Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 22

Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 22
7. maí 2011 LAUGARDAGUR22 Þ að var tónlistarsagnfræðingur- inn og poppnördinn Óttar Felix Hauksson sem uppgötvaði að þetta er fyrsta alvöru íslenska soul-platan með frumsömdu efni. Hann færði fyrir því sterk rök að svo væri, en ég var efins og minnti hann á Sálina hans Jóns míns. Þá sagði Óttar Felix að Sálin væri poppband en ekki hreinræktað soul-band. Hann hélt því líka fram að enn og aftur væri ég að brjóta blað í íslenskri tón- listarsögu,“ segir Bubbi Morthens um nýju plötuna sína, Ég trúi á þig, sem kemur út á afmælisdegi tónlistarmannsins, hinn 6. júní næstkomandi. Nú þegar hefur almenningur fengið smjör- þef af plötunni með lögunum Sól, Ísabellu, sem hefur verið eitt vinsælasta lag landsins síðustu vikur og mánuði, og Blik þinna augna sem fór í spilun rétt fyrir helgi. Tvo áratugi á leiðinni Kolbikasvört sálartónlist er dagsskipunin á Ég trúi á þig, sem söngvarinn segir hafa verið lengi í vinnslu og í raun tvo áratugi á leiðinni. Hann hafi alist upp við tilfinningaríkar raddir söngvara á borð Otis Redding, James Brown, Tinu Turner, Curtis Mayfield og Sam Cooke (sá síðastnefndi er sá besti að mati Bubba) og alla tíð haft á þeim dálæti, en einhverra hluta vegna hafi ekki verið til staðar mannskapur á Íslandi til að spila þessa tegund tónlistar á sínum tíma. „Ég hef gert nokkrar tilraunir í þessa veru, til dæmis í lögunum Sumar konur og Fjórir naglar, sem er hreinræktað „soul“,“ segir Bubbi. „Þegar ég var að taka upp plötuna Fjór- ir naglar heyrði ég svo af einhverri svaka- legri stelpu í Bretlandi sem væri að syngja gamla sálartónlist í nýjum og djassskotnum búningi, Amy Winehouse. Ég hreifst mjög af Back to Black plötunni hennar og fór strax á stúfana og spurði umboðsmanninn minn um það hverjir á Íslandi gætu eiginlega gert þetta almennilega.“ Umbinn benti á tvo af stofnendum fönk- sveitarinnar Jagúars, bræðurna Börk og Daða Birgissyni, sem Bubbi hitti og lýsti fyrir þeim áformum sínum. „Þá kom í ljós að þeir vita þetta allt og kunna þetta allt. Þetta eru strák- ar, tuttugu árum yngri en ég, sem eru alveg á bólakafi í þessari soul-, blús- og brassver- öld. Og ég sagði bara „bring it on!“,“ rifjar Bubbi upp og fer fögrum orðum um Sólskugg- ana, stórskotaliðið sem leikur með honum á plötunni, sem telur þá Ara Braga Kárason á trompet, Jóel Pálsson og Ragnar Árna Ágústsson á saxófón, Kristin Snæ Agnars- son á trommur, Inga Björn Ingasson á bassa og Kristjönu Stefánsdóttur í bakröddum, auk þeirra Barkar og Daða sem spila á gítar og hljómborð, og fleiri tónlistarmenn. Þá syng- ur Gréta, dóttir Bubba, með honum í laginu Háskaleikur á plötunni. Birtu stafar af textunum Eftir rúmlega þrjátíu ára feril segist Bubbi hafa greint tækifæri í sálartónlistinni til að syngja á þann hátt sem hann hefur allt- af dreymt um. „Það eru lög á þessari plötu sem gefa mér tækifæri til að skína skærar en áður. Líklega hefur það líka nokkuð með það að gera að ég hætti að reykja fyrir sex árum,“ segir hann og hlær. „Það hafði í för með sér að röddin hefur styrkst, hækkað og batn- að. Orðið fyllri. Þessi tónlist á mjög vel við röddina eins og hún er núna, með alla þessa reynslu og þroska.