Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 57
LAUGARDAGUR 7. maí 2011 11
Sérfræðingur í
tæknimálum ökutækja
Umferðarstofa
www.us.is
Borgartúni 30 – 105 Reykjavík
Sími: 580-2000 – Fax: 580-2001
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Starfið
Starfið felst einkum í mótun laga og reglna um tæknileg málefni, innleiðingu EES gerða, eftirliti
með skoðun og skráningu ökutækja, umsjón með skoðunarhandbók og tæknilegum samskiptum
við skoðunarstofur. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur áhuga og
þekkingu á bíltæknimálum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði verkfræði, tæknifræði eða sambærilegu.
Hefur gott vald á ensku og norðurlandamáli.
Starfsreynsla á sviði bíltæknifræða góður kostur.
Hæfileiki til að skrifa íslenskan texta og þróa hentugt verklag.
Leitað er að einstaklingi sem er úrræðagóður, skipulagður og ábyrgur.
Umsóknarfrestur er til 23. maí 2011.
Hægt er að sækja um með eftirfarandi hætti:
Á vefsvæði Umferðarstofu á síðunni www.us.is/page/atvinnuumsokn
Með því að senda umsókn (CV/ferilskrá) á framkvæmdastjóra mannauðs- og
gæðasviðs, olof@us.is
Senda skriflega umsókn á eftirfarandi heimilisfang:
Umferðarstofa
Bt. Ólafar Friðriksdóttur
Borgartúni 30
105 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Dagný Jónsdóttir, forstjóri Umferðarstofu. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný.
Upplýsingar um Umferðarstofu má finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.us.is.
Umferðarstofa var bæði árið 2009 og 2010 valin stofnun ársins í könnun sem gerð var á meðal félagsmanna SFR
–stéttarfélag í almannaþjónustu. Hjá stofnuninni starfa um 50 starfsmenn. Lögð er áhersla á þjónustu, árangur,
áreiðanleika og jákvæðni. Tilgangur Umferðarstofu er að auka lífsgæði með því að auka öryggi í umferðinni.
Stofnunin hefur innleitt stefnumiðað árangursmat og er því mikið lagt upp úr mælanlegum árangri.
Upplýsingar um Umferðarstofu má finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.us.is.
Aðstoðarkona óskast
sumarvinna og hlutastarf næsta vetur
Óskað er eftir aðstoðarkonu í sumar og næsta vetur í
teymi til að starfa með 17 ára duglegri og skemmtilegri,
fatlaðri stúlku sem býr í eigin íbúð á heimili foreldra
sinna. Vinnutími er sveigjanlegur en um er að ræða
vinnu seinnipart dags, kvöld-, nætur- og helgarvinnu og
einhverja dagvinnu, Starfshlutfall getur verið 50-100%.
Leitað er að stúlku sem er sjálfstæð, jákvæð, ábyrg,
sveigjanleg og hefur frumkvæði. Reynsla er æskileg en
ekki skilyrði. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um
sjálfstætt líf sjá, www.npa.is.
Nánari upplýsingar veitir Heiða Björk Ingvarsdóttir, sími
772 6552 og netfang hbi4@hi.is
Embætti skólameistara við
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Laust er til umsóknar embætti skólameistara við
Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Í skólanum eru í
boði margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.
Starfssvið
Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu.
Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans
og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við
lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi
fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð
fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur
frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi
innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu
kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari
hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótar-
menntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhalds-
skólastigi.
Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu,
leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnu-
mótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Ný lög
um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum
aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun
námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu
til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir mikilvægu
hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli nýrra laga.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skóla-
meistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn
hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um
framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari
breytingum. Miðað er við að skipað verði í embættið
frá og með 1. ágúst 2011 en æskilegt er að viðkomandi
geti komið að undirbúningi skólastarfs fyrir skólaárið
2011 - 2012.
Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs,
sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari
breytingum.
Umsóknir
Umsóknir með upplýsingum um starfsheiti ásamt
ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00,
mánudaginn 30. maí 2011. Nánari upplýsingar um
starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í
mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 7. maí 2011.
menntamalaraduneyti.is
Á starfssvæði félagsþjónustunnar búa tæplega 8000 manns. Umhverfi er sérlega
fjölskylduvænt. Atvinnulíf, þjónusta og menningarlíf er öflugt og fjölbreytt.
Aðstæður til útivistar og íþróttaiðkunar eru með því besta og fjölbreytilegasta sem
gerist hér á landi. Samgöngur eru góðar og öll nauðsynleg þjónusta er á svæðinu.
Sveitarfélögin leggja metnað sinn í góða grunnþjónustu við íbúa sína og eru
grunnskólar og leikskólar framsæknir og vel búnir.
Megin viðfangsefni félagsmálastjóra:
Fylgist með því að unnið sé í samræmi við lög og reglugerðir
og að regluverk sveitarfélaganna sé ávallt í samræmi við þær.
• Hefur yfirumsjón með starfi félagsráðgjafa, deildarstjóra í
heimaþjónustu og forstöðumanna þjónustueininga á starfs-
svæðinu.
• Sér um stærri og þyngri mál sem félagsráðgjafar vísa
til hans.
• Yfirumsjón með málefnum fatlaðra.
• Er tengiliður við aðra aðila og stofnanir sem fjalla um og
sinna velferðarmálum á svæðinu og hefur faglegt frum
kvæði að stefnumörkun og áætlunargerð sem til hagsbóta
er fyrir íbúa svæðisins.
• Sér um gerð fjárhagsáætlana og hefur eftirlit með
útgjöldum.
• Forvarnir, fræðsla og samskipti við íbúa í sveitarfélögunum.
• Önnur málefni félagsþjónustu sem upp koma á svæðinu
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í félagsráðgjöf, eða sambærileg menntun.
• Reynsla af sambærilegum verkefnum og/eða framhalds
menntun í stjórnun æskileg.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulags-
hæfileikar.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð tölvukunnátta
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttar-
félags og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknum skal skila til Sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi
1, 815 Þorlákshöfn, merkt félagsmálastjóri 2011, fyrir föstu-
daginn 20. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri í
síma 480 3800.
Félagsmálastjóri
Sveitarfélögin, Hveragerði, Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur og Flóahreppur hafa stofnað með sér nýtt þjónustusvæði fyrir félagsþjónustu í sveitarfélögunum og óska eftir að ráða
félagsmálastjóra.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áræðni og dug til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu.
Félagsmálastjóri á að vinna náið með nýrri sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna og mun starfið krefjast ferðalaga um
svæðið. Staðsetning meginsstarfsstöðvar félagsþjónustunnar verður ákveðin í samráði við nýjan félagsmálastjóra og getur verið
í Þorlákshöfn, Hveragerði eða Laugarási.