Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 31

Fréttablaðið - 23.04.2011, Page 31
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 2 Endurfundir við ættingja og bókaumræða eru á döfinni hjá Kristínu Evu Þórhallsdóttur um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Spilar skító við krakkana K ristín Eva Þórhallsdóttir er íslenskum börn- um að góðu kunn úr starfi sínu sem stjórn- andi útvarpsþáttarins Leynifélagið á Rás 1, ásamt Brynhildi Björnsdóttur. Þær stöllur stjórna líka morgunsjónvarpi barnanna á laugardags- morgnum á RÚV, Morgunstundinni okkar. Vinnutíminn krefst talsverðs skipulags og utan hans leggur Kristín Eva mikið upp úr því að vera með fjölskyldunni. „Við maðurinn minn Kolbeinn höfum alltaf lagt áherslu á að vera með börnunum okkar, þeim Huga (11 ára) og Kolfinnu (sjö ára), og veita hugðarefnum þeirra athygli. Við spjöllum saman um lífið og tilveruna, bækur og annað sem þeim finnst spennandi. Undanfar- ið höfum við fjölskyldan líka verið að taka í spil. Vin- sælasta spilið núna kallast skítakall eða skító,“ segir hún létt í bragði. Fjölskyldan er líka á kafi í íþróttum. Sonurinn á heimilinu stundar skylmingar á laugardögum á meðan restin af fjölskyldunni skellir sér gjarnan í sund og þegar vel viðrar eru reiðhjólin dregin fram. Yfirleitt er ekki annað skipulagt um helgar nema á föstudögum en þá býr húsbóndinn alltaf til pitsu „sem þykir sú besta í heimi. Að minnsta kosti á mínu heimili,“ Gilitrutt Páskasýning verður á brúðuleikritinu Gilitrutt í Brúðuheimum í dag. Bernd Ogrodnik hannar brúð- urnar en leikritið er í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Uppselt er á sýninguna klukkan 14 en aukasýning er klukkan 16 og einnig klukkan 14 á morgun, páskadag. Mjúka fermingargjöfin Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is Sendum frítt á pósthús! 100% Pima bómull - einstök mýkt www.lindesign.is Rúmföt frá 6.960 kr Opnunartími um páskana: Sprengisandur: laugardagur opið – páskadagur opið – annar í páskum opið Tryggvagata: laugardagur opið – páskadagur lokað - annar í páskum frá k. 16:00

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.