Fréttablaðið - 15.04.2011, Síða 48
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR
Tónlist ★★
Perluportið
Íslenska óperan
Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir. Leikmynd: Guðrún
Öyahals. Búningar: Katrín Þorvaldsdóttir. Flytjendur:
Ágúst Ólafsson, Gissur Páll Gissurarson, Hulda Björk
Garðarsdóttir og Valgerður Guðnadóttir.
Hún var ósköp fátækleg, sýning Íslensku óperunnar
á föstudagskvöldið.
Í orðsins fyllstu merkingu. Á sviðinu voru rusla-
fötur, veggjakrot og annað ógeð. Svo byrjuðu rusla-
tunnurnar að syngja. Og upp úr þeim stigu söngv-
arar íklæddir lörfum. Áttu greinilega að vera
fátæklingar, öreigar sem ætluðu að gera sér glaðan
dag. Hverfa úr veruleikanum um stund og skemmta
sér eins og kóngar og drottningar.
Sýningin var líka fátækleg í öðrum skilningi. Það
var ekki mikið í hana lagt. Maður varð ekki var við
listrænan metnað. Fjórir söngvarar fluttu aðallega
aríur af topp tíu listanum, og allt meðspil var í hönd-
unum á einum píanóleikara.
Sumt var óneitanlega fyndið. Fólk hló að Gissuri
Páli Gissurarsyni tenór, sem skaust upp og niður úr
ruslatunnunni með tilþrifum. Það var líka fyndið
þegar hann lék pínulítinn kóng. En flest annað virk-
aði ankannalega.
Til dæmis var stirðbusalegur dansinn í Báts-
söngnum úr Ævintýrum Hoffmanns beinlínis hall-
ærislegur. Og atriðið þar sem Ágúst Ólafsson söng
Nautabanaaríuna úr Carmen, og hinir söngvararnir
léku naut með kvenmannsskó fyrir horn, var eins og
í lélegu áramótaskaupi.
Tónlistarlega séð var sýningin ekki slæm. Söng-
urinn var oft fagur. Sérstaklega var gaman að heyra
Valgerði Guðnadóttur taka Una voce poco fa eftir
Rossini. Og fleira. Hún söng af aðdáunarverðu
öryggi. Ég held að ég hafi ekki séð hana á óperu-
sviðinu síðan hún brilleraði í Sumaróperunni fyrir
alltof mörgum árum síðan.
Hulda Björk Garðarsdóttir var líka glæsileg, enda
með mikla og flotta rödd. Sömu sögu er að segja
um Ágúst. Og Gissur átti góða spretti, sérstaklega
í byrjun. Rödd hans glataði samt dálítið fókusnum
eftir því sem á leið.
Antonía Hevesi lék á píanóið. Hún stóð sig
ágætlega. Píanóleikurinn var tær og nákvæmur, lif-
andi og fullur af karakter.
Gallinn var sá að maður áttaði sig ekki á tilgang-
inum með sýningunni. Allur hressleikinn, allt stuðið
virkaði falskt. Og það vantaði plottið. Þegar ekkert
gerðist – annað en sívaxandi bjánagangur – urðu
herlegheitin sífellt ómerkilegri.
Þetta var síðasta sýning Íslensku óperunnar áður
en hún flytur í Hörpu. Tónlistarlegt ruslfæði er
engan veginn sæmandi fyrir svo merk tímamót. En
kannski átti sýningin að vera eins konar áramóta-
skaup, smá grín til að marka endalok tímabils. Þá
hefðu brandararnir líklegast þurft að vera miklu
fleiri. Jónas Sen
Niðurstaða: Síðasta sýning Íslensku óperunnar í Gamla
bíói olli vonbrigðum.
Ruslfæði fyrir óperuunnendur
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 15. apríl 2011
➜ Tónleikar
12.00 Hádegistónleikar í Víðistaða-
kirkju verða í dag kl. 12. Vigdís Klara
Aradóttir og Guido Bäumer leika verk
eftir Marie-Héléne Fournier, Christian
Lauba og Paul Hindemith. Aðgangseyrir
kr. 1.000.
21.00 Jussanam da
Silva heldur tónleika
á Café Haiti kl. 21
í kvöld. Með henni
spilar Andrés Thor
og leika þau Bossa
Nóva. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
23.00 Tónlistarmað-
urinn Pétur Ben leik-
ur ásamt hljómsveit
sinni á Faktorý kl. 23
í kvöld. Leikið verður
nýtt efni í bland við
eldra. Húsið opnað
kl. 22. Aðgangseyrir
er kr. 1.000.
➜ Opnanir
18.00 Ljósmyndasýningin ÞINGVELLIR
Í FÓKUS opnar kl. 18 í kvöld í fræðslu-
miðstöð Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Sýningin stendur til 13. júní.
➜ Síðustu forvöð
14.00 Sýning á verkum eftir Rut
Rebekku lýkur nú um helgina. Yfir-
skrift sýningarinnar er Umbreyting,
en þar sýnir Rut abstrakt olíumálverk.
Sýningin er opin frá kl. 14-18 og lýkur á
sunnudag.
➜ Tónlist
21.00 Tuttugasta og sjötta Grapevine
Grassroots kvöldið fer fram á Hemma
og Valda kl. 21 í kvöld. Tónlistarmynd-
bönd frumsýnd og listamenn stíga á
svið. Frítt inn.
➜ Fyrirlestrar
12.15 Peter Austin, prófessor við
University of London, heldur opinn
fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla Íslands
kl. 12.15 í dag. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Ágúst Ólafsson
Gissur Páll Gissurarson
Hulda Björk Garðarsdóttir
Valgerður Guðnadóttir
Antonía Hevesi, píanó
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Leikmynd: Guðrún Öyahals
Búningar: Katrín Þorvaldsdóttir
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
PERLUPORTIÐ
SPRELLFJÖRUG ÓPERUSKEMMTUN!
ANNAÐ KVÖLD
LAUGARDAGINN 16. APRÍL KL. 20
Leikfélagið Royndin frá Nólsoy í Færeyjum
- Sjótekinn
Norræna húsið, Leikfélag Hafnarfjarðar og Gaflaraleikhúsið
kynna
Miðapantanir í síma 565-5900
og í midasala@gaflaraleikhusid.is
- vélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.