Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 32

Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 32
7. maí 2011 LAUGARDAGUR32 S vefnþörf flestra full- orðinna eru sjö til átta tímar á sólarhring. Flestir vita að ef þeir sofa of lítið verða þeir þreyttir og einbeiting versnar en það sem mun færri vita er að of litlum svefni fylgja alvar- legar afleiðingar fyrir líkamlega heilsu,“ segir Erna Sif Arnar dóttir líffræðingur og doktorsnemi í svefnrannsóknum. Erna Sif hefur beint sjónum sínum að þessum líkamlegu afleiðingum svefnleys- is, sem hún segir býsna alvarleg- ar. „Afleiðingarnar eru til dæmis aukin hætta á hjarta- og æðasjúk- dómum, auknar líkur á áunninni sykursýki og offita. Rannsókn- ir sýna enn fremur að ótímabær dauðsföll eru algengari hjá þeim sem sofa of lítið.“ Sofum minna en áður Erna Sif segir nútímamanninn hafa gengið á sinn eðlilega svefntíma, rannsóknir sýni að fólk sofi að meðaltali um klukkustund minna nú en það gerði fyrir hálfri öld. „Fólk er alltaf að skerða svefntíma sinn, horfa á sjónvarpið eða hanga í tölvunni. Svo ætlum við kannski að vera mjög dugleg og mæta í ræktina klukkan sex en gleymum því að það þýðir að þá þurfum við að vera farin að sofa klukkan tíu.“ Allan Pack, prófessor við Penn- sylvaníuháskóla og annar leiðbein- andi í doktorsverkefni Ernu Sifjar, hefur sérhæft sig í svefnrannsókn- um um árabil. Hann bendir á að nútímaþjóðfélag geti verið fjand- samlegt þeim sem vildu glaðir sofa sjö til átta tíma en eru svokallaðar b-manneskjur, fara seint að sofa en fá ekki að sofa eins lengi og þeir vildu. „Þeir sem ekki sofa nóg eru að svipta líkamann svefni og það getur haft alvarlegar afleiðingar,“ segir Pack. „Fyrir þá sem eru mjög öfgafull- ar a- eða b-manneskjur getur verið mjög erfitt að vera til í nútíma- þjóðfélagi,“ segir Pack, sem segir erfitt ef ekki ómögulegt að breyta þessum takti, við séum „forrituð“ til þess að fylgja líkamsklukkunni. „Svefn er algjörlega nauðsyn- legur fyrir líkamann og því er það afar hættulegt heilsunni ef fólk gengur á svefntíma sinn. Þegar við sofum þá erum við ekki bara að hvíla okkur, þegar við sofum er líkaminn líka að endurnýja efni í frumum líkamans sem við göngum á yfir daginn, heilinn er líka mjög virkur þegar við sofum,“ segir Pack sem bendir á að auk þess sem svefnleysi geti skert lífsgæði fólks mikið þá geti það einnig beinlínis verið hættulegt. Hættulegt að sofa of lítið „Yfir 50 prósent alvarlegra bíl- slysa i Bandaríkjunum eiga sér stað þannig að bílstjóri ekur út af, sem oft er afleiðingin þegar bílstjórar sofna undir stýri.“ Vöruflutninga- bílstjórar tilheyra hópi fólks sem vinnur á óvenjulegum tímum og langar vaktir. Pack segir þá sem vinna vaktavinnu leggja mikið á líkamann. „Þeir sem vinna vaktir ná sjaldnast sömu rútínu og aðrir. Það hefur áhrif á líkamsklukkuna okkar, öll líffæri okkar hafa inn- byggða sólarhringsklukku og þeir sem ekki fylgja neinni rútínu rugla henni,“ segir Pack. Erna Sif segir eina svefnlausa nótt nægja til þess að breytingar verði á líkamsstarfsemi. „Mæl- ingar í blóði sýna fram á að það verða strax breytingar eftir eina svefnlausa nótt. Það verður mæl- anleg aukning á svokölluðum bólg- umarkerum, sem finnast í auknum mæli í fólki með hjarta- og æða- sjúkdóma. Annað sem gerist er að það verður brenglun á sykurbúskap líkamans, sykurþol skerðist og það eykur líkur á sykursýki. Sömuleiðis verður brenglun á hormónum sem valda hungri. Ef maður hefur ekki sofið vel þá verður maður svengri. Líkaminn kallar á mat og raunar kallar hann á óhollan mat, einföld kolvetni og sykur.