Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 54
7. maí 2011 LAUGARDAGUR8
Sumarstörf – framtíðarstörf
Leitað er eftir fólki í störf á heimilum fatlaðs fólks í Hafnar-
firði. Í boði er vaktavinna í mismunandi starfshlutföllum.
Reyklaus vinnustaður. Laun samkvæmt kjarasamningi
launanefndar við hlutaðeigandi stéttafélag. Karlar jafnt
sem konur eru hvött til að sækja um störfin.
Helstu verkefni:
• Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
• Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
Hæfniskröfur:
• Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
• Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Framtakssemi og samviskusemi .
• Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð.
• Aldursskilyrði 20 ár.
Í boði er:
• Spennandi og lærdómsríkt starf
• Fjölbreytt verkefni
Lausar stöður á eftirtöldum heimilum:
Berjahlíð (565 4830 binna@hafnarfjordur.is)
Blikaás (555 6554 svanfridurs@hafnarfjordur.is)
Erluás (555 2181 johannae@hafnarfjordur.is)
Svöluhraun (555 3881 lindaholm@hafnarfjordur.is)
Svöluás (565 0301 birnagu@hafnarfjordur.is)
Umsóknum skal skila rafrænt fyrir 15. maí nk. til
viðkomandi forstöðumanns sem jafnframt veitir nánari
upplýsingar um störfin.
VERKEFNASTJÓRI
VIÐ TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD HR
www.hr.is
Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir verkefnastjóra í tækni- og verkfræðideild.
Starfið felst í upplýsingagjöf, þjónustu og samskiptum við nemendur og kennara tækni- og verkfræðideildar.
Verkefnastjóri tilheyrir skrifstofu tækni- og verkfræðideildar og ber ábyrgð á samskiptum við ákveðinn hóp
nemenda og kennara, en starfar einnig náið með ýmsum stoðdeildum innan HR.
HÆFNISKRÖFUR
Háskólapróf (BA eða BSc)
Mjög góð tölvukunnátta
Öguð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði og hæfni til að forgangsraða
Góð færni í íslensku og ensku
Umsóknir skal senda á netfangið appl@hr.is fyrir 15. maí og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá,
mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Þorgeirsdóttir skrifstofustjóri
(sigrunth@hr.is).
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Tækni- og verkfræðideild HR er ein stærsta háskóladeild landsins með tæplega 1000 nemendur og um 70
akademíska starfsmenn á mörgum sviðum verkfræði, tæknifræði, íþróttafræði og iðnfræði. Deildin útskrifar um
2/3 þeirra sem ljúka tækninámi á háskólastigi á Íslandi. Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla
þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Nemendur skólans eru um 3000 í fjórum deildum og starfa
yfir 250 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda stundakennara.
Dohop er eitt þekktasta hugbúnaðar-
fyrirtæki landsins. Sívaxandi fjöldi fólks um
allan heim notar Dohop til að leita að flugi,
hóteli eða bílaleigubíl og eigum viðskipti við
flugfélög og ferðaskrifstofur á degi hverjum.
Nú leitum við að reynslubolta í
hugbúnaðarþróun til að leiða þróun
vefsins áfram. Við viljum einstakling með:
hugbúnaðar
Javascript, HTML og CSS
Umsóknarfrestur er til 11. maí 2011.
Fyrirspurnir og umsóknir berist til
starf@dohop.com.
Allt um okkur: http://about.dohop.com/
Eitt laust sæti
Auglýsingasími