Fréttablaðið - 07.05.2011, Síða 79
LAUGARDAGUR 7. maí 2011 39
Fyrir réttum 46 árum, 7. maí árið 1965, vaknaði Keith Richards, gítarleikari rokksveitarinnar eilífu Rolling Stones, af værum
svefni á hótelherbergi í Flórída með stef í huganum.
Svefndrukkinn teygði hann sig í gítarinn, kveikti á upptökutæki
og plokkaði það sem síðar varð að einu frægasta upphafsstefi rokk-
sögunnar, (I Can‘t Get No) Satisfaction, og lognaðist svo út af stein-
sofandi.
„Þegar ég vakn-
aði um morguninn
sá ég að ég hafði
gleymt að slökkva á
upptökunni,“ rifjaði
Richards upp í við-
tali mörgum árum
seinna. „Ég kveikti á
tækinu og þar voru
kannski þrjátíu sek-
úndur af Satisfac-
tion í mjög rólegri
útgáfu og allt í einu
heyrist KLÆNG í
gítarnum og þar á
eftir hrotur í 45 mín-
útur.“
Richards var
alls óviss um hvort
gera mætti smell
úr þessum lagbút,
en bar það, ásamt
textabrotinu „I can‘t
get no satisfaction”,
undir Mick Jagger og hina meðlimi sveitarinnar sem leist vel á.
Þremur dögum síðar, eftir að Jagger hafði klárað textann
við lagið, var haldið í hljóðver í Chicago og síðar í Los Angeles.
Vinnunni lauk 12. maí, fimm dögum eftir að stefið birtist Richards.
Satisfaction tók þó nokkrum breytingum á þessum stutta tíma
þar sem Richards hafði fyrst um sinn hugsað sér að útsetja það
fyrir blásturshljóðfæri. Vatnaskilin urðu hins vegar þegar hann
tengdi svokallað Fuzz Box við gítarinn sinn, sem gaf laginu hinn
sérstaka tón sem allir þekkja.
Þar sem hljómsveitin var á tónleikaferðalagi um Bandaríkin þótti
þeim við hæfi að gefa lagið fyrst út vestanhafs. Smáskífan kom út
9. júní og komst fljótlega á topp Billboard-listans og var þar í fjórar
vikur samfleytt.
Vinsældir Satisfaction festu Stones í sessi vestanhafs og enn
þann dag í dag er það frægasta lag þeirra. Gömlu brýnin taka lagið
á öllum tónleikum og fjörutíu árum eftir útgáfu þess var það valið
annað besta lag allra tíma af tónlistartímaritinu Rolling Stone. - þj
Heimildir: History.com og Wikipedia
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1965
Hugljómun um nótt verður
að sígildu meistaraverki
46 ár eru liðin frá því að Keith Richards samdi upphafsstef (I Can‘t Get
No) Satisfaction.
Sjónarhorn
Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
GOÐSÖGN 46 ár eru síðan Keith Richards lék upphafs-
stef Satisfaction í fyrsta sinn … og lognaðist svo útaf.
NORDICPHOTOS/GETTY
HUNDBLAUTUR Þýski pointer-hundurinn Óðinn stakk sér til sunds í blíðviðrinu við Elliðavatn. Veiðitímabilið í vatninu
hófst í vikubyrjun og stendur yfir til 15. september.
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA FÉLAGS KVENNA Í ATVINNUREKSTRI (FKA)
Í SAMSTARFI VIÐ SAMTÖK ATVINNULÍFSINS OG VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS Á
HILTON REYKJAVÍK NORDICA FÖSTUDAGINN 13. MAÍ 2011.
RÁÐSTEFNUNNI ER ÆTLAÐ AÐ ÝTA UNDIR UMRÆÐU UM KYNJAHLUTFÖLL Í
STJÓRNUM, EN ÁKVÆÐI Í LÖGUM UM KYNJAKVÓTA MUNU TAKA GILDI HÉR Á LANDI
ÁRIÐ 2013.
SAMTÖK
ATVINNULÍFSINS
VIÐSKIPTARÁÐ
ÍSLANDS
IÐNAÐAR-
RÁÐUNEYTIÐ
FÉLAG KVENNA Í
ATVINNUREKSTRI
NORSKA
SENDIRÁÐIÐ
CREDITINFO
ICELANDAIR
Húsið opnar - Létt morgunverðarhlaðborð
Ávarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra
Mari Teigen:
Gender Quotas in Corporate Boards: The Norwegian Experiences
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans:
Ný stefna - Nýtt hugarfar
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova:
Við leitum að konu í Bogamerkinu
Benja Stig Fagerland: Women Mean Business!
Dagskrárlok
BJÓÐUM Á STEFNUMÓT:
Kona og karl sem koma saman greiða eitt ráðstefnugjald eða 5.900 krónur,
morgunverður innifalinn. Þátttökugjald í vinnustofur er 3.900 krónur
SÝNUM
FJÖLBREYTNI
Í FORYSTU! KARLA & KONUR
VIRKJUM
TIL ATHAFNA
Tveir erlendir fyrirlesarar verða með framsögu, þær Mari Teigen og Benja Stig Fagerland. Mari
Teigen er doktor í félagsfræði og rannsóknarstjóri hjá Rannsóknarstofnun í félagsvísindum í
Osló. Benja Stig Fagerland er eigandi Talent Tuning sem einblínir á viðmið og stefnur kvenhag-
fræðinnar (e. womenomics) auk þess sem hún aðstoðar fyrirtæki við að finna konur í stjórnir.
Þá mun Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans ræða um nýja stjórnarhætti og Liv
Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova um reynslu af stjórnarsetu í erlendu fyrirtæki.
HÁSKÓLINN Í
REYKJAVÍK
DAGSKRÁ:
8.15
8:30
8:40
9:10
9:25
9:40
10:10
FUNDARSTJÓRN:
Rakel Sveinsdóttir hjá CreditInfo Group og Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa
VINNUSTOFUR:
Með Opna Háskólanum í HR, Menntavegi frá klukkan 13.00 til 16.10
13:00-14:00
14:10-15:00
15:10-16:10
Fjöldi þátttakenda í vinnustofur er takmarkaður
EFNAHAGS- OG
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
HILTON
REYKJAVÍK NORDICA
Skráning á:
WWW.SA.IS
LANDSBANKINN
Benja Stig Fagerland: The road to the board room
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá KPMG: Hlutverk, ábyrgð
og skyldur stjórnarmanna
Mari Teigen: The ideal practises about gender quotas