“ Um textana á plötunni segir Bubbi eitt orð einkenna þá öðrum fremur: jákvæðni. „Það eru til aðrar upptökur af þessum lögum með allt öðrum textum, sem fjalla um hrunið og fleira,“ segir hann. „Tökum sem dæmi ska- lagið Það rignir á hús þeirra ríku [eina lagið á plötunni sem víkur frá sálartónlistinni og Bubbi lýsir sem ekta hjólhýsareggíi]. Það hófst upphaflega svona: „Rauð málning á hús þeirra ríku. Í röngum líkama fékk sér píku,“ og fjallaði um það hvernig dagblöðin eru til í að birta hvað sem er, svo lengi sem það selur. Núna byrjar lagið svona: „Það rignir á hús þeirra ríku, ég er að grilla í góðri klíku“. Miklu jákvæðara. Titillagið, Ég trúi á þig, hefst á orðunum „Lítil börn að leika sér“. Það stafar birtu af flestum textunum. Mig langaði til að syngja um það sem skiptir máli í raun og veru. Og hvað er það sem allir tónlistar- menn, frá Bob Dylan til Nick Cave til Johnny Cash, syngja um? Það er ástin. All you need is love,“ segir Bubbi ákveðinn og bætir við að þessi frægu orð fjórmenninganna frá Liver- pool hafi aldrei átt eins vel við og nú. „Ef við gætum öll lifað samkvæmt þessu þá værum við ekki að glíma við allan þennan viðbjóð. Sjáðu bara Bandaríkin. Hvers konar þjóðfélag er það þar sem tugþúsundir fagna því á götum úti að einhver hafi verið drepinn? Burtséð frá því hvort hann hafi verið hryðju- verkamaður eða ekki. Það má þakka fyrir að hann hafi verið tekinn úr umferð en ég á erfitt með að skilja þessa gleði þegar tólf ára stúlka horfir á pabba sinn skotinn í höfuðið. Auðvitað þarf að tala um hlutina og gagnrýna, en það skiptir máli hvernig það er gert. Kannski er ég að velja erfiðu leiðina með því að syngja um ást og kærleika.“ Erfið reynsla Sem kunnugt er áttu Bubbi og Hrafnhildur eiginkona hans von á barni, en eins og Bubbi greindi frá á bloggsíðu sinni á dögunum gripu örlögin í taumana. Hann vill síður tjá sig um það mál umfram það sem hann hefur þegar sagt. „Það er svo stutt um liðið og auk þess væri það óvirðing við konuna mína að tala um þetta án þess að hún viti af því. En þetta er reynsla sem ég óska engum að ganga í gegnum,“ segir hann. Ekkert internet þegar ég byrjaði Ljóst er að vinsældir Bubba hafa verið miklar og stöðugar í yfir þrjá áratugi, en hann hefur líka alltaf verið umdeildur. Hefur Bubbi orðið umdeildari hin síð- ari ár en áður var? „Nei, ég held ekki,“ svar- ar söngvarinn. „Það má ekki gleyma því að þegar ég kom inn á sjónarsviðið var ekkert inter- net. Það er hægt að ímynda sér hvernig umræðan um Bubba Morthens væri ef ég kæmi inn í dag. Hassreykjandi, kóksniff- andi kjaftaskur, svívirðandi menn og málefni. Eflaust er ég umdeildur, en það verður að hafa í huga að bloggheimar hafa sitt að segja. Þetta er tvö- eða þrjú- hundruð manna hópur fólks sem hefur skapað sér nýtt sjálf í gegnum bloggið, lifir í gegnum tölvuna og ímyndar sér jafnvel að það sé orðið frægt. Þegar ég lendi í umræðunni er orðfær- ið yfirleitt á þá leið að ég sé fífl, viðbjóður, ómerkingur sem sé búinn að dópa af sér haus- inn og mella sem seldi sig útrásarvíkingum. Þetta eru fáar raddir en háværar,“ segir Bubbi og tekur sem dæmi að öll umræða um að hann hafi á sínum tíma selt höfundarréttinn að lög- unum sínum sé á algjörum villigötum. „Það virðist vera hópur af fíflum þarna úti sem skilur ekki málið. Ég framseldi í raun höfundartekjur mínar og fékk þær greidd- ar fyrirfram, en höfundarréttinn á ég alltaf. Þetta gera allir tónlistarmenn úti í heimi og þetta gerðu um fimmtán íslenskir tónlistar- menn. Ég var tekinn út úr þessum hópi og nokkrir blaðamenn byrjuðu að negla þetta inn. Það var alveg sama hvað ég reyndi að leið- rétta, þetta var alveg geirneglt, og að lokum gafst ég hreinlega upp á því. Þetta er mjög lýs- andi fyrir umræðuna um mig. En að því sögðu vil ég frekar vera umdeildur en að öllum sé sama.“ Lem Steinda þegar ég sé hann Nýlegt atriði úr þætti grínistans Steinda Jr. á Stöð 2 hefur vakið mikla athygli, en í því nappar Bubbi (í meðförum Ara Eldjárn) inn- brotsþjóf á heimili sínu og lætur hann finna fyrir því. Bubbi seg- ist enn ekki hafa séð atriðið en heyrt mikið og vel talað um það. „Ég er mest fúll yfir því að Steindi hafi ekki bara drull- ast til að tala við mig og biðja mig um að leika í atriðinu. Ég lem Steinda næst þegar ég sé hann,“ segir Bubbi og glottir, en hann hefur stundað box og aðrar bardagaíþróttir af kappi í áratugi. En hvenær lenti hann síðast í handalögmálum utan hringsins? „Það var á Kanarí. Ég var að koma af ströndinni með frum- burðinn í kerru og stóð í bið- röð eftir leigubíl. Þá réðst á mig Þjóðverji sem vildi bílinn sem við ætluðum inn í, hrinti mér og kerran með drengnum fór á hliðina. Sem betur fer meiddi barnið sig ekkert en ég fór bara í Þjóðverjann. Sló hann í nýrað svo stóð út úr honum spýjan þar sem hann lá á fjórum fótum. Svo fórum við inn í leigubílinn og þá sagði leigubílstjórinn: „Þetta var fallegt. Mér líkar illa við Þjóð- verja,“ segir Bubbi og skellir upp úr. Hann rifjar upp önnur slagsmál úr for- tíðinni sem hefðu hæglega getað endað með skelfingu. „Það var á afmælisdeginum mínum, 6. júní 1981 í Alþýðukjallaranum. Ég lenti í slagsmálum við mann og það var krít- ískt, hefði getað farið illa. Það má segja að hann hafi verið hætt kominn, þurfti að fara á spítala í aðgerð. Ég sat inni þá nótt. Í dag myndi ég sennilega setja hendurnar í rass- vasann. Eða hlaupa. Eða taka skrokkinn. Það er ekkert mál að fella fólk með skrokkhögg- um og það veldur litlum sem engum skaða. En púðinn nægir mér í dag og ég er duglegur á honum.“ Hvers konar þjóðfélag er það þar sem tugþúsundir fagna því á götum úti að einhver hafi verið drepinn? Bubbi velur erfiðu leiðina Á væntanlegri plötu, Ég trúi á þig, tæklar Bubbi Morthens hreinræktaða sálartónlist með jákvæðum textum. Kjartan Guðmunds- son ræddi við manninn sem segist aldrei hafa sungið betur um bin Laden, Amy Winehouse og viðskotaillan Þjóðverja á Kanarí. SÁLUFÉLAGI Bubbi í Stúdíói Sýrlandi, þar sem upptökur fóru fram á hinni væntanlegu plötu Ég trúi á þig. „Það eru lög á þessari plötu sem gefa mér tækifæri til að skína skærar en áður. Líklega hefur það líka nokkuð með það að gera að ég hætti að reykja fyrir sex árum,“ segir Bubbi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.