“ Þriðjungur glímir við svefnvanda Eins og áður sagði er svefnþörf flestra fullorðinna um sjö til átta tímar. Börn þurfa meiri svefn en eftir að fólk er fullvaxið minnkar svefnþörfin. En það er ekki bara að svefnþörfin minnki, samsetning á svefni breytist. Börn fá meiri djúp- svefn en fullorðnir og eftir því sem fólk eldist fjölgar svefnvandamál- um af ýmsum toga. Raunar eru vandamál tengd svefni svo algeng að talið er að þriðjungur fullorðinna eigi við svefnvandamál að stríða á einhvern tíma á lífsleiðinni. Vandamálin eru af ýmsum toga. Kæfisvefn er vandamál sem talið er að hrjái um fjögur til fimm prósent fullorðinna. Kæfisvefn lýsir sér þannig að ein- staklingar fá öndunartruflanir í svefni sem kemur vitaskuld niður á gæðum svefnsins. Verkir vegna veikinda geta haft áhrif á svefn, tanngnístur og fótaóeirð svo dæmi séu tekin. Kvíði og streita geta líka valdið svefnleysi. Þrátt fyrir mikilvægi svefns hefur verið frekar lítil áhersla á rannsóknir á svefni, þó það sé að breytast. Pack bendir á að það sé merkilega lítil vitund um mikilvægi svefns. Skýringuna sé meðal annars að finna í því hversu stutt sé síðan farið var að kenna um svefnvanda- mál í læknisfræði. „Margir læknar eru fákunnandi um svefnvanda- mál og vita ekki hvernig á að taka á þeim. Við sem vinnum við svefn- rannsóknir verðum að gera betur í að bæta þekkingu fólks á svefni. Við höfum til dæmis beitt okkur í því að gera svefni skil í líffræðikennslu framhaldsskólanema,” segir Pack. Svefn er mannsins megin Svefn er hluti lífsins hjá öllum. Margir hunsa þó þennan mikilvæga þátt í lífinu og leyfa sér ekki að sofa eins lengi og nauðsyn- legt er. Afleiðingar svefnleysis geta verið alvarlegar, bæði andlegar og líkamlegar. Sigríður Björg Tómasdóttir kynnti sér málið. ALLAN PACKERNA SIF ARNARDÓTTIR E rla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktorsnemi sem vinnur að rannsókn á tengslum svefnleysis og andlegrar líðanar hjá kæfisvefnssjúklingum. Hún vinnur einnig hjá Heilsustöðinni við það að með- höndla fólk við svefnleysi. „Svefnleysi á sér nokkrar ólíkar birtingarmyndir. Fólk sem þjáist af svefnleysi getur í fyrsta lagi átt erfitt með að sofna á kvöldin, í öðru lagi þá vaknar það á nóttinni og á erfitt með að sofna aftur, í þriðja lagi þá vakna sumir of snemma og í fjórða lagi þá hvílist fólk ekki, fær sem sagt ekki þennan endurnærandi svefn sem er svo mikilvægur.“ Erla segir streituvaldandi þætti í umhverfi oft valda svefnleysi í byrj- un, til dæmis erfiður skilnaður, erfið börn, brjóstagjöf eða mikið stress í vinnu. „Stundum kemur fólk til mín í meðferð við svefnleysi sem ekki veit hver var kveikjan að svefnleysinu. Hún er kannski löngu horfin en eftir situr svefnleysið og fólk kannski komið í mjög slæman vítahring sem erfitt er að komast út úr.“ Langvarandi svefnleysi getur haft mikil áhrif á daglegt líf. „Það veld- ur orkuleysi og hefur neikvæð áhrif á lunderni, fólk sem þjáist af svefn- leysi verður oft afar upptekið af svefninum. Það hefur áhyggjur allan daginn af því hvernig það muni sofa næstu nótt. Þegar fólk svo festist í vítahring svefnleysis getur verið afar erfitt að rjúfa hann,“ segir Erla sem segir langvarandi svefnleysi hljóta að hafa áhrif á geðheilsu fólks og fyrstu niðurstöður rannsókna hennar bendi einmitt til þess. Erla hefur lagt stund á hugræna atferlismeðferð við svefnleysi sem hún segir að rannsóknir sýni að gagnist best við langvarandi svefnleysi, svefnlyf geti verið góð til að rjúfa vanda tímabundið en þau séu gagns- laus er til lengri tíma er litið. Erla segir að oft geti þeir sem þjást af svefnleysi þurft að breyta mörgum litlum atriðum, nokkur eru nefnd í dálknum hér til hliðar. Þeir sem haldnir eru svefnleysi kannast margir við það að sitja yfir sjónvarpinu og vera alveg að sofna, glaðvakna svo þegar stigið er yfir þröskuld svefnherbergisins. „Það er vegna þess að fólk er vant að bylta sér í rúminu og er farið að tengja það við vökuástand.“ Erla segir mikil- vægt að svefnherbergið sé griðastaður fyrir nætursvefn, ekki sé gott að vera þar mikið á daginn. „Fólki sem er í meðferð við svefnleysi ráð- leggjum við oft að minnka tímann sem það er í rúminu en markmiðið er að auka gæði svefnsins. Það er ekki gott að liggja of lengi í rúminu án þess að vera sofandi.“ ■ MIKILVÆGT AÐ RJÚFA VÍTAHRING SVEFNLEYSIS Erla Björnsdóttir Rútína og ró Nýburar 1-12 mánaða 1-3 ára 3-5 ára 5-12 ára Unglingsárin Fullorðnir 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 18 14-18 12-15 11-13 9-11 9-10 7-8 Styttri svefn með hærri aldri Klukkustundir Ungbörn sofa að meðaltali sextán til átján tíma og er helmingur svefntíma þeirra svokallaður draumsvefn. Að sögn Ernu Sifjar Arnardóttur virðast draumar vera afar mikilvægir fyrir þroska heilans fyrstu mánuðina. Börn hafa mun meiri svefnþörf en fullorðnir og stærra hlutfall af svefni þeirra er svonefndur djúpsvefn sem er mjög endurnærandi. Eftir því sem fólk eldist missir það hæfileikann til þess að sofa jafn vel og hinir yngri. Dagskrá 1. Flutt skýrsla stjórnar 2. Ger› grein fyrir ársreikningi 3. Tryggingafræ›ileg úttekt 4. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt 5. Önnur mál Ársfundur 2011 Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður haldinn þriðjudaginn 17. maí 2011 kl. 16.00, að Borgartúni 29, 4. hæð. Reykjavík 19. 04. 2011 ➜ Svefnherbergið Mikilvægt er að svefnherbergið sé griðastaður og rúmið ekki notað fyrir annað en svefn og kynlíf. ➜ Truflun Tölvur, sjónvarp, jafnvel bækur geta truflað svefn hjá fólki. „Allt of margir fara með tölvuna í rúmið og horfa á sjónvarpið. Mörg hjón gera upp daginn uppi í rúmi. Allt þetta vinnur gegn góðum svefni, því þú ferð að tengja rúmið við annað en svefn,“ segir Erla. ➜ Vani Rútína er mikilvæg fyrir góðan nætursvefn; að fara að sofa á sama tíma og vakna á sama tíma. ➜ Næring Þeir sem eiga erfitt með svefn ættu að forðast koffín eftir hádegi, mataræði hefur einnig áhrif á svefn. ➜ Tími Ekki er ráðlegt að liggja of lengi í rúminu ef fólk glímir við svefnleysi. „Það er ekki gott að liggja of lengi í rúminu án þess að vera sofandi,“ segir Erla.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.