og hvaða aðgerðir eru í gangi á nor- rænum vettvangi? Heildar koltvísýringslosun Norðurlanda minnk- ar stöðugt samtímis því að hlutur endurnýjanlegra orkugjafa eykst, lífrænn landbúnaður er í sókn og umhverfismerktum vörum á markaði fjölgar. Lífs- líkur íbúa aukast og það sama á við um menntunar- stig. Allt eru þetta vísbendingar um að við séum á réttri leið. Við verðum þó að leggja okkur betur fram ef við ætlum að tryggja sjálfbært samfélag til framtíðar. Við þurfum að bæta samgöngukerfið með öflugri almenningssamgöngum og umhverfisvænum orku- lausnum. Við þurfum að auðvelda neytendum að velja sjálfbærar og hollar vörur, t.d. með notkun norræna umhverfismerkisins Svansins og með því að halda á lofti nýrri norrænni matargerðarlist. Framleiðendur og neytendur verða áfram að bera kostnað af því álagi á umhverfið sem hlýst af gerðum þeirra. Það hvetur til betri umgengni við umhverfið og ýtir undir þróun nýrrar umhverfis- tækni. Yngsta kynslóðin þarf að læra snemma hvernig á að haga sér í heimi þar sem fleira fólk þarf að deila með sér færri auðlindum. Leiðin inn í sjálfbæran heim hefst í nærsam- félaginu. Á Norðurlöndum má finna fjölmörg dæmi um staðbundin sjálfbærniverkefni. Fyrir nokkrum árum stefndi í óefni í sænsku borginni Malmö, vinnustöðum fækkaði og heilu hverfin voru í niður- níðslu. Með markvissu starfi og uppbyggingu borgarhluta sem eru nú félagslega, efnahagslega og umhverfislega sjálfbærir tókst að snúa þessari þróun við. Fyrir vikið var borgin verðlaunuð af Sameinuðu þjóðunum. Í Nuuk á Grænlandi hafa menn sett sér það mark- mið að verða fyrsti koltvísýringshlutlausi höfuð- staður í heimi. Tampere í Finnlandi fékk nýlega viðurkenningu fyrir aðgerðir sínar til að fá íbúa til að draga úr koltvísýringslosun. Loks má nefna að Norræna ráðherranefndin ýtti nýlega úr vör sam- keppni milli sveitarfélaga á Norðurlöndum um vist- væna orkunotkun. Sjálfbærni og lausnir á loftslagsvandanum nást þó ekki eingöngu með staðbundnum verkefnum. Til þess þarf svæðisbundið og hnattrænt samstarf. Norðurlönd vilja ná metnaðarfullum loftslagsmark- miðum fyrir næstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember og norrænn sérfræðingahópur vinnur að því að móta viðræðugrundvöll út frá nor- rænum markmiðum. Norræna ráðherranefndin tekur einnig þátt í fundum sjálfbærninefndar Sameinuðu þjóðanna, og áætlanir eru uppi um norrænt átak í tengslum við alþjóðaráðstefnu um sjálfbæra þróun í Ríó árið 2012. Tækifæri Norðurlanda til að taka forystuna á alþjóðavettvangi eru því fjölmörg. Norðurlönd verða einnig að vinna með Eystra- saltsríkjunum og ESB, ásamt því að þróa sameigin- legar aðgerðir til að stuðla að sjálfbærri þróun í þróunarríkjunum og meðal frumbyggja. Nordic Climate Facility – sem styrkir loftslagsverkefni í þróunarríkjunum – er dæmi um norrænt samstarf eins og það gerist best. Því er haldið fram að sífellt dragi úr þýðingu norræns samstarfs vegna hnattvæðingar og aukins ESB samruna. Við teljum að þessu sé einmitt þver- öfugt farið: Sífellt hnattvæddari heimur og stærra ESB eykur mikilvægi norrænnar samvinnu. Við eigum því að bregðast við loftslagsvandanum og leitast við að skapa sjálfbærara þjóðfélag á þann árangursríka og sveigjanlega hátt sem einkennir Norðurlönd, því saman náum við betri árangri og meiri áhrifum á alþjóðavettvangi. Samstarfsráðherrar Norðurlanda: Katrín Jakobsdóttir, Ísland Karen Elleman, Danmörk Jan Vapaavuori, Finnland Jacob Vestergaard, Færeyjar Palle Christiansen, Grænland Rigmor Aasrud, Noregur Ewa Björling, Svíþjóð Veronica Thörnroos, Álandseyjar Norðurlönd vísa veg til sjálfbærni Sem betur fer – eða hvað? – virð-ast allir hafa gleymt þessu: Á árunum fyrir 1960 var kannað hvernig unnt væri að koma fyrir litlu kjarnorkuveri til orkufram- leiðslu í Vestmannaeyjum. Um var að ræða kjarnorkuver með 26,2 megavatta varmaafli eða 5,6 mega- vatta rafafli. Þetta tæki átti að nýta létt vatn og auðgað úraníum svipað og er í orkuverunum í Japan, sem eru að nokkru leyti komin vel til ára sinna. Hugmyndin var að nota varma- aflið fyrir hitaveitu þegar rafaflið væri ekki að fullu nýtt. Rafmagns- veitur ríkisins skoðuðu málið sér- staklega. Vinna var líka á borðum Kjarnfræðanefndar en hún var stofnuð 1956 eftir Genfarfundinn um friðsamlega notkun kjarnorku 1955. Björn Kristinsson, rafmagns- verkfræðingur, þá framkvæmda- stjóri nefndarinnar og seinna pró- fessor við Háskóla Íslands, vann greinargerð fyrir nefndina um orkuverið. Nefndin var lögð niður 1964. Hugsanleg áhrif vetnissamruna (kjarnasamruna) á íslenskt efna- hagslíf voru rædd í fullri alvöru á þessum árum. Menn trúðu á tíma- bili að stillanlegur vetnissamruni væri rétt handan við hornið. Þetta gat þýtt að best væri að koma inn- lendri orku í verð áður en það yrði of seint og hafði bein áhrif á orku- sölu til stóriðjunnar. Og viðhorf til raforkuverðs. Í umræðunum um orkuverð til álversins í Straumsvík tókust á nokkur meginsjónarmið. Áhersla var lögð á að nauðsynlegt væri að skjóta fleiri stoðum undir atvinnu- lífið eins og það var kallað. Talið var að efnahagslífið væri of veikt með því að treysta á sjávar útveginn einan. Var mikið til í því. Sumir bentu reyndar á möguleika ferða- þjónustunnar. Það voru ekki talin veigamikil rök á þeirri tíð. Nú er ferðaþjónustan að rísa yfir allar aðrar atvinnugreinar í gjaldeyris- öflun. Andstæðingar stóriðjuvers- ins á sjöunda áratugnum voru hins vegar ekki á móti stóriðjunni sem slíkri heldur í fyrsta lagi allt of lágu orkuverði til álversins og í öðru lagi báru einhverjir – en fáir – fram umhverfisrök; álverið mengar. Og í þriðja lagi voru marg- ir andvígir álverinu af því að það var og er í eigu útlendinga. Sú rök- semd heyrist sjaldan nú orðið. En hinar eru áfram á sínum stað. Sú sem snýr að orkuverðinu hefur hins vegar orðið örlagaríkust. Verðið fyrir raforkuna á Íslandi hefur verið allt of lágt. Það er enn allt of lágt. Sú stað- reynd á að nokkru leyti rætur að rekja til þess að einhverjir töldu að kjarnorkan væri að koma; að hún myndi eftir skamma stund gera íslensku orkulindirnar verð- lausar. Sem betur fer urðu þeir ekki sannspáir sem héldu slíku fram. Kjarnorkuver í Vestmanna- eyjum varð aldrei til nema á fá- einum minnisblöðum. Þetta kjarn- orkuver hefði aldrei orðið neitt í samanburði við þau sem seinna urðu til um allan heim. En Íslend- ingar könnuðu þessa slóð. Minnis- blöðin eru til. Sem betur fer Sjálfbær þróun er svarið og þar eru Norðurlönd í farar- broddi. Orkumál Svavar Gestsson Fyrrverandi ráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.