Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 4

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 4
7. maí 2011 LAUGARDAGUR4 TÆKNI Margar tækninýjungar síð- ustu ára og áratuga komu fyrst fram sem hugmyndir til að bæta líf fatlaðra. Þetta segir Hilmar B. Janusson, framkvæmdastjóri hjá Össuri hf, sem heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands í dag. Hilmar fjallar um rannsóknir Össurar á hreyfingu og hreyfi- hömlun og hvernig þær auka skilning á tilgangi og mikilvægi hreyfingar. Hann segir rannsókn- ir Össurar, sem er annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heimi, hafi sett fyrirtækið í fremstu röð. „Á sjóndeildarhringnum í rann- sóknum og þróun fyrir fatlaða eru tæki og tækni sem eiga eftir að nýtast við þróun á almennum tæknivörum.“ Fyrirlesturinn er hluti af röð hátíðarfyrirlestra háskólarektors í tilefni af aldarafmæli skólans. Hann hefst klukkan 14 í hátíðar- sal Háskólans og er öllum opinn. - þj Fjallar um tæki fyrir fatlaða: Tækninýjungar sem nýtast vel SVEITARSTJÓRNARMÁL Hugmynd um sérstakan húsbílagarð í Reykjavík hefur verið rædd innan kerfis ins en ekki hefur verið unnið neitt frekar með hana, að sögn Hrólfs Jónssonar, sviðstjóra fram- kvæmda- og eignasviðs borgar- innar. „Svona framkvæmd skapar ekki bara störf á meðan á henni stendur, heldur gæti hún hugsan- lega skapað tvö til þrjú störf til framtíðar,“ segir Hrólfur. Á tjaldstæðinu í Laugardal geta 48 húsbílar fengið rafmagn sam- tímis, að því er Markús Einars- son, framkvæmdastjóri Farfugla, greinir frá. ,,Það koma dagar þegar allt er fullt en við getum gert ráð fyrir að við sinnum þessu vel 80 prósent af dögunum.“ Flestir húsbílagestanna eru útlendingar eða 80 til 90 prósent. ,,Íslendingar hafa farið á Vífils- staða túnið. Það er rólegra þar.“ Aðstöðunni til losunar úrgangs á tjaldstæðinu í Laugardal var lokað þegar borgin kom upp slíkri aðstöðu í Sundahöfn. ,,Það var orðið töluvert um að Íslendingar kæmu í helgarlok og vildu fá að losa sig við úrganginn hjá okkur áður en borgin kom upp aðstöð- unni í Sundahöfn.“ - ibs Rædd hefur verið hugmynd um sérstakan húsbílagarð í Reykjavík: Stundum fullt í Laugardalnum VINSÆLL FERÐAMÁTI Ferðalöngum á húsbílum fjölgar stöðugt. DANMÖRK Dönsk ungmenni hafa fengið gríðarlegan áhuga á sagn- fræði. Lesendum tímaritsins Historie og vefsíðu þess, www. historienet.dk, fjölgaði um 600 prósent í fyrra. Í hverjum mánuði heimsækja 130 þúsund gestir síðuna og er fjórði hver þeirra á aldrinum 15 til 25 ára. Svipuð þróun hefur átt sér stað hjá keppinautnum, tímaritinu Alt om Historie. Ritstjóri þess, Thomas Oldrup, telur helstu ástæðuna vera þá að ný kynslóð sagnfræðinga miðli fræðunum á hátt sem nær betur til unga fólks- ins. - ibs Ungir Danir skoða söguna: 600 prósentum fleiri lesendur BEIRÚT, AP Öryggissveitir skutu til bana þrjátíu mótmælendur í nokkrum borg- um og bæjum í Sýrlandi í gær. Fólkið krafðist afsagnar Bashars Assad forseta og víð- tækra umbóta á stjórnarháttum landsins. Mótmæli gegn stjórn- völdum hafa staðið yfir víða um land frá lokum síðasta árs. Harka stjórnarhersins gegn þeim hefur færst mjög í aukana þrátt fyrir andstöðu alþjóðasamfélagsins. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins (ESB) samþykkti í gær að beita þvingunum gegn Sýrlandi til að draga úr ofbeldinu. Aðgerðirnar fela í sér að þrettán ráðherrum er meinað að ferðast til ESB-ríkjanna. - jab ESB beitir sér gegn Sýrlandi: Þrjátíu myrtir í mótmælum EFNAHAGSMÁL Gistinóttum á hótel- um í mars síðastliðnum fjölgaði um 1,5 prósent samanborið við mars í fyrra, samkvæmt saman- tekt Hagstofu Íslands. Gistinóttum Íslendinga fjölgar milli ára en heldur færri erlendir ferðamenn gistu hér á landi í mars. Alls voru gistinætur í mars 96.900 talsins, sem þýðir að hverja nótt mánaðarins gistu að meðal- tali 3.126 á hótelum landsins. Gistinóttum fjölgaði í öllum lands- hlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi. - bj Gistinóttum fjölgar lítillega: Heldur færri erlendir gestir BASHAR ASSAD GENGIÐ 06.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 217,999 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,71 113,25 184,98 185,88 163,72 164,64 21,952 22,080 20,584 20,706 18,155 18,261 1,4032 1,4114 181,09 182,17 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Í Fréttablaðinu í gær birtist frétt um sýningu nemenda í Myndlista- skólanum í Reykjavík. Fram kom að um útskriftarnema væri að ræða en það er rangt; nemendurnir hyggjast útskrifast á næsta ári. Ranghermt var í Fréttablaðinu á fimmtudag að dr. Daniel Levin væri stjórnarformaður Íslandsbanka. Hið rétta er að hann er nýr stjórnarmaður. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING Vegna fréttar í blaðinu í gær um frestun framlaga Reykjavíkurborgar til íþróttamannvirkja vill Haukur Haralds- son, framkvæmdastjóri ÍR, undirstrika að ákveða á fyrir 1. febrúar 2014 hvað verður um áður ákveðið tveggja milljarða framlag til félagsins. ÁRÉTTING Námskeið fyrir verðandi leiðsögumenn með hreindýraveiðum Umhverfisstofnun auglýsir fyrirhugað námskeið fyrir verðandi leiðsögumenn með hreindýraveiðum. Námskeiðið verður haldið á Egilsstöðum 9-12. júní og námskeiðsgjaldið er 160.000 kr. Eingöngu verður tekið við umsóknum í gegnum umsóknarkerfi á hreindyr.is en opnað verður fyrir skráningu kl.12 mánu- daginn 9. maí. Umsóknir sem berast á annan máta verða ekki teknar gildar. Allar nánari upplýsingar eru á ust.is og hreindyr.is Umsóknafrestur er til og með 16. maí VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 25° 24° 19° 26° 27° 16° 16° 20° 22° 24° 22° 31° 17° 25° 15° 14° Á MORGUN 5-10 m/s. MÁNUDAGUR Stíf NA-átt NV-til, annars víða 5-13 m/s. 11 10 9 9 9 5 8 9 9 8 5 12 4 4 4 2 5 10 6 10 7 3 4 6 8 14 5 8 10 5 10 9 VÆTA EYSTRA Það þykknar heldur upp austan til á landinu í dag og má jafn- vel búast við væta norðaustanlands í kvöld. Skýjað norð- an og austan til og kólnar á morgun en horfur á bjart- viðri um sunnan og suðvestanvert landið og allt að 17 stiga hita. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður FRÉTTASKÝRING Hvaða áhrif geta kjarasamningar ASÍ og Samtaka iðnaðarins haft á íslenskt efnahagslíf? Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ), undirrituðu á fimmtudag kjarasamninga eftir eina hörðustu samningalotu seinni ára. Samning- arnir hljóða upp á 11,0 prósenta launahækkun á þremur árum auk 75 þúsund króna sem verða greidd- ar út í þrennu lagi. Nokkrir fyrir- varar eru gerðir við samninginn sem þurfa að ganga eftir. Álitsgjafar um íslenska efna- hagsþróun segja samningana tefla endurreisn efnahagslífsins í tví- sýnu. Í fyrsta lagi sé óvíst hvort hluti atvinnulífsins sem ekki hafi tekjur sínar af útflutningi geti borið þær byrðar sem kjarasamn- ingarnir fela í sér næstu ár. Þá kunni væntanlegar launahækkanir að auka verðbólgu næstu misserin. Þessi þróun muni éta upp þá kaup- máttaraukningu sem kjarasamn- ingarnir eigi að fela í sér. „Mér finnst vel í lagt og óttast að afleiðingin geti orðið sú að inn- lendi geirinn velti áhrifunum út í verðlag, segi upp fólki, minnki vinnutíma starfsfólks eða hægi á ráðningum,“ segir Þórarinn G. Péturs son, aðalhagfræðingur Seðlabankans. Hann bætir við að þetta sé að gerast fyrr en búist var við miðað við hvað vinnu- markaðurinn sé enn veikur. Þórarinn segir að hlutverk seðlabanka við þessar aðstæður sé að koma í veg fyrir víxlverk- un launa og verðlags. Þetta gæti því þýtt aðhaldssamari peninga- stefna og hærra vaxtastig en ella hefði verið. Miðað við núverandi atvinnuleysi væri æskilegra að geta lækkað stýrivexti meira. „Mér finnst þetta miður,“ bætir Þórarinn við. Í svipaðan streng tekur Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður Greiningardeilar Arion banka. „Ég held að samningarnir muni auka verðbólgu næstu misserin og halda atvinnuleysi hærra uppi en ella,“ segir hún og bætir við að djarft sé teflt; efnahagsbatinn sé veikur og þurfi lítið til að ýta honum út af sporinu. jonab@frettabladid.is Telja djarft teflt í nýjum samningum Launahækkanir sem ASÍ og SA sömdu um í fyrradag þykja háar. Líklegt þykir að þær fari út í verðlag og éti verðbólga upp þá kaupmáttaraukningu sem í þeim á að felast. „Þetta er miður,“ segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. Kaupmáttur launa jókst um 50 prósent á þeim tólf árum sem Sjálfstæðis- flokkurinn var í ríkisstjórn, um 3,5 prósent á ári. Það hefði átt að vera sterk vísbending um að eitthvað yrði að gefa eftir þar sem kaupmáttaraukning umfram eitt til 1,5 prósent á ári er ekki raunhæf til lengdar. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði vikuritsins Vísbendingar. Þar segir að þrátt fyrir hrunið hafi árleg kaupmáttaraukning frá 1995 numið nærri 1,8 prósentum, sem sé enn of mikið. Þá segir enn fremur að áætla megi að kjarasamningarnir og aðgerðir þeim tengdar muni kosta ríkissjóð um sextíu milljarða króna á samningstímanum. Það rími illa við áætlun um hallalaus fjárlög árið 2013. „Hér virðist farin gríska leiðin um að láta hverju ári nægja sína þjáningu,“ segir í Vísbendingu og er hnýtt við að lærdómurinn af hruninu sé ekki meiri en þetta. Kaupmáttur var allt of mikill fyrir hrun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.