Fréttablaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 32
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR32
Gleðidagur í
Þjóðmenningarhúsi
Árleg Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt á fimmtu-
dag. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu þar sem tilnefndir og
aðrir gestir fylltu salinn. Að athöfn lokinni var boðið upp á
veitingar þar sem tilefni gafst til að spjalla og óska hvert öðru til
hamingju.
SAMFÉLAGSVERÐLAUN Samtök kvenna af erlendum uppruna voru tilnefnd til Samfélagsverðlauna Frétta-
blaðsins, barnaheimilið í Reykjadal, sem hlaut verðlaunin, og Sorpa vegna Góða hirðisins.
HVUNNDAGSHETJUR Í flokknum Hvunndagshetjur voru tilnefnd Ásmundur Þór Kristmundsson fyrir
björgunarafrek í Krossá, Júlíana Signý Gunnarsdóttir, sem færir heimilislausum jólagjafir ár hvert, og Stefán
Helgi Stefánsson, sem stendur að Elligleði ásamt Margréti Sesselju Magnúsdóttur sem einnig er á myndinni.
TIL ATLÖGU GEGN FORDÓMUM Í þessum flokki var Pollapönk tilnefnt, Listasmiðjan Litróf í Fella- og Hólakirkju, sem hlaut verðlaunin, og Íþróttafélagið Styrmir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR Tvenn hjón voru tilnefnd í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar, þau Andrés
Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir, sem standa að Skólahreysti, og Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir,
aðstandur Möguleikhússins. Jón Stefánsson hlaut verðlaunin í þessum flokki.
MARGT UM MANNINN Gamli lestrarsalurinn í Þjóðarbókhlöðunni var falleg umgjörð utan um Samfélags-
verðlaunahátíð Fréttablaðsins.
DÓMNEFNDARKONUR Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, Anna Kristinsdóttir, mann-
réttindastjóri Reykjavíkurborgar, og séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðasókn, skipuðu
dómnefnd um Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins ásamt Felix Bergssyni leikara og Elliða Vignissyni, bæjar-
stjóra í Vestmannaeyjum.
HEIÐURSVERÐLAUNAHAFINN Margir vildu eiga spjall við heiðursverðlaunahafann Jennu Jensdóttur, rithöf-
und og kennara. Hér er hún á tali við Ólaf Þ. Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins, og Ara Edwald, forstjóra
365 miðla.