Fréttablaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 8
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR8
1. Hver er formaður Samtaka
atvinnulífsins?
2. Hvaða íslenska hljómsveit hefur
fengið hina bandarísku Heather
Kolker sem umboðsmann?
3. Hvaða leikmaður KR-inga
skoraði 24 stig í fyrri hálfleik gegn
Stjörnunni í fyrrakvöld?
SVÖR
1. Vilmundur Jósefsson 2. Of Monsters &
Men 3. Marcus Walker
Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfsaðilum
að verkefninu Margar hendur vinna létt
verk sumarið 2011.
Landsvirkjun hefur um áratugi starf rækt
sumarvinnuflokka ungs fólks. Hóparnir sinna
viðhaldi, uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um land.
Samvinna sumarvinnuflokka Landsvirkjunar
og félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana
hefur skilað sér í auknum umhverfisgæðum
og betri aðstöðu til útivistar og
ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu flokka
og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta
að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum
umhverfisbótum ásamt stígagerð og stikun
gönguleiða.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram
vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað
með nánari upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður
Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar, í
síma 515 9000 ragnheidur@lv.is.
Umsóknarfrestur rennur út 29. apríl.
Umsóknareyðublöð er að finna á
www.landsvirkjun.is
landsvirkjun@lv.is
Tel: +354 515 90 00
Fax: +354 515 90 07
Háaleitisbraut 68
103 Reykjavik - Iceland
landsvirkjun.is
EVRÓPUMÁL Þótt allt að helm-
ingur Króata sé efins um Evr-
ópusambandsaðild hefur lítið
heyrst af öðrum kostum, segir dr.
Visnja Samardzija, yfirmaður hjá
Alþjóðamálastofnuninni í Zagreb,
sem flutti erindi hjá Alþjóðamála-
stofnun Háskólans í gær. Hún
segir króatíska aðildarandstæð-
inga benda á einstaka hluti gegn
inngöngu, svo sem kröfur ESB um
afnám ríkisstyrkja í skipaiðnaði
og um heilnæmari landbúnaðar-
framleiðsluhætti en enginn breið-
fylking andstæðinga hafi sýnt
fram á möguleika landsins utan
sambands.
„Króatía á engra kosta völ en
að ganga í ESB því við erum lítið
land og verðum að samræmast
sambandinu. Þeir sem eru efins
um ESB nefna hluti eins og hefðir.
Bændur tala um hvernig þeir hafa
alltaf selt kotasælu á markaði og
að nú vilji ESB að þessari vöru
verði skýlt [þannig að bakteríur
komist ekki í hana]. Þetta er neyt-
endum til hagsbóta en þessir fram-
leiðendur mótmæla. Svo tala aðrar
raddir um skert fullveldi og menn-
ingararfleifð okkar, en heilt yfir
hafa ekki verið háværar raddir á
móti,“ segir hún.
Ef Króatía gengi ekki inn þyrfti
landið hvort sem er „að laga lög-
gjöf sína alveg að lögum ESB og
setja á fót Evrópusambandshæfar
stofnanir. Það myndi virka eins og
eyja sem er ekki hluti af ESB. En
við hefðum engan hag af því og
nytum engra styrkja,“ segir hún.
Þetta væri ósjálfbær staða.
Króatar sóttu um aðild að
ESB fyrir um átta árum, en hafa
unnið að henni mun lengur. Dr.
Samardzija var aðstoðarráðherra
í Evrópusamrunaráðuneytinu um
aldamótin og telur að vandi króat-
ískra aðildarsinna sé skortur á
almennri þekkingu á Evrópusam-
bandinu. Þessu þurfi stjórnvöld að
bæta úr svo fólk geti tekið upplýsta
afstöðu.
Allir flokkar í Króatíu styðja
inngöngu landsins, en almenn-
ingur sveiflast í afstöðu sinni.
Samardzija kveður það áhuga-
vert að þessu virðist öfugt farið
á Íslandi, þar sem meiri andstaða
við aðild hefur verið meðal stjórn-
málaelítunnar.
Hún telur Ísland geta gengið inn
fljótlega á eftir Króatíu, ef íslensk-
um stjórnvöldum tekst að leysa úr
innri málum. Með því vísar hún
til deilna um ferli[ innanlands og
milliríkjadeilu við Breta og Hol-
lendinga.
Slóvenar beittu neitunarvaldi
á aðildarviðræður Króata vegna
deilna um landamörk ríkjanna
og frystu viðræðurnar í 13 mán-
uði. Þessar deilur drógu úr vilja
Króata til aðildar. „Það er mjög
mikilvægt að leysa tvíhliða vanda-
mál því viðræður við ESB eru jú
viðræður við aðildarríkin.“
klemens@frettabladid.is
Ekkert nema
ESB er í boði
Þótt stór hluti Króata sé efins um ESB-aðild hefur
lítið heyrst af öðrum kostum. Dr. Samardzija segir
landið annað hvort ganga inn eða samræmast ESB
utan frá. Mikilvægt fyrir Ísland að leysa Icesave.
