Fréttablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 58
15. apríl 2011 FÖSTUDAGUR42
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Þetta var geggjuð flott sýning,
eins og gelgjan sagði.
Og hvað viljið þið meira?“
B.S., pressan.is „Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20
KÖRFUBOLTI Stjörnumenn sýndu
mikinn karakter, baráttu og þor í
Ásgarði í gær er þeir blésu á allar
hrakspár, spiluðu hörkuleik og
unnu frábæran sigur á KR, 107-
105, í hreint út sagt frábærum
körfuboltaleik.
Leikurinn var skemmtun frá
upphafi til enda. Jafnræði var með
liðunum allan leikinn og það kom
aldrei fyrir að annað liðið næði
afgerandi forskoti. Stjörnumenn
voru þó ávallt skrefi á undan. Þeir
voru mun sterkari í fyrri hálfleik
og ef ekki hefði verið fyrir sýn-
ingu Marcus Walker hjá KR hefði
Stjarnan verið með afar góða stöðu
í hálfleik.
Þá leiddu þeir aðeins með tveim
stigum, 54-52, en Walker skoraði
24 stig í hálfleiknum og var algjör-
lega magnaður.
Hiti í lokamínútunum
Stjörnumenn voru sem fyrr skrefi
á undan í síðari hálfleik en KR-
ingar neituðu að gefast upp og
voru alltaf rétt á eftir. Mikill hiti
var í liðunum í lokaleikhlutanum
og lá við að upp úr syði. KR-ingar
minnkaði muninn í eitt stig, 106-
105, þegar 16 sekúndur voru eftir
og fengu tækifæri til þess að jafna
eða vinna leikinn í lokasókninni.
Það gekk ekki eftir og Stjörnu-
menn fögnuðu hreint ógurlega í
leikslok og máttu það vel.
„Það mættu allir í partíið í dag.
Okkur leið í fyrsta leiknum eins og
við værum boðflennur í afmæli.
Eins og okkur væri ekki boðið. Nú
erum við komnir með boðs miðann
og það eru allir mættir eins og sjá
mátti í dag,“ sagði Teitur Örlygs-
son, þjálfari Stjörnunnar, kátur
en lið hans lék virkilega vel og
sex leikmenn skoruðu tíu stig eða
meira.
Líður vel í spennandi leikjum
„Framlagið frá Jovan, Fannari
og Marvin að þessu sinni var allt
annað og munar mikið um það.
Þeir voru ekki með í fyrsta leikn-
um. Við hefðum átt að leiða stórt í
hálfleik miðað við spilamennskuna
en Marcus var með sýningu sem
var ekki hægt að stöðva,“ sagði
Teitur, en hans lið sýndi stáltaugar
enn eina ferðina í jöfnum leik.
„Okkur líður mjög vel í spenn-
andi leikjum og við erum með
flotta stráka og góðar vítaskytt-
ur. Sjálfstraustið var mikið undir
lokin og menn stigu upp á báðum
endum vallarins. Allir í liðinu skil-
uðu sínu og líka þeir sem fengu
fæstar mínútur. Ég var hæst-
ánægður með þetta,“ sagði Teitur,
en hans menn hafa nú hrist af sér
flenginguna í fyrsta leik og eru
búnir að gera rimmuna að alvöru
einvígi.
„Sviðsskrekkurinn verður far-
inn í næsta leik í DHL-höllinni.
Núna verður bara tilhlökkun að
spila og við getum ekki beðið eftir
næsta leik.“ henry@frettabladid.is
NÚNA MÆTTU ALLIR Í PARTÍIÐ
Teitur Örlygsson sagði að sínu liði hefði liðið eins og boðflennum í afmæli í fyrsta leiknum gegn KR um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfubolta. Hans menn voru mættir í betri fötin í gær og tóku fullan þátt í gleðinni.
STJARNAN JAFNAÐI METIN
Justin Shouse og félagar svöruðu fyrir
sig í rimmunni gegn KR í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI „Þetta var alvöru leik-
ur og ég er bara hrifinn af því
sem Stjarnan gerði. Þeir breyttu
ekki grunnskipulaginu en komu
út og börðu svolítið vel á okkur.
Það var greinilega það eina rétta
í stöðunni og við vorum svolítið
lengi að átta okkur á því,“ sagði
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR,
eftir tapið í gær.
„Ég hafði trú á því allan tím-
ann að við myndum taka þetta
undir lokin en þetta féll ekki
með okkur að þessu sinni,“ sagði
Hrafn en hann var ekki alveg
sáttur við dómgæsluna undir
lok leiksins og vildi sjá dómar-
ana setja meiri tíma á klukkuna
þegar KR fékk lokatækifæri til
að skora.
„Mér fannst eins og enginn
vissi hvað væri í gangi í lokin. Ég
vona að dómararnir hafi notað
sjónvarpið og fundið út að það
væru bara 0,2 sekúndur eftir.
Mér fannst vera meiri tími eftir,“
sagði Hrafn, sem býst við hörku-
leikjum í kjölfarið.
„Stjarnan er í úrslitunum af
góðri ástæðu. Þetta er hörkulið
og það mátti alveg búast við því
að þetta yrði alvöru sería.“ - hbg
Hrafn Kristjánsson:
Þeir börðu vel á
okkur í kvöld
RÆÐA MÁLIN Hrafn Kristjánsson, þjálfari
KR, og Björgvin Rúnarsson dómari.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI „Svona hafa leikirnir
verið hjá okkur í allan vetur. Við
gerum okkur ekki auðvelt fyrir.
Það er hluti af skemmtuninni.
KR er síðan frábært lið og menn
rúlla ekkert yfir það,“ sagði Just-
in Shouse brosmildur eftir leik.
„Það hafa margir efast um að
við ættum erindi í þessa úrslita-
leiki en ég tel okkur hafa sýnt í
kvöld að við eigum fullt erindi í
þessa rimmu. Við erum ekki bara
ánægðir að vera hérna. Vissulega
ætlum við að skemmta okkur en
við ætlum okkur meira en það. Af
hverju getum við ekki farið alla
leið?“ sagði Justin brattur.
Fannar Helgason, fyrirliði
Stjörnunnar, fann sig engan
veginn í fyrsta leiknum en átti
fínan leik í gær. „Mér finnst við
vera með mjög gott lið og KR er
líka gott lið, sérstaklega ef það
fær að spila sinn leik. Það er lyk-
ilatriði að stöðva hraðaupphlaupin
hjá KR-ingum því þeir eru ekkert
sérstakir að setja upp sóknir. Þar
held ég að við séum sterkari. Ef
við náum að spila á okkar hraða
erum við betra lið,“ sagði Fannar
kokhraustur.
„Þetta var flottur leikur og
svona vilja allir hafa þetta. Þetta
á ekki að vera eins og í fyrsta
leiknum þegar við mættum ekki
tilbúnir. Þá vorum við eins og
aumingjar og það gerist ekki
aftur.“ - hbg
Justin Shouse og Fannar Helgason, Stjörnunni:
Við eigum fullt er-
indi í þessa rimmu