Fréttablaðið - 23.04.2011, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 23. apríl 2011
LEX óskar eftir
lögfræðingum og
aðstoðarmanni
lögmanna
LEX er ein öflugasta lögmannsstofa landsins með yfir 40
lögfræðinga og um 60 starfsmenn alls. LEX veitir þjónustu á
öllum sviðum lögfræðinnar og vegna aukinna umsvifa leitum
við að lögfræðingum og aðstoðarmanni lögmanna til starfa á
skrifstofu okkar í Reykjavík.
Lögfræðingar
Skilyrði er að viðkomandi hafi fullnaðarpróf í íslenskum
lögum og kostur að viðkomandi hafi hdl. réttindi. Mjög gott
vald á íslensku og ensku og sjálfstæði í vinnubrögðum
nauðsynlegt.
Aðstoðarmaður lögmanna
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku og
góða alhliða tölvukunnáttu. Í starfinu felst að taka virkan
þátt í þjónustu við viðskiptavini stofunnar og geta tekist á
hendur fjölbreytt verkefni í því skyni. Skipulögð og vönduð
vinnubrögð eru skilyrði sem og samskiptahæfileikar.
Nánari upplýsingar veitir Heimir Örn Herbertsson hrl.,
faglegur framkvæmdastjóri LEX, í síma 590 2600 eða á
heimir@lex.is.
Umsóknarfrestur er til 5. maí.
LEX LÖGMANNSSTOFA
Starfsfólk LEX starfar undir kjörorðunum
Heiðarleiki – Trúnaður – Fagmennska og leggur
metnað sinn í að veita öllum viðskiptavinum
stofunnar vandaða, trausta og skjóta þjónustu.
TÆKNITEIKNARI ÓSKAST
Ferill ehf verkfræðistofa óskar eftir að ráða
tækniteiknara í fullt starf.
Starfssvið:
Teiknivinna í Autocad og Revit.
Umsjón með útgáfu teikninga og annarra
hönnunargagna.
Aðstoð og/eða umsjón með kynningarmálum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Viðtæk þekking á Autocad er skilyrði.
Þekking á Revit og Magicad er kostur.
Góð tök á íslensku máli.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Í boði er skemmtilegur vinnustaður og fjöldi
spennandi verkefna framundan.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Frekari upplýsingar um starfið eru veittar
í síma 575 1600.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið:
ferill@ferill.is fyrir 28. apríl nk.
Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 500 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
BYGGINGARVERKFRÆÐINGUR
BYGGINGARTÆKNIFRÆÐINGUR
ÍSTAK óskar eftir að ráða byggingarverkfræðing eða byggingartækni-
fræðing til starfa. Við leitum er að dugmiklum einstaklingi til framtíðar-
starfa í umsjón og stjórnun verklegra framkvæmda. Þar sem stærsti hluti
verkefna okkar er enn erlendis, er mikilvægt að viðkomandi sé tilbúinn að
starfa tímabundið utan landsteinanna. Um er að ræða fjölbreytt starf við
úrlausn tæknilegra verkefna sem krefst þess að viðkomandi hafi víðtæka
reynslu af byggingaframkvæmdum.
Hæfniskröfur:
• Menntun á sviði byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði er skilyrði.
• Gott vald á norsku eða öðru norðurlandamáli er æskilegt.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Meðal verkefna:
• Verkefna- og framkvæmdastjórnun.
• Rekstur verksamninga.
• Samningar við innlenda og erlenda birgja.
• Úrlausn tæknilegra verkefna.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí næstkomandi.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU