Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 8
7. maí 2011 LAUGARDAGUR8
1 Hvað áttu framkvæmdir að kosta
sem borgin var búin að lofa íþrótta-
félögum en hefur nú verið frestað?
2 Hve mikið af drykkjarumbúðum
skilar sér í endurvinnslu í hverjum
mánuði?
3 Hvað knýr nýjan Volvostrætó sem
Strætó bs. er með til prufu næstu
vikur?
SVÖR
1. Níu þúsund þrjú hundruð og níutíu
milljónir króna. 2. Tíu milljón flöskur og
dósir. 3. Tvinnvél, dísil og rafmagn.
FÓLK „Það var leitað til mín. Ég var
ekki að sækjast eftir starfi nema
síður sé,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, fyrrverandi borgar-
stjóri, sem ráðinn hefur verið
framkvæmdastjóri hjúkrunar-
heimilanna Eirar og Skjóls fram
á haust.
Eir og Skjól eru sjálfseignar-
stofnanir sem starfa samkvæmt
lögum og þiggja daggjöld frá
ríkinu. Stofnununum er stýrt af
stjórnum sem kosnar eru af full-
trúaráðum, Í þau skipa ýmis bæjar-
félög og félagasamtök. Vilhjálmur,
sem verið hefur stjórnarformaður
Eirar í áratug, segir að fyrr verandi
forstjóri hafi verið að hætta en á
sama tíma var nýtt fulltrúaráð
skipað og ný stjórn kosin.
„Það var leitað til mín á þess-
um tímamótum og ég beðinn um
að gera þetta tímabundið,“ segir
Vilhjálmur sem hafnar því alfarið
að nokkuð sé óeðlilegt við það að
hann hafi verið ráðinn tímabundið
án auglýsingar. Slíkt tíðkist víða,
til dæmis hjá Reykjavíkurborg og
ríkinu, og jafnvel til lengri tíma.
Fram kom í Fréttatímanum í
gær að forveri Vilhjálms, Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson, hafi haft
samtals 1.440 þúsund krónur á
mánuði að bílastyrk meðtöldum.
Vilhjálmur segir að að launakjör
hans muni taka mið af efnahags-
ástandinu. Hann verði á eigin bíl
og launin lækki um nokkur hundr-
uð þúsund krónur – eins og hann
sjálfur hafi lagt til fyrir allnokkru
þegar nefnt var að hann myndi
taka starfið að sér.
„Ég hef aldrei verið á ofur-
launum og aldrei sóst eftir því,“
segir Vilhjálmur, sem kveður
framkvæmdastjórastarfið verða
auglýst fljótlega og að hann muni
ekki sækja um. „Það er ekki verið
að búa í haginn fyrir mig með þess-
ari tímabundnu ráðningu.“ - gar
Ráðinn forstjóri Eirar fram á haust án auglýsingar:
Hef aldrei fengið né
sóst eftir ofurlaunum
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Ný stjórn Eirar kaus Vilhjálm einróma áfram sem
stjórnarformann en hann stígur til hliðar úr því embætti á meðan hann gegnir starfi
framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilisins fram á haust. Hér ræðir Vilhjálmur við Emil
Theodór Guðjónsson og Birnu Kristínu Svavarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
11
13
4
FYRIRLESTRARÖÐ Á ALDARAFMÆLI HÁSKÓLA ÍSLANDS
HREYFING MANNSINS
Frá hreyfihömlun til afreka. Hvernig geta verkfræðilegar lausnir
fyrir hreyfihamlaða orðið hreyfingu allra til framdráttar?
Dr. Hilmar B. Janusson hefur verið í fararbroddi hönnunar- og
þróunarteymis Össurar frá 1992. Hann flytur erindi í röð
hátíðarfyrirlestra rektors á aldarafmæli Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu,
laugardaginn 7. maí kl. 14.
Allir velkomnir.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
um nýgerðan kjarasamning VR og SA verður haldinn
mánudaginn 9. maí nk. kl. 19:30 á Hilton Nordica hótel.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta.
Félagsfundur VR
DANMÖRK Árið 2009 fengu 16 börn
undir fjögurra ára aldri í Dan-
mörku lyfseðla upp á þunglyndis-
lyf. Fjöldinn var svipaður árin
þar á undan. Þessar tölur koma
frá Lyfjastofnun Danmerkur sem
safnar upplýsingum um lyfsölu.
Í viðtali við danska blaðið BT
kveðst Torsten Schumann, yfir-
læknir á geðdeild fyrir börn og
unglinga á Augustenborg-sjúkra-
húsinu, ekki geta ímyndað sér að
fólk með fullu viti meðhöndli börn
undir sjö ára aldri með þunglyndis-
lyfjum. - ibs
Deilt á lyfjagjöf Dana:
Yngri en 4 ára
fá þunglyndislyf
TÆKNI Lögregla í Norður-Kóreu
hefur upp á síðkastið gert upptæka
farsíma af landsmönnum sem grun-
ur leikur á að hafi verið smyglað inn
í landið frá Kína.
Flóttamenn frá Norður-Kóreu
segja yfirvöld óttast að fólk noti
farsímana til að hópa fólki saman í
þeim tilgangi að koma stjórnvöldum
frá með svipuðum hætti og í Egypta-
landi og Líbíu. Af sömu ástæðu eru
farsíma teknir af erlendum ferða-
mönnum við komuna í landið.
Farsímanotkun í Norður-Kóreu
hefur aukist mikið upp á síðkastið.
Í fyrra voru skráðir farsímar 450
þúsund talsins, sem er tvöföldun á
milli ára, samkvæmt upplýsingum
netmiðilsins Mobiledia. Farsíma-
kerfi landsins er sömuleiðis mjög
hamlandi; stjórnvöld safna upplýs-
ingum um notkunina og fylgjast
grannt með millilandasímatölum.
Erlendir fjölmiðlar hafa um nokk-
urt skeið greint frá því að íbúar
í Norður-Kóreu hafi brugðist við
hindrunum stjórnvalda með því að
fara til bæja sem liggja við landa-
mæri Rússlands og Kína. Þaðan geti
þeir tengst erlendum farsímakerfum
og haft samband við ættingja og vini
sem flúið hafi land. Mobiledia bend-
ir á að þeir sem bregði á það ráð tak-
marki farsímanotkun sína við fimm
mínútur í hvert sinn. Eftir það geti
stjórnvöld rekið símtölin. - jab
Stjórnvöld í Norður-Kóreu óttast að almenningur reyni að koma þeim frá:
Herða eftirlit með farsímum
STÚLKUR SKOÐA SÍMANA Farsíma-
notkun í Norður-Kóreu eru háð miklum
takmörkunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
VEISTU SVARIÐ?