Fréttablaðið - 07.05.2011, Qupperneq 22
7. maí 2011 LAUGARDAGUR22
Þ
að var tónlistarsagnfræðingur-
inn og poppnördinn Óttar Felix
Hauksson sem uppgötvaði að
þetta er fyrsta alvöru íslenska
soul-platan með frumsömdu efni.
Hann færði fyrir því sterk rök að
svo væri, en ég var efins og minnti hann á
Sálina hans Jóns míns. Þá sagði Óttar Felix
að Sálin væri poppband en ekki hreinræktað
soul-band. Hann hélt því líka fram að enn og
aftur væri ég að brjóta blað í íslenskri tón-
listarsögu,“ segir Bubbi Morthens um nýju
plötuna sína, Ég trúi á þig, sem kemur út á
afmælisdegi tónlistarmannsins, hinn 6. júní
næstkomandi.
Nú þegar hefur almenningur fengið smjör-
þef af plötunni með lögunum Sól, Ísabellu,
sem hefur verið eitt vinsælasta lag landsins
síðustu vikur og mánuði, og Blik þinna augna
sem fór í spilun rétt fyrir helgi.
Tvo áratugi á leiðinni
Kolbikasvört sálartónlist er dagsskipunin á
Ég trúi á þig, sem söngvarinn segir hafa verið
lengi í vinnslu og í raun tvo áratugi á leiðinni.
Hann hafi alist upp við tilfinningaríkar raddir
söngvara á borð Otis Redding, James Brown,
Tinu Turner, Curtis Mayfield og Sam Cooke
(sá síðastnefndi er sá besti að mati Bubba) og
alla tíð haft á þeim dálæti, en einhverra hluta
vegna hafi ekki verið til staðar mannskapur
á Íslandi til að spila þessa tegund tónlistar á
sínum tíma.
„Ég hef gert nokkrar tilraunir í þessa veru,
til dæmis í lögunum Sumar konur og Fjórir
naglar, sem er hreinræktað „soul“,“ segir
Bubbi. „Þegar ég var að taka upp plötuna Fjór-
ir naglar heyrði ég svo af einhverri svaka-
legri stelpu í Bretlandi sem væri að syngja
gamla sálartónlist í nýjum og djassskotnum
búningi, Amy Winehouse. Ég hreifst mjög af
Back to Black plötunni hennar og fór strax á
stúfana og spurði umboðsmanninn minn um
það hverjir á Íslandi gætu eiginlega gert þetta
almennilega.“
Umbinn benti á tvo af stofnendum fönk-
sveitarinnar Jagúars, bræðurna Börk og Daða
Birgissyni, sem Bubbi hitti og lýsti fyrir þeim
áformum sínum. „Þá kom í ljós að þeir vita
þetta allt og kunna þetta allt. Þetta eru strák-
ar, tuttugu árum yngri en ég, sem eru alveg
á bólakafi í þessari soul-, blús- og brassver-
öld. Og ég sagði bara „bring it on!“,“ rifjar
Bubbi upp og fer fögrum orðum um Sólskugg-
ana, stórskotaliðið sem leikur með honum á
plötunni, sem telur þá Ara Braga Kárason
á trompet, Jóel Pálsson og Ragnar Árna
Ágústsson á saxófón, Kristin Snæ Agnars-
son á trommur, Inga Björn Ingasson á bassa
og Kristjönu Stefánsdóttur í bakröddum, auk
þeirra Barkar og Daða sem spila á gítar og
hljómborð, og fleiri tónlistarmenn. Þá syng-
ur Gréta, dóttir Bubba, með honum í laginu
Háskaleikur á plötunni.
Birtu stafar af textunum
Eftir rúmlega þrjátíu ára feril segist Bubbi
hafa greint tækifæri í sálartónlistinni til
að syngja á þann hátt sem hann hefur allt-
af dreymt um. „Það eru lög á þessari plötu
sem gefa mér tækifæri til að skína skærar en
áður. Líklega hefur það líka nokkuð með það
að gera að ég hætti að reykja fyrir sex árum,“
segir hann og hlær. „Það hafði í för með sér
að röddin hefur styrkst, hækkað og batn-
að. Orðið fyllri. Þessi tónlist á mjög vel við
röddina eins og hún er núna, með alla þessa
reynslu og þroska.“
Um textana á plötunni segir Bubbi eitt orð
einkenna þá öðrum fremur: jákvæðni. „Það
eru til aðrar upptökur af þessum lögum með
allt öðrum textum, sem fjalla um hrunið og
fleira,“ segir hann. „Tökum sem dæmi ska-
lagið Það rignir á hús þeirra ríku [eina lagið
á plötunni sem víkur frá sálartónlistinni og
Bubbi lýsir sem ekta hjólhýsareggíi]. Það
hófst upphaflega svona: „Rauð málning á hús
þeirra ríku. Í röngum líkama fékk sér píku,“
og fjallaði um það hvernig dagblöðin eru
til í að birta hvað sem er, svo lengi sem það
selur. Núna byrjar lagið svona: „Það rignir á
hús þeirra ríku, ég er að grilla í góðri klíku“.
Miklu jákvæðara. Titillagið, Ég trúi á þig,
hefst á orðunum „Lítil börn að leika sér“. Það
stafar birtu af flestum textunum. Mig langaði
til að syngja um það sem skiptir máli í raun
og veru. Og hvað er það sem allir tónlistar-
menn, frá Bob Dylan til Nick Cave til Johnny
Cash, syngja um? Það er ástin. All you need
is love,“ segir Bubbi ákveðinn og bætir við að
þessi frægu orð fjórmenninganna frá Liver-
pool hafi aldrei átt eins vel við og nú.
„Ef við gætum öll lifað samkvæmt þessu
þá værum við ekki að glíma við allan þennan
viðbjóð. Sjáðu bara Bandaríkin. Hvers konar
þjóðfélag er það þar sem tugþúsundir fagna
því á götum úti að einhver hafi verið drepinn?
Burtséð frá því hvort hann hafi verið hryðju-
verkamaður eða ekki. Það má þakka fyrir að
hann hafi verið tekinn úr umferð en ég á erfitt
með að skilja þessa gleði þegar tólf ára stúlka
horfir á pabba sinn skotinn í höfuðið. Auðvitað
þarf að tala um hlutina og gagnrýna, en það
skiptir máli hvernig það er gert. Kannski er
ég að velja erfiðu leiðina með því að syngja
um ást og kærleika.“
Erfið reynsla
Sem kunnugt er áttu Bubbi og Hrafnhildur
eiginkona hans von á barni, en eins og Bubbi
greindi frá á bloggsíðu sinni á dögunum gripu
örlögin í taumana. Hann vill síður tjá sig um
það mál umfram það sem hann hefur þegar
sagt. „Það er svo stutt um liðið og auk þess
væri það óvirðing við konuna
mína að tala um þetta án þess
að hún viti af því. En þetta er
reynsla sem ég óska engum að
ganga í gegnum,“ segir hann.
Ekkert internet þegar ég byrjaði
Ljóst er að vinsældir Bubba hafa
verið miklar og stöðugar í yfir
þrjá áratugi, en hann hefur líka
alltaf verið umdeildur. Hefur
Bubbi orðið umdeildari hin síð-
ari ár en áður var?
„Nei, ég held ekki,“ svar-
ar söngvarinn. „Það má ekki
gleyma því að þegar ég kom inn
á sjónarsviðið var ekkert inter-
net. Það er hægt að ímynda sér
hvernig umræðan um Bubba
Morthens væri ef ég kæmi inn
í dag. Hassreykjandi, kóksniff-
andi kjaftaskur, svívirðandi
menn og málefni. Eflaust er ég
umdeildur, en það verður að hafa
í huga að bloggheimar hafa sitt
að segja. Þetta er tvö- eða þrjú-
hundruð manna hópur fólks sem hefur skapað
sér nýtt sjálf í gegnum bloggið, lifir í gegnum
tölvuna og ímyndar sér jafnvel að það sé orðið
frægt. Þegar ég lendi í umræðunni er orðfær-
ið yfirleitt á þá leið að ég sé fífl, viðbjóður,
ómerkingur sem sé búinn að dópa af sér haus-
inn og mella sem seldi sig útrásarvíkingum.
Þetta eru fáar raddir en háværar,“ segir Bubbi
og tekur sem dæmi að öll umræða um að hann
hafi á sínum tíma selt höfundarréttinn að lög-
unum sínum sé á algjörum villigötum.
„Það virðist vera hópur af fíflum þarna úti
sem skilur ekki málið. Ég framseldi í raun
höfundartekjur mínar og fékk þær greidd-
ar fyrirfram, en höfundarréttinn á ég alltaf.
Þetta gera allir tónlistarmenn úti í heimi og
þetta gerðu um fimmtán íslenskir tónlistar-
menn. Ég var tekinn út úr þessum hópi og
nokkrir blaðamenn byrjuðu að negla þetta inn.
Það var alveg sama hvað ég reyndi að leið-
rétta, þetta var alveg geirneglt, og að lokum
gafst ég hreinlega upp á því. Þetta er mjög lýs-
andi fyrir umræðuna um mig. En að því sögðu
vil ég frekar vera umdeildur en að öllum sé
sama.“
Lem Steinda þegar ég sé hann
Nýlegt atriði úr þætti grínistans Steinda Jr.
á Stöð 2 hefur vakið mikla athygli, en í því
nappar Bubbi (í meðförum Ara Eldjárn) inn-
brotsþjóf á heimili sínu og lætur
hann finna fyrir því. Bubbi seg-
ist enn ekki hafa séð atriðið en
heyrt mikið og vel talað um
það. „Ég er mest fúll yfir því
að Steindi hafi ekki bara drull-
ast til að tala við mig og biðja
mig um að leika í atriðinu. Ég
lem Steinda næst þegar ég sé
hann,“ segir Bubbi og glottir,
en hann hefur stundað box og
aðrar bardagaíþróttir af kappi
í áratugi. En hvenær lenti hann
síðast í handalögmálum utan
hringsins?
„Það var á Kanarí. Ég var að
koma af ströndinni með frum-
burðinn í kerru og stóð í bið-
röð eftir leigubíl. Þá réðst á mig
Þjóðverji sem vildi bílinn sem
við ætluðum inn í, hrinti mér
og kerran með drengnum fór á
hliðina. Sem betur fer meiddi
barnið sig ekkert en ég fór bara
í Þjóðverjann. Sló hann í nýrað
svo stóð út úr honum spýjan þar
sem hann lá á fjórum fótum. Svo fórum við
inn í leigubílinn og þá sagði leigubílstjórinn:
„Þetta var fallegt. Mér líkar illa við Þjóð-
verja,“ segir Bubbi og skellir upp úr.
Hann rifjar upp önnur slagsmál úr for-
tíðinni sem hefðu hæglega getað endað
með skelfingu. „Það var á afmælisdeginum
mínum, 6. júní 1981 í Alþýðukjallaranum. Ég
lenti í slagsmálum við mann og það var krít-
ískt, hefði getað farið illa. Það má segja að
hann hafi verið hætt kominn, þurfti að fara
á spítala í aðgerð. Ég sat inni þá nótt. Í dag
myndi ég sennilega setja hendurnar í rass-
vasann. Eða hlaupa. Eða taka skrokkinn. Það
er ekkert mál að fella fólk með skrokkhögg-
um og það veldur litlum sem engum skaða.
En púðinn nægir mér í dag og ég er duglegur
á honum.“
Hvers konar
þjóðfélag er
það þar sem
tugþúsundir
fagna því á
götum úti að
einhver hafi
verið drepinn?
Bubbi velur erfiðu leiðina
Á væntanlegri plötu, Ég trúi á þig, tæklar Bubbi Morthens hreinræktaða sálartónlist með jákvæðum textum. Kjartan Guðmunds-
son ræddi við manninn sem segist aldrei hafa sungið betur um bin Laden, Amy Winehouse og viðskotaillan Þjóðverja á Kanarí.
SÁLUFÉLAGI Bubbi í Stúdíói Sýrlandi, þar sem upptökur fóru fram á hinni væntanlegu plötu Ég trúi á þig. „Það eru lög á þessari plötu sem gefa mér tækifæri til að skína skærar en áður. Líklega hefur það líka nokkuð
með það að gera að ég hætti að reykja fyrir sex árum,“ segir Bubbi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN