Fréttablaðið - 15.04.2011, Síða 33

Fréttablaðið - 15.04.2011, Síða 33
15. apríl föstudagur 7 ✽ m yn da al bú m ið a- a. u a ð r- g u n m ir ki ér u- n. ð ir g rg k- g s- ir íi ð ð u u. ð- a á u m ð a i- n- ir . ar u m- st m f- m g r- ó- i- a di Steindi mestu festuna og metnað- inn og það skilaði sér. Sumarið 2009 bauðst okkur að vera með Mónitor- þátt á Skjáeinum og við sem að þessu stóðum ákváðum bara að slá til. Mig minnir að það hafi liðið tíu dagar frá því að við áttum fyrsta fundinn með Skjáeinum og þar til fyrsti þátturinn fór í loftið.“ Í lok sumars 2009 ákvað Hrefna Björk að flytja ásamt manni og barni til Stafangurs í Noregi þar sem hún rak verslunina ER í rúmt ár. Við heim- komuna tók hún að sér starf fram- kvæmdastjóra Steindans okkar og segir hún vinnuna hafa verið stór- skemmtilega. „Mitt starf var að redda tökustöðum og leikurum og sjá til þess að Steindi vaknaði á morgn- ana og almennt utanumhald,“ segir hún og hlær. „Annars var þetta mjög skemmtilegt verkefni og við skemmt- um okkur mikið við tökur þannig það er gaman að sjá hversu góðar viðtök- ur þátturinn hefur fengið.“ Hrefna er alls óhrædd við að henda sér út í djúpu laugina og taka að sér hin ýmsu verkefni líkt og ferilskrá hennar ber vitni um. Hún segist vera sérlegur talsmaður þess að kýla á hlutina og vílar ekki fyrir sér að skapa skemmtileg störf fyrir sig. „Ég á mér mottó sem ég stal frá Nike. Mér finnst að maður verði einfaldlega að kýla á hlutina því ef þú ofhugsar þá virðast hlutirnir oft svo óyfirstíganlegir. Ef hlutirnir heppnast ekki þá lærirðu í það minnsta eitthvað í leiðinni.“ Nýjasta verkefnið sem Hrefna Björk hefur tekið sér fyrir hendur er að opna Krakkaland ásamt Bjarna, sam- býlismanni sínum, og stefna þau á að opna það í Skútuvoginum í júní- byrjun. Krakkalandið er að norskri fyrirmynd og afskaplega vinsælt í heimalandinu. „Þetta skiptist í leik- svæði fyrir börn og svo aðstöðu fyrir foreldra þar sem þeir geta skoðað blöð, farið á netið og drukkið kaffi á meðan börnin leika sér. Það er einnig aðstaða fyrir börn frá aldrinum núll til þriggja ára þannig að þetta er kjör- ið fyrir alla fjölskylduna. Við fundum það þegar við komum aftur heim að það vantaði staði fyrir krakka og ég vildi breyta því.“ ambýlismanni sínum, Bjarna Sigurðssyni. DA Á NANA Þarna er ég um átta ára gömul. Þarna er ég með Ronju mjög litla. Við mæðgurnar á góðum degi. Þarna er hópurinn samankominn við tökur á Steindanum okkar. Gæddu húðina geislandi fegurð Kynnum Illuminating Finish Powder Compact Foundation SPF12 Komdu og láttu förðunarmeistara Bobbi Brown í Hagkaup Smáralind og Lyf og heilsu Kringlunni sýna þér nýja kremaða púðurfarðann og finndu hinn fullkomna lit fyrir þig. Þú færð prufur af nýjustu varalitunum með þér heim.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.