Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 43
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Vortónleikar Dómkórsins verða haldnir í Dómkirkjunni klukkan 16 í
dag. Þar flytur kórinn Gloríu Antonios Vivaldi FV 589 og Missa brevis eftir
Joseph Haydn. Með kórnum leikur hljómsveitin Aldarvinir og söngkonurnar
Hallveig Rúnarsdóttir og Sigurlaug Knudsen syngja einsöng.
Í
arabalöndum er borin ótak-
mörkuð virðing fyrir mæðr-
um og mömmur eru á næsta
stalli við Guð. Því er skamm-
arlegt að gleyma mæðradegi á
þeim slóðum og virkar ekki að
koma með afsökunarbeiðni dag-
inn eftir,“ segir félagsfræðing-
urinn Amal Tamimi sem kom til
Íslands frá Palestínu 1995, þá ein-
stæð móðir með fimm börn, en hér
á landi eignaðist hún sjötta barn
sitt.
„Mæðradagur í arabalöndum
er 21. mars, fyrsti dagur vors í
dagatalinu. Hann er í hávegum
hafður og snýst um það sama og
íslenski mæðradagurinn, að færa
mömmu gjafir og góðar óskir, en
úti sleppa mæður einnig við hús-
verk og eldamennsku þegar börnin
dekra við þær í hvívetna og setja
þær í hásæti drottningar,“ segir
Amal sem heldur í íslenskar hefð-
ir á mæðradaginn og fær blóm og
heimsóknir frá börnum sínum, en
býður þeim einnig í kvöldverð.
„Elstu börnin hafa stundum sagt
í gríni að ég fái engar gjafir þann
21. mars því við séum jú Íslending-
ar, en þau óska mér alltaf til ham-
ingju á arabíska mæðradaginn,“
segir Amal sem á ljúfar minning-
ar frá því hún var móðir í Palest-
ínu og barnungar dætur hennar
færðu henni nýtínd blóm úr garð-
inum. „Þá hlýnaði mér um hjarta-
rætur að sjá að þær hafa lært að
bera virðingu fyrir mæðradegin-
um svo ungar, og enn í dag fæ ég
heimþrá til gamla heimalandsins
þegar ég minnist blómaanganar
vorsins í loftinu.“
Amal hefur í nógu að snúast sem
framkvæmdastýra Jafnréttishúss,
en börn hennar eru nú á aldrinum
13 til 32 ára og tvö þau yngstu enn
heima. „Allir foreldrar eiga fullt
í fangi með uppeldi sex barna og
vissulega var lífsbaráttan erfið
þegar ég kom hingað fyrst og
þurfti að kynnast nýju landi, læra
nýtt tungumál og sjá ein fyrir fjöl-
skyldunni með löngum vinnudegi.
Barnauppeldi er alltaf stremb-
ið og tímafrekt, því hvert og eitt
barn hefur eigin persónuleika og
af því þarf að taka mið svo allir
séu hamingjusamir og njóti sín,“
segir Amal en hún á nú þegar sex
barnabörn.
„Það besta við að eiga svo mörg
börn er að maður er aldrei einn.
Það er alltaf eitthvað skemmtilegt
fram undan og húsið alltaf fullt af
lífi, hvort sem það er heimsókn í
kaffi eða mat, eða barnabörn að
koma í pössun til ömmu. Á sama
tíma er erfiðast við mikinn barna-
fjölda að finna bestu aðferðina til
að koma þeim til manns og forða
þeim frá vandræðum, því breitt
aldursbil kallar á ólíkar húsregl-
ur og nálgun, og það er oft kúnst
að samræma.“ thordis@frettabladid.is
Amal Tamimi fær góðar óskir, sumarblóm og samverustundir frá börnum sínum sex á mæðradaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mamma á
næsta stalli
við Guð
Íslensku dýrinrúmföt
sloppar
rimlahlíf
handklæði
Yfi rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19.900 kr.
Toppvö
rur
toppþjó
nusta.
Jakki
17.900 kr.
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á alla fjölskylduna
Opið virka
daga 11-18
laugardag
11-16
Takkaskór
besta verði
ð
í bænum ?
Stærðir 31-46
kr. 5.495.-
www.xena.is
Grensásvegur 8 - Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR