Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 57

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 57
LAUGARDAGUR 7. maí 2011 11 Sérfræðingur í tæknimálum ökutækja Umferðarstofa www.us.is Borgartúni 30 – 105 Reykjavík Sími: 580-2000 – Fax: 580-2001 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Starfið Starfið felst einkum í mótun laga og reglna um tæknileg málefni, innleiðingu EES gerða, eftirliti með skoðun og skráningu ökutækja, umsjón með skoðunarhandbók og tæknilegum samskiptum við skoðunarstofur. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á bíltæknimálum. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólapróf á sviði verkfræði, tæknifræði eða sambærilegu. Hefur gott vald á ensku og norðurlandamáli. Starfsreynsla á sviði bíltæknifræða góður kostur. Hæfileiki til að skrifa íslenskan texta og þróa hentugt verklag. Leitað er að einstaklingi sem er úrræðagóður, skipulagður og ábyrgur. Umsóknarfrestur er til 23. maí 2011. Hægt er að sækja um með eftirfarandi hætti: Á vefsvæði Umferðarstofu á síðunni www.us.is/page/atvinnuumsokn Með því að senda umsókn (CV/ferilskrá) á framkvæmdastjóra mannauðs- og gæðasviðs, olof@us.is Senda skriflega umsókn á eftirfarandi heimilisfang: Umferðarstofa Bt. Ólafar Friðriksdóttur Borgartúni 30 105 Reykjavík Nánari upplýsingar veitir Dagný Jónsdóttir, forstjóri Umferðarstofu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Upplýsingar um Umferðarstofu má finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.us.is. Umferðarstofa var bæði árið 2009 og 2010 valin stofnun ársins í könnun sem gerð var á meðal félagsmanna SFR –stéttarfélag í almannaþjónustu. Hjá stofnuninni starfa um 50 starfsmenn. Lögð er áhersla á þjónustu, árangur, áreiðanleika og jákvæðni. Tilgangur Umferðarstofu er að auka lífsgæði með því að auka öryggi í umferðinni. Stofnunin hefur innleitt stefnumiðað árangursmat og er því mikið lagt upp úr mælanlegum árangri. Upplýsingar um Umferðarstofu má finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.us.is. Aðstoðarkona óskast sumarvinna og hlutastarf næsta vetur Óskað er eftir aðstoðarkonu í sumar og næsta vetur í teymi til að starfa með 17 ára duglegri og skemmtilegri, fatlaðri stúlku sem býr í eigin íbúð á heimili foreldra sinna. Vinnutími er sveigjanlegur en um er að ræða vinnu seinnipart dags, kvöld-, nætur- og helgarvinnu og einhverja dagvinnu, Starfshlutfall getur verið 50-100%. Leitað er að stúlku sem er sjálfstæð, jákvæð, ábyrg, sveigjanleg og hefur frumkvæði. Reynsla er æskileg en ekki skilyrði. Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf sjá, www.npa.is. Nánari upplýsingar veitir Heiða Björk Ingvarsdóttir, sími 772 6552 og netfang hbi4@hi.is Embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Í skólanum eru í boði margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi. Starfssvið Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Menntunar- og hæfniskröfur Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótar- menntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhalds- skólastigi. Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnu- mótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli nýrra laga. Ráðning og kjör Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skóla- meistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. ágúst 2011 en æskilegt er að viðkomandi geti komið að undirbúningi skólastarfs fyrir skólaárið 2011 - 2012. Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum. Umsóknir Umsóknir með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, mánudaginn 30. maí 2011. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 7. maí 2011. menntamalaraduneyti.is Á starfssvæði félagsþjónustunnar búa tæplega 8000 manns. Umhverfi er sérlega fjölskylduvænt. Atvinnulíf, þjónusta og menningarlíf er öflugt og fjölbreytt. Aðstæður til útivistar og íþróttaiðkunar eru með því besta og fjölbreytilegasta sem gerist hér á landi. Samgöngur eru góðar og öll nauðsynleg þjónusta er á svæðinu. Sveitarfélögin leggja metnað sinn í góða grunnþjónustu við íbúa sína og eru grunnskólar og leikskólar framsæknir og vel búnir. Megin viðfangsefni félagsmálastjóra: Fylgist með því að unnið sé í samræmi við lög og reglugerðir og að regluverk sveitarfélaganna sé ávallt í samræmi við þær. • Hefur yfirumsjón með starfi félagsráðgjafa, deildarstjóra í heimaþjónustu og forstöðumanna þjónustueininga á starfs- svæðinu. • Sér um stærri og þyngri mál sem félagsráðgjafar vísa til hans. • Yfirumsjón með málefnum fatlaðra. • Er tengiliður við aðra aðila og stofnanir sem fjalla um og sinna velferðarmálum á svæðinu og hefur faglegt frum kvæði að stefnumörkun og áætlunargerð sem til hagsbóta er fyrir íbúa svæðisins. • Sér um gerð fjárhagsáætlana og hefur eftirlit með útgjöldum. • Forvarnir, fræðsla og samskipti við íbúa í sveitarfélögunum. • Önnur málefni félagsþjónustu sem upp koma á svæðinu Hæfniskröfur: • Háskólamenntun í félagsráðgjöf, eða sambærileg menntun. • Reynsla af sambærilegum verkefnum og/eða framhalds menntun í stjórnun æskileg. • Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulags- hæfileikar. • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • Góð tölvukunnátta • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttar- félags og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknum skal skila til Sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn, merkt félagsmálastjóri 2011, fyrir föstu- daginn 20. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri í síma 480 3800. Félagsmálastjóri Sveitarfélögin, Hveragerði, Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverja- hreppur og Flóahreppur hafa stofnað með sér nýtt þjónustusvæði fyrir félagsþjónustu í sveitarfélögunum og óska eftir að ráða félagsmálastjóra. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áræðni og dug til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Félagsmálastjóri á að vinna náið með nýrri sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna og mun starfið krefjast ferðalaga um svæðið. Staðsetning meginsstarfsstöðvar félagsþjónustunnar verður ákveðin í samráði við nýjan félagsmálastjóra og getur verið í Þorlákshöfn, Hveragerði eða Laugarási.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.