DR. VISNJA SAMARDZIJA Segir brýnt að íslensk stjórnvöld skapi samstöðu um
aðildarviðræður og leysi deiluna við Breta og Hollendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í fimmtán
mánaða fangelsi, þar af tólf á skil-
orði, fyrir heiftarlega líkamsárás.
Maðurinn var ákærður fyrir
að ráðast á annan mann í heima-
húsi í Reykjavík, slá hann í höfuð-
ið með bjórglasi og skera hann á
háls með glerbroti. Fórnarlambið
hlaut meðal annars tvo krosslaga,
djúpa skurði sem náðu 15 til 20
sentimetra þvert yfir hálsinn.
Mennirnir höfðu hist á bar og
farið þaðan saman heim til fórnar-
lambsins. Þar réðst hinn á húsráð-
andann, sló hann með bjórkönnu
í ennið, svo hún brotnaði og skar
hann svo á háls með glerbroti.
Árásarmaðurinn hringdi að því
búnu í unnustu sína, tjáði henni
að hann hefði drepið mann og ætl-
aði að ganga í sjóinn. Hún hringdi
þegar í lögreglu og tilkynnti um
málið. Húsráðandinn lá nakinn
að ofan og bjargarlaus á gólfinu
þegar lögregla kom að honum.
Hann reyndist vera með stóran
tætingslegan skurð á hálsinum,
sem mikið blæddi úr, þegar hlúð
var að honum á slysadeild.
Mennirnir gátu litlu ljósi varp-
að á aðdraganda árásarinnar fyrir
dómi, þar sem þeir höfðu verið
mjög ölvaðir þegar hún átti sér
stað, en dómurinn taldi sök árásar-
mannsins sannaða. Hann var
dæmdur til að greiða húsráðand-
anum 400 þúsund krónur í miska-
bætur. - jss
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás:
Dæmdur fyrir að slá
mann og skera á háls
FJÖLMIÐLAR Ný heildarlög um fjöl-
miðla voru samþykkt á Alþingi í
gær. 30 þingmenn greiddu atkvæði
með lögunum og 14 gegn þeim.
Markmið laganna er að stuðla
að tjáningarfrelsi, rétti til upplýs-
inga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og
fjölræði í fjölmiðlum. Með þeim á
að samræma löggjöf á alla íslenska
fjölmiðla, óháð því miðlunarformi
sem notað er. Einnig eiga þau að
efla vernd neytenda á vettvangi
fjölmiðla.
Í lögunum segir að mennta- og
menningarmálaráðherra skuli
skipa nefnd til að gera tillögur í
frumvarpsformi um viðeigandi
takmarkanir á eignarhaldi á fjöl-
miðlum.
Einn þingmaður gerði grein
fyrir atkvæði sínu, Sigurður Kári
Kristjánsson, og greiddi hann
atkvæði á móti frumvarpinu. Sig-
urður gagnrýndi að lögin tækju
ekki á eignarhaldi á fjölmiðlum.
Þá var staða Ríkisútvarpsins á
fjölmiðlamarkaðnum einnig gagn-
rýnd.
Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, hóf
umræður um frumvarpið á Alþingi
í gær og sagði álitaefni sem líta að
lögunum mörg, en samþykkt þeirra
væri engu að síður jákvætt skref
fyrir starf fjölmiðla í landinu. - sv
Ný lög um fjölmiðla voru samþykkt á Alþingi í gær með 30 atkvæðum gegn 14:
Samræmd lög um alla fjölmiðla
ÍSLENSKIR PRENTMIÐLAR Meginmark-
mið nýrra laga er að samræma löggjöf
um alla fjölmiðla landsins, óháð miðl-
unarformi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Tveir þriðju hlutar
þróunarlanda hafa náð, eða eru
við það að ná, markmiðum um að
taka á sárustu fátækt og hungri,
að því er upplýst var á kynningar-
fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans í gær.
Kynnt var skýrslan „Global
Monitoring Report 2011: Improv-
ing the Odds of Achieving the
MDGs“. MDG stendur fyrir Mill-
ennium Development Goals,
alþjóðleg markmið um að útrýma
sárustu fátækt.
Staða þróunarríkja er sögð mis-
jöfn. Þó lofi góðu að um helm-
ingur þeirra sem ekki hafi náð
markmiðunum sé nærri áætlun.
„Með bættri stjórnsýslu og öfl-
ugri vexti gætu þessi lönd enn
náð markmiðunum árið 2015 eða
fljótlega eftir það,“ segir í skýrsl-
unni. - óká
Barist við sárustu fátækt:
Tvö af þremur
halda áætlun
REYKJAVÍK Meirihlutinn í borgar-
ráði samþykkti á fundi sínum á
fimmtudag að hefja undirbún-
ing að sameiningu leikskóla-
sviðs, menntasviðs og þess hluta
íþrótta- og tómstundasviðs sem
heyrir nú undir skrifstofu tóm-
stundamála.
Nýtt svið mun hafa á að skipa
tæplega 30 milljörðum króna af
56 milljarða heildarútgjöldum
borgarinnar í ár.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
segir tillöguna afar óvænta. - þj
Breytingar hjá borginni:
Óvænt áform
um sameiningu
VEISTU SVARIÐ?