Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 92

Fréttablaðið - 07.05.2011, Side 92
7. maí 2011 LAUGARDAGUR52 52 menning@frettabladid.is Dansleikhúshópurinn Ég og vinir mínir frumsýnir verkið Verði þér að góðu í Kassanum í Þjóðleikhús- inu annað kvöld. Sami hópur stóð að sýningunni Húmanímal, sem sló í gegn fyrir tveimur árum og var meðal annars tilnefnd til níu Grímuverðlauna. Hópurinn er samsettur af dönsurum, leikurum, tónlistarmanni og hönnuði. Aðstandendur sýningarinnar lýsa Verði þér að góðu sem sam- kvæmi þar sem félagshlið mann- eskjunnar er brotin til mergjar; hvernig manneskjan kemur fyrir og hvernig hún afhjúpar sig þegar hún er viðkvæm, berskjölduð, ein- mana, hungruð. Félagsveran ver sig, dansar, hreykir sér, lætur til- leiðast og þráir gefandi samskipti. „Ég og vinir mínir hafa ákveð- ið að koma saman í Kassanum og afhjúpa sig og væntingar sínar í sýningu sem berst við að koma vel fyrir,“ segir í lýsingu verksins. Ég og vini mína skipa: Friðrik Friðriksson, Gísli Galdur Þorgeirs- son, Rósa Hrund Kristjánsdóttir, Álfrún Helga Örnólfs dóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einars- son, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir. Listin að koma vel fyrir ÉG OG VINIR MÍNIR Sami hópur og stóð að Húmanímal setur Verði þér að góðu upp. Teikningar, líkön, hönnun- armunir og heimildir um byggingar eftir Einar Þor- stein Ásgeirsson arkitekt eru undirstaða sýningarinn- ar Hugvit sem opnuð verður í Hafnarborg í dag. Einar Þorsteinn hefur verið einn nánasti samstarfs maður Ólafs Elíassonar undan- farin ár. Pétur Ármannsson sýningarstjóri segir hug- myndaheim Einars Þor- steins einstakan á Íslandi. Sýningin Hugvit, sem verður opnuð í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag, er yfirlitssýning yfir feril Einars Þorsteins Ásgeirssonar, en þar vega þyngst áratuga rannsókn- ir hans og uppgötvanir á sviði flat- ar- og rúmfræði. Sýningarstjórar eru Guðmundur Oddur Magnússon listfræðingur og Pétur Ármannsson arkitekt. Ferill Einars Þorsteins er að mörgu leyti einstakur, segir Pétur, ekki síst þegar hann er settur í samhengi við íslenska byggingalist. „Einar Þorsteinn er eini íslenski tengiliðurinn við geimöldina svo- nefndu á 7. áratugnum, þegar hönn- unarheimurinn var mjög upptek- inn af framtíðartækni. Þetta var tímabil tunglferðanna og mikil framtíðar hugsun í gangi sem birt- ist meðal annars í mjög fram- úrstefnulegum hugmyndum um hönnun. Einar Þorsteinn var eini íslenski arkitektinn sem tók upp þennan þráð á 7. áratugnum.“ Á 8. áratugnum stofnaði Einar Tilraunastofnun burðarforma, sem sérhæfði sig í stórum tjaldbygg- ingum og hvolfþökum, eða kúlu- húsum, sem hann reisti nokkur upp úr 1980 og er hvað frægastur fyrir hér á landi. „Það sem vakti fyrir Einari var að finna hagkvæmari, ódýrari og tæknilegri lausnir á því hvern- ig mætti byggja hús. Íslendingar settu formið hins vegar fyrir sig sem og að byggingarefnið væri ekki úr steinsteypu. Þessar hug- myndir féllu því í grýttan jarðveg, ef svo má segja. Einar Þorsteinn var líka fyrstur arkitekta hér á landi til að tala um vistvænt skipu- lag og hönnun um miðbik 8. áratug- arins; áratugum áður en Íslending- ar fóru að huga að slíku.“ Samhliða Tilraunastofunni fékkst Einar Þorsteinn einnig við stærðfræðirannsóknir á ýmsum tegundum flötunga og er í dag álitinn einn fremsti sérfræðingur heims í margflötungum, rýmisleg- um eiginleikum þeirra og hvernig megi hagnýta þá. Þrátt fyrir þessa afrekasögu er hann engu að síður hálfgerður huldumaður á Íslandi, sem Pétur segir skýrast af því að hann hafi verið afgreiddur sem hálfgerður sérvitringur. „Eins og vill henda þá sem eru á undan sínum tíma hér.“ Ferill Einars Þorsteins gekk í endurnýjun lífdaga þegar hann kynntist Ólafi Elíassyni myndlistar manni árið 1996. Með þeim tókst farsælt samstarf og hefur Einar verið einn nánasti samverkamaður Ólafs undanfarin ár. Skýr merki þess er meðal ann- ars að sjá á tónlistarhúsinu Hörpu, að sögn Péturs. „Við förum yfir það á sýningunni að Einar hefur lengi verið að þróa sérstaka teg- und af tólflötungi sem byggir á fimmfaldri symmetríu, en ekki fjórfaldri, eins og hefðbundnir strendingar á borð við tening, og er þar af leiðandi miklu flóknari. Þessi tólfflötungur hefur þann eiginleika að það er hægt að stafla honum saman við aðra þannig að þeir fylli alveg upp í rýmið. Það eru ekki mörg dæmi, ef nokkur, um óreglulega strendinga sem hafa þann eiginleika. Ólafur fékk leyfi hjá Einari til að vinna út frá þessu formi við hönnun Hörpu. Hið geó- metríska form glerhjúpsins er því sköpun Einar Þorsteins, en hvernig síðan unnið er með það er auðvitað höfundarverk Ólafs Elíassonar.“ Pétur segir helsta vandann við að setja saman yfirlitssýningu um feril Einars Þorsteins að það sé úr svo miklu að velja. „En við reynum að setja verkin fram á þann hátt að maður njóti þeirra og fái smá skilning á þeim. Að skilja þær rúmfræðihugmyndir sem Einar vinnur með krefst auð- vitað mun meira. En von okkar er sú að mögulega verði sýningin til þess að kveikja hugmyndir fólks um ákveðin form og heima sem það vissi kannski ekki að væru til áður.“ bergsteinn@frettabladid.is Einstakur hugmyndaheimur PÉTUR ÁRMANNSSON OG EINAR ÞORSTEINN Einar hefur verið brautryðjandi á sviði rúmfræðirannsókna undanfarna áratugi. Afrakstur þeirra má sjá í ýmsum verkum Ólafs Elíassonar, þar á meðal Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RAