Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 34
K
ynning
Með Dove Summer Glow brúnkukremi getur
þú orðið brún á heilbrigðan og þægilegan máta,
er fáanlegt bæði fyrir ljósa og dökka húð. Fæst í
verslunum um land allt.
Nýtt- Instant
Smooth Self
Tanning frá Clarins
Töfrandi sjálfsbrúnka
sem á augabragði fyllir
upp í fínar línur og lýsir
upp andlit og bringu
og í ljós kemur mildur,
náttúrulegur ljómi.
FLASH BRONZER NIGHT SUN
frá Lancôme. Sjálfbrúnandi krem frá Lancôme sem
er notað yfir nóttina fyrir andlit og bringu. Morguninn
eftir verður húðin ljómandi með tindrandi sólbrúnan lit.
Formúlan smýgur samstundis inn í húðina og eftir aðeins
5 mínútur smitast hún hvorki í föt né rúmföt. Yndislegur
ilmur sem hylur hefðbundna brúnkukrems lykt.
HYDRA COLLAGENIST frá HELENA RUBINSTEIN.
DJÚPVIRK RAKALÍNA FYRIRBYGGJANDI GEGN,
ÖLDRUN
Fyrsta rakagefandi húðsnyrtilínan frá HELENA
RUBINSTEIN sem er fyrirbyggjandi og gegn öldrun.
Endurvekur raka húðar. Dregur úr hrukkum og línum af
völdum rakaskorts. Þéttari, sléttari og sjáanlega unglegri
húð.
Í línunni eru: Krem, serum, augnkrem og rakamaski.
RÉNERGIE MULTIPLE LIFT
AUGNKREM frá Lancôme
FULLKOMNUN Í AUGNVÖRUM
Tvær formúlur – Sexföld
yngingarvirkni.
Lancôme, fremstir í heiminum gegn
öldrun, kynnir fullkomnun í augnvöru.
Í fyrsta sinn augnkrem Rénergie
Multiple Lift frá Lancôme, með 2
formúlum fyrir 6 sjáanlegar virknir til
að yngja upp á fullkominn hátt allt
augnsvæðið
Frísklegar
og fagrar í sumar
CHANEL
SUBLIMAGE LA CRÉME
Allar viljum við auka fegurð húðarinnar, með SUBLIMAGE
línunni náum við því markmiði. SUBLIMAGE afeitrar
og endurnýjar húðina, styrkir hana, dregur úr
öldrunareinkennum og eykur náttúrulegan ljóma. Þessir
einstöku eiginleikar verða til við hjálp hins dýrmæta blóms
„Golden Flower“ sem vex og lifir í Himalayafjöllum. Húðin
þín verður einfaldlega himnesk og falleg eins og þú sjálf.
Í línunni er Serum , 24st krem, augnkrem og maski.
mælistikan
Á uppleið:
Hjólreiðar! Nú fer sumarið alveg að
koma samkvæmt dagatalinu og því
um að gera að hafa reiðhjólið tilbúið.
Það er fátt skemmtilegra en að líða
um á hjóli í fallegu veðri og með eyrun
full af tónlist.
Espadrillur! Þessir klassísku sumar-
skór hafa hlotið endurnýjun lífdaga og
eru skyldueign þetta sumarið.
Hversdagsboð! Matarboð þurfa
ekki endilega að þýða mikið tilstand
og fjárútlát. Það er líka gaman að hitt-
ast yfir soðinni ýsu og góðum kart-
öflum.
Skóhönnuðurinn Christian
Louboutin hefur kært tískuhúsið
Yves Saint Laurent vegna brots
á einkarétti. Yves Saint Laurent
hannaði rauða hælaskó sem eru
einnig með rauða sóla, en það
er einkenni Louboutin-hæla-
skónna og fékk fyrirtækið einka-
rétt á sólunum rauðu árið 2008.
„Louboutin er fyrsti hönnuð-
urinn sem framleiddi skó með
rauðum sólum. Hönnun Yves
Saint Laurent er svo lík hönnun
Louboutins að það getur vald-
ið ruglingi hjá viðskiptavin-
um,“ stendur meðal annars í
kærunni.
Louboutin hafði samband við
Yves Saint Laurent í janúar á
þessu ári og bað fyrirtækið um
að hætta framleiðslu á þessum
tilteknu skóm. YSL varð ekki við
þeirri bón og nú fer Louboutin
fram á eina milljón dala í skaða-
bætur frá franska tískuhúsinu.
- sm
Louboutin kærir tískuhúsið Yves Saint Laurent:
Tískurisar mætast
Í mál Christian Louboutin hefur kært tískuhúsið Yves Saint Laurent.
NORDICPHOTOS/GETTY
Á niðurleið:
Baugar og
þreytt húð!
Með hækk-
andi sól sjást
misfellur
í húðinni
æ betur.
Frískið upp
á húðina
með svolitlu
skrúbbi og góðri
umhirðu.
Neikvæðni! Nú er
komið nóg af neikvæðni
og kominn tími til að
taka Pollýönnu sér
til fyrirmyndar.
Hrósum, brosum
og verum jákvæð.
Kuldaskór! Það
fer vonandi að stytt-
ast í að hægt verði að
leggja kuldaskóna á
hilluna fram að næsta
vetri.