Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 17

Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 17
LAUGARDAGUR 7. maí 2011 Ég naut þess á dögunum að vera viðstaddur opnun sýningar á íslenskri hönnun sem fram fór í gömlu netagerðarhúsnæði vest- ur á Granda á annarri hæð í lyftu- lausu húsi. Sýnt var á stórum fleti margskonar hlutir, húsgögn og ýmsir nytjahlutir. Ég fór fremur hratt yfir, enda ekki margir hlutir sem sérstaklega vöktu athygli mína fyrir góða og áhugaverða hönnun. Á meðan ég var staddur á sýningunni átti ég símtal við kollega minn og samstarfsmann Pétur B. Lúthers- son húsgagna- og innanhússarki- tekt sem spurði mig frétta af sýn- ingunni. Ég svaraði honum á þann veg „að þetta minnti mig helst á vor- sýningu frá hönnunarskóla okkar í Kaupmannahöfn á árunum 1963- 64“. Síðan ég gaf þetta svar hefur það sótt sífellt meira á mig hvort ég hafi svarað alveg út í bláinn, eða verið að gera lítið úr því mikla starfi sem þátttakendur sýningarinnar höfðu lagt á sig. Niðurstaða mín er að ekki hafi svo verið. Ég kemst hinsvegar að þeirri niður stöðu að hér á landi hafi orðið gríðarleg stöðnun í mörg- um greinum hönnunar og þá einkum húsgagna. Það eru þó sem betur fer undantekningar á þessu því hlutur eldri hönnuða hefur staðið sína vakt og nokkrir yngri hönnuðir, einkum konur, hafa staðið sig vel. En hvað hefur þá brugðist. Ekki vantar það að stofnaður hafi verið Listaháskóli og einstaklingum með starfsheitið „listamaður“ fjölgað. Ég tel mig verða mjög varan við að ýmis atriði í námi yngri hönn- uða virðast látin reka á reiðanum. Eitt þeirra mikilvægasta er hand- verkið og þekking á efninu sem ætlað er að vinna úr. Margt hefur breyst í þeim efnum á síðari árum bæði í námskrám og framkvæmd. Eitt af því sem ég saknaði mjög á umræddri sýningu var handverkið. Ég hef tekið eftir því að í greinum sem skrifaðar hafa verið um sýn- inguna er vitnað m.a. til dansks fyrir tækis sem nánast hafi viljað gera hér ein allsherjar innkaup á góðum hugmyndum til framleiðslu erlendis. Í þessu samhengi vil ég benda á þá staðreynd að Danir hafa ávallt lagt áherslu á að góðri hönnun fylgi listahandverk. Nú er ekki svo að við Íslendingar ekki eigum góða handverksmenn þó ekki hafi verið hlúð að þeirri grein listiðna. Það er einnig svo að okkur hefur borið gæfa til að varðveita þennan þátt í afbragðsgóðum verkmenntaskólum svo sem Tækniskóla Íslands (áður Iðn skólanum í Reykjavík) og Iðn- skóla Hafnarfjarðar. Mér er reynd- ar ekki kunnugt um hvort eitthvert samstarf sé milli skóla svo sem þessara tveggja og Listaháskóla Íslands. Ef svo er ekki, mætti leysa úr brýnni þörf. Þetta væri t.d. hægt að gera með aðstoð við gerð frum- smíða. Það hafa dæmin sannað að ef þú þekkir takmörk þín og möguleika áttu auðveldara með að vinna hönn- un þinni brautargengi. Ég tel t.d. að ein megin ástæða fyrir góðu gengi fata- og textilhönnunar sé sá arfur sem ungt fólk fær nánast með móð- urmjólkinni þar sem listhneigð og listahandverk íslenskra kvenna fer saman. Að þessu ættu skólayfirvöld að huga, m.a. að stuðla að auknum tengslum milli skólastofnana þann- ig, að ef einn skólinn getur boðið upp á starf sem hinn getur ekki þá að virkja sameiginlegan styrk beggja. Við opnun framangreindrar sýn- ingar flutti Katrín Júlíus dóttir iðn- aðarráðherra ræðu þar sem hún færði rök fyrir því að störf við hönn- un skiptu þjóðar búið verulegu máli. Þetta eru reyndar ekki ný sannindi en hafa ekki verið dregin fram í dagsljósið fyrr. Síðan Ísland gekk í EFTA hafa nánast öll fyrir tæki sem starfað hafa við smíði húsgagna lagst af. Land sem hefur efni á því að fara þannig með fjöreggið ætti að skoða hug sinn um að styrkja vel við smíði frumgerða og á þann hátt að snúa dæminu við, þannig að besta hönnunin sé framleidd hér heima og aflað markaða fyrir vöruna. Andvaraleysi og skortur á rök- studdri gagnrýni er eitt þeirra atriða sem há okkur Íslendingum. Við göngum um með lokuð augun og látum bera á borð fyrir okkur nánast hvað sem er. Ég vil því gera kröfu til þess að menn gangi um sali hönnunar og skóla með opnum gagn- rýnum augum svo gera megi góðar hugmyndir og hluti betri. Andvaraleysi og skortur á rök- studdri gagnrýni er eitt þeirra atriða sem há okkur Íslendingum. Hugleiðingar að loknum Hönnunarmars 2011 ÖSKJUHLÍÐARDAGURINN 2011 SKÓGUR Í BORG! Komdu í Háskólann í Reykjavík laugardaginn 7. maí! Taktu þátt í ratleik í Öskjuhlíðinni, farðu í siglingu í Nauthólsvík, kynnstu Öskjuhlíðinni í skemmti- legri gönguferð með leiðsögn, hlustaðu á Ragga Bjarna og Gleðisveit lýðveldisins, lærðu allt um vorverkin í garðinum, að búa til moltu og farðu í sjósund í Nauthólsvík. Sjáðu stóra skógarsög að verki, heimsæktu börnin í Barnaskóla Hjallastefn- unnar og hlýddu á bestu ljóðskáld þjóðarinnar í skóginum í Öskjuhlíð. DAGSKRÁ 11:00 Borgarstjóri setur Öskjuhlíðarhátíðina í Háskólanum í Reykjavík 11:00–11:30 Kynning á samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarperluna Öskjuhlíð 11:30–12:30 Moltugerð – Jón Gnarr borgarstjóri kennir gestum að búa til moltu 11:30–13:00 Rathlaupsleikur um Öskjuhlíðina fyrir alla aldurshópa 12:00–13:30 Fjölskylduganga með leiðsögn um Öskjuhlíð – Fuglarnir í skóginum Stefán Pálsson sagnfræðingur, Yngvi Þór Loftsson landslagsarkitekt og Steinar Björgvinsson skógfræðingur 13:30–13:45 Ljóðin í skóginum – Þórarinn Eldjárn og Gerður Kristný* 12:30–13:00 Ragnar Bjarnason syngur fyrir gesti í aðalbyggingu HR 13:00–14:00 Sjóbað í Nauthólsvík 13:00–14:00 Fræsöfnun & sáning – Kristinn Þorsteinsson garðyrkjufræðingur 13:00–15:00 Hjálparsveit skáta í Kópavogi býður fólki í siglingu um Fossvog 14:30–15:30 Fjölskylduganga með leiðsögn um Öskjuhlíð – Fuglarnir í skóginum Stefán Pálsson, Yngvi Þór Loftsson og Steinar Björgvinsson 15:30–15:45 Ljóðin í skóginum – Vilborg Dagbjartsdóttir og Sigurður Pálsson* 15:00–15:30 Gleðisveit lýðveldisins leikur og syngur fyrir gesti í aðalbyggingu HR 15:00–16:00 Vorverkin – Kristinn Þorsteinsson leiðbeinir gestum um vorverk í görðum HR-bandið hitar upp fyrir daginn frá kl. 10:30–11:00 Barnaskóli Hjallastefnunnar verður með opið hús og kynnir starfsemi sína og verk nemenda Skógarhögg og vinnsla. Skógarsög sem breytir trjám í verðmæti verður á bílaplani HR frá kl. 10:00–11:00 og 16:00–17:00 List án landamæra. Sýning á verkum starfsmanna Vinnustofa Skálatúns Gagnvirk listaverk nemenda úr tækni- og verkfræðideild HR og Listaháskóla Íslands verða til sýnis í Sólinni í HR * Ljóðaflutningur er í lok gönguferðar 7. M A Í A nn et ta S ch ev in g www.oskjuhlid.is VEITINGAR Te & kaffi í Háskólanum í Reykjavík Nauthóll | Perlan | Barnaskóli Hjallastefnunnar Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga Ársfundur 2011 Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl.16.00, í sal BHM að Borgartúni 6, Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins 2. Breyting á samþykktum 3. Önnur mál löglega upp borin Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins. Reykjavík, 5. maí 2011. Stjórn Lífeyrissjóðs stafsmanna sveitarfélaga Hönnun Jón Ólafsson húsgagna- og innanhússarkitekt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.