Fréttablaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 45
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Hrafnhildi Skúladóttur, fyrirliða Íslandsmeistara Vals í handbolta kvenna, finnst kósíhelgar heima bestar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þ
etta verður páska- og partíhelgi,“ segir Hrafnhildur sem í kvöld mun fagna Íslands-
meistaratitli Valskvenna þriðja kvöldið í röð í lokahófi á Hlíðarenda.
„Það venst ótrúlega vel að vinna og stórkostlegt að hampa bikarnum, ekki síst þar
sem fleiri höfðu trú á Fram-liðinu, en það hleypti nú bara enn meira kappi í okkur,“
segir Hrafnhildur, enn í sigurvímu og verðskuldaðri pásu fram yfir helgi.
„Við höfum spilað alla laugardaga í vetur og afar fátítt að ég eigi heila fríhelgi. Þegar það
gerist er draumurinn að upplifa algjöran frið, fuglasöng og notalegheit með fjölskyldunni
í sumarbústað, en gangi það ekki upp finnst mér best að vera heima í kósíheitum,“ segir
Hrafnhildur. Hún byrjaði að æfa handbolta á tólfta ári og hefur verið í landsliðinu síðastliðin
fjórtán ár, sem hún segir alltaf jafn skemmtilegt. Hún er kennari að mennt og kennir tíu ára
börnum í Hofsstaðaskóla.
„Nú kallar landsliðið á mánudag þegar við förum til Tyrklands og því tek ég dálítinn páska-
snúning um helgina, en ég þjófstartaði páskunum með páskaeggi sem er langt komið vegna
Tyrklandsferðarinnar,“ segir Hrafnhildur hláturmild og maulandi páskaeggsbrot með lítilli
dóttur sinni sem er heima með hlaupabólu.
„Ég hef því miður ekki alltof mikinn tíma fyrir blessuð börnin mín, en við höldum fast við
okkar ritúal þegar kósíhelgar gefast. Hluti af því er að naglalakka táslurnar á litlu skvísunni
minni, en svo spilum við líka borðspil og erum miklar félagsverur sem njótum þess að fá
gesti og heimsækja aðra,“ segir Hrafnhildur sem á skilningsríkan eig-
inmann og dæturnar Viktoríu Dís 10 ára og Alexöndru Ósk 3 ára.
„Handboltinn nýtur fulls stuðnings á heimilinu því annars mundi
þetta aldrei ganga upp. Karlinn minn tekur mikinn þátt í þessu,
mætir á alla leiki, og telur ekki eftir sér að vera með krakkana.
Sjálfur er hann mikið fjarverandi vegna sinnar vinnu og stund-
um mætumst við í útihurðinni þegar hann
fer út og ég kem inn. Dæturnar hafa van-
ist þessu lífi frá því að þær voru nokk-
urra mánaða því þá þurfti ég fljótt að
fara utan í langar landsliðsferðir. Því
fylgir að sjálfsögðu söknuður en á
sama tíma er alltaf jafn yndis-
legt að koma heim á ný og það
þýðir lítið að vera með sam-
viskubit, enda tók ég ákvörð-
un um að vera í boltanum
alla leið og þá kostar það
þetta.“
thordis@frettabladid.is
Þjófstartar páskunum
S.L.Á.T.U.R (samtök listrænt ágengra tónsmíða
umhverfis Reykjavík) munu láta að sér kveða á
sýningunni Hjóðheimum sem stendur yfir í Lista-
safni Íslands í dag. Tónskáldin flytja bæði fyrirlestra
um tónsmíðaaðferðir og halda tónleika þar sem
verk þeirra verða flutt. Dagskráin hefst klukkan 13
og stendur til 15.45.
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19,900 til
37,900 kr.
Yfi rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Toppvö
rur
toppþjó
nusta.
Mjúka fermingargjöfin
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.isNýtt kortatímabil
Rúmföt frá 6.960 kr
Fallegar gjafir á fermingartilboði
sendum frítt á pósthús
www.lindesign.is
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði & Glæsileiki
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing