Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 80

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 80
7. maí 2011 LAUGARDAGUR40 timamot@frettabladid.is Annríki setur svip á vordaginn hjá Magnúsi Tuma Guð- mundssyni jarðeðlisfræðingi. Í kortérs hléi milli funda gefst þó færi á símaviðtali í tilefni fimmtugsafmælis hans á morg- un. Skyldu allir dagar vera svona þaulbókaðir? „Það eru mikil fundahöld þessa vikuna,“ viðurkennir hann og segir ástæð- una meðal annars þá að hann sé deildarforseti Jarðvísinda- deildar HÍ og þar sé unnið að stefnumótun þessa dagana, auk skipulagningar á kennslu haustsins. „Ég ætla mér ekki að verða ellidauður í stjórnunarstörfum,“ segir hann. „Eigi maður að halda áhuganum á faginu er nauðsynlegt að taka þátt í einhverjum rannsóknum. Svo hef ég gaman af kennslu líka en hef lítið getað sinnt henni núna.“ Magnúsi Tuma skaut upp á sjónvarpsstjörnuhimininn í stóra Grímsvatnagosinu 1996 sem ungum og ferskum vís- indamanni. Hvað finnst honum um hálfrar aldar afmælið? „Það leggst vel í mig. Ég held ég hafi lært á sjálfan mig með aldrinum og orðið vitrari.“ Magnús Tumi er Reykvíkingur. Móðir hans er fædd í Hnífsdal en flutti ung suður. Faðir hans er úr Grindavík. „Ég hef aðeins tengsl við mitt fólk í Grindavík,“ segir hann. „Svo hef ég kynnst ágætum frændgarði í Mýrdalnum í gegn- um starf mitt kringum eldfjöllin. Þaðan fæ ég hörðustu gagn- rýnina þegar þekkingarleysi vísindamanna þykir keyra úr hófi fram! Það er nauðsynlegt fyrir fólk í Reykjavík að hafa tengingar út á land til að skilja Ísland.“ Áhugi Magnúsar Tuma á jarðvísindum kviknaði snemma. „Útilegur voru í uppáhaldi og ég varð strax áhugasamur um landið og náttúruna. Tveir móðurbræður mínir eru jarðfræð- ingar og ég hneigðist snemma í svipaða átt. Ég hafði líka gaman af eðlisfræði og stærðfræði og því lá beint við að veita áhuganum í einn farveg og fara í jarðeðlisfræði. Hún snýst um að nota eðlisfræðilegar aðferðir til að rannsaka jörðina,“ útskýrir hann. Hann telur affarasælast að hópur fólks með mismunandi bakgrunn vinni saman. Þannig náist að leysa flókin vandamál. „Ef við tökum gosið í Eyjafjallajökli þá þarf jarðskjálftafræðinga, vatnafræðinga, veðurfræðinga og ýmsar gerðir af jarðfræðingum til að fá heildarmynd af því sem gerðist.“ Í lokin er Magnús Tumi inntur eftir tómstundaiðkun. „Vinnutíminn vill verða langur en til að nefna eitthvað sem við hjónin gerum saman þá höfum við sótt tíma í samkvæmis- dansi í fimmtán ár hjá Heiðari Ástvaldssyni. Það er skemmti- leg tilbreyting frá öllu öðru. Svo hef ég verið í leikfimihópi hjá Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara í tíu ár. Oft er púl í mælingaferðum en með því að stunda leikfimi er hægt að vera næstum eins og 25 ára býsna lengi.“ gun@frettabladid.is MAGNÚS TUMI: ER FIMMTUGUR Dansar við frúna vikulega 54 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON prófessor er 54 ára í dag.„Málræktin gerir annað og meira en að krefjast orku, hún er orkugjafi.“ JARÐEÐLISFRÆÐINGURINN FIMMTUGI „Það er nauðsynlegt fyrir fólk sem býr í Reykjavík að hafa tengingar út á land til að skilja Ísland.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bestu þakkir til allra sem heiðruðu minningu mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Arinbjarnar Hjálmarssonar frá Vagnbrekku í Mývatnssveit, Lindasíðu 2, Akureyri, og sýndu fjölskyldunni samúð og vinarhug við andlát hans og útför. Halldóra Sigríður Þórarinsdóttir Kristín Arinbjarnardóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórarinn Arinbjarnarson Ingibjörg Antonsdóttir Halldór Arinbjarnarson Edda G. Aradóttiir Hjálmar Arinbjarnarson Gizelle Balo Ásdís H. Arinbjarnardóttir Þórður Pálsson afabörn og langafabörn Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Gísladóttir frá Ísafirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 23. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 9. maí kl. 13.00. Sigríður Þórðardóttir Pétur Konráð Hlöðversson Þorbjörg Auður Þórðardóttir Viðar Bragi Þórðarson Ragnheiður Bára Þórðardóttir Timó Jensen og barnabörn Benedikt Benediktsson kennari, Þórðarsveig 6, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. maí kl. 13.00. Systkini hins látna. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Lissýjar Bjarkar Jónsdóttur Hlíðarhjalla, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Landspítalanum krabbameinslækningadeild 11-E fyrir hlýtt og gott viðmót og umönnun. Séra Þór Haukssyni útfararstjóra og frábæru tónlistarfólki eru færðar þakkir fyrir þeirra þátt við útförina. Jón Viðar Matthíasson Helga Harðardóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Jónsdóttir „Imma á Hernum“ til heimilis að Norðurgötu 38, Akureyri, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Reykjavík mánudaginn 9. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþökkuð. Þeim sem vilja minnast Ingibjargar er bent á sjóð til styrktar æskulýðsstarfi Hjálpræðishersins, 162-26-37722, kt. 140132-7999. Rannveig Óskarsdóttir Einar Björnsson Hákon Óskarsson Heiður Agnes Björnsdóttir Daníel Óskarsson Anne Gurine Óskarsson Mirjam Óskarsdóttir Torhild Ajer barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Jónsson Birnustöðum, lést á Landspítalanum 29. apríl sl. Jarðsungið verður frá Skálholtskirkju laugardaginn 7. maí nk. kl. 14.00. Sigrún Kristbjörnsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir Þórarinn Óskarsson Guðlaug Guðmundsdóttir Haraldur M. Kristjánsson Kristbjörn Guðmundsson Sigrún Magnúsdóttir Jóna Guðmundsdóttir Gísli Sigurðsson Jón Guðmundur Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir Ágúst Guðmundsson Jóhanna Valgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar og bróðir, Þorsteinn Björnsson Neðstabergi 10, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 2. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. maí kl. 13.00. Kristrún Bragadóttir Björn Davíð Þorsteinsson Katrín Ingunn Björnsdóttir Elskulegur sambýlismaður minn, pabbi, sonur og bróðir, Dr. Erlendur Ásgeir Júlíusson til heimilis að Studiegången 13, Gautaborg, Svíþjóð, varð bráðkvaddur í London 19. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 10. maí kl. 15.00. Guðrún Stephensen Jökull Ásgeirsson Júlíus Sigurðsson Jóhanna Ellý Sigurðardóttir Hildur Júlíusdóttir Júlíus Þór Júlíusson Íris Guðrún Ragnarsdóttir Davíð Júlíusson Kristín Inga Guðmundsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Gunnar Jónsson Birkivöllum 11, Selfossi, andaðist á heimili sínu 3. maí. Þór Stefánsson Sigríður Waage Jóhanna H. Magnúsdóttir Kristín B. G. Marx Erhard Marx Stefán Þór Gunnarsson Elísa Rós Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Nanna Ída Kaaber hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Lindargötu 57, lést fimmtudaginn 5. maí. Árni Emil Bjarnason Hulda Júlíusdóttir Ástríður Björg Bjarnadóttir Björn Ólafur, Júlíus og Nanna Árnabörn Hörður Bjarni og Haukur Emil Kaaber Erna María, Flóki Hrafn og Emil Arthúr.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.