Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 31

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 31
LAUGARDAGUR 7. maí 2011 31 Gunnar Nelson er skærasta stjarna Mjölnismanna enda talinn einn efnilegasti bardagaíþróttamaður heims. Hann er ósigraður í keppni í MMA (blönduðum bardagalistum) og hefur unnið frækna sigra á jiu-jitsu eða grappling-mótum víða um heim. Frægt er þegar Gunnar lagði Jeff Monson á heimsmeistaramótinu í glímu, ADCC, í Abu Dhabi árið 2009. Monson þessi hefur tvisvar sinnum unnið mótið, er tröllslega vaxinn, 120 kíló að þyngd og frekar óárennilegur að sjá. Það skipti þó engu því Gunnar vann hann á stigum. Árangur Gunnars varð til þess að honum var boðið að taka þátt í mótinu í ár en aðeins örfáum íþróttamönnum er boðið á þetta stærsta glímumót heims. BOÐIÐ Á STÆRSTA GLÍMUMÓT HEIMS GUNNAR GEGN MONSON Gunnar Nelson lagði Jeff Monson að velli á glímumóti í Abu Dhabi. svokallaðar lifandi æfingar. Þú ert alltaf að æfa með mótherja, það eru fáar reglur og það eru ekki fyrir fram ákveðnar æfing- ar eins og tíðkast í hefðbundnum bardagaíþróttum. Þetta reynir á alla vöðva líkamans og það komast allir í gott form sem stunda þetta.“ Opna Mjölniskastalann Mörgum þykja blandaðar bardaga- listir heldur ruddaleg íþrótt enda nánast allt leyfilegt í þeim. Eini hlífðarfatnaðurinn er örþunnir boxhanskar. „Ég skil alveg að fólki finnist íþróttin gróf. En um leið og fólk kynnir sér íþróttina, undir- búninginn að baki henni, reglurn- ar og allar staðreyndirnar fær það aðra sýn á íþróttina. Fólk meiðist ekki meira í þessu sporti en öðru. Fólk fær kannski fleiri marbletti og fleiri litlar skrámur en alvarleg meiðsli eru ekki algeng,“ segir Jón Viðar. Jón Viðar hefur starfað sem lög- reglumaður undanfarin ár en ætlar að sækja um ársleyfi til að geta helgað sig starfinu í Mjölni. Um mánaðamótin flytur félagið svo í nýtt húsnæði, gamla Loftkastalann við Seljaveg. „Nú stækkum við húsnæðið veru- lega og munum kalla þetta Mjölnis- kastalann. Ég held að þetta sé flott- asta aðstaða bardagaíþróttafélags á Norðurlöndunum, ef ekki bara með þeim flottari í Evrópu,“ segir Jón Viðar en í húsinu verður meðal annars aðstaða fyrir áhorfendur og tveir stórir salir með mikilli lofhæð til að æfa í. Síðasta vetur hófst einnig barna- og unglingastarf hjá Mjölni sem stjórn félagsins bindur miklar vonir við. „Það varð strax fullt hjá okkur í þá tíma og við ætlum að reyna að byggja svolítið á því eins og önnur íþróttafélög gera. Það getur styrkt félagið ansi mikið,“ segir Jón Viðar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.