Fréttablaðið - 23.04.2011, Blaðsíða 31
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
2
Endurfundir við ættingja og bókaumræða eru á döfinni hjá Kristínu Evu Þórhallsdóttur um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Spilar
skító við
krakkana
K
ristín Eva Þórhallsdóttir er íslenskum börn-
um að góðu kunn úr starfi sínu sem stjórn-
andi útvarpsþáttarins Leynifélagið á Rás 1,
ásamt Brynhildi Björnsdóttur. Þær stöllur
stjórna líka morgunsjónvarpi barnanna á laugardags-
morgnum á RÚV, Morgunstundinni okkar. Vinnutíminn
krefst talsverðs skipulags og utan hans leggur Kristín
Eva mikið upp úr því að vera með fjölskyldunni.
„Við maðurinn minn Kolbeinn höfum alltaf lagt
áherslu á að vera með börnunum okkar, þeim Huga (11
ára) og Kolfinnu (sjö ára), og veita hugðarefnum þeirra
athygli. Við spjöllum saman um lífið og tilveruna,
bækur og annað sem þeim finnst spennandi. Undanfar-
ið höfum við fjölskyldan líka verið að taka í spil. Vin-
sælasta spilið núna kallast skítakall eða skító,“ segir
hún létt í bragði.
Fjölskyldan er líka á kafi í íþróttum. Sonurinn á
heimilinu stundar skylmingar á laugardögum á meðan
restin af fjölskyldunni skellir sér gjarnan í sund og
þegar vel viðrar eru reiðhjólin dregin fram. Yfirleitt er
ekki annað skipulagt um helgar nema á föstudögum en
þá býr húsbóndinn alltaf til pitsu „sem þykir sú besta í
heimi. Að minnsta kosti á mínu heimili,“
Gilitrutt Páskasýning verður á brúðuleikritinu Gilitrutt
í Brúðuheimum í dag. Bernd Ogrodnik hannar brúð-
urnar en leikritið er í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Uppselt er á sýninguna klukkan 14 en aukasýning er
klukkan 16 og einnig klukkan 14 á morgun, páskadag.
Mjúka fermingargjöfin
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Sendum frítt á pósthús!
100% Pima bómull - einstök mýkt
www.lindesign.is
Rúmföt frá 6.960 kr
Opnunartími um páskana:
Sprengisandur: laugardagur opið – páskadagur opið – annar í páskum opið
Tryggvagata: laugardagur opið – páskadagur lokað - annar í páskum frá k. 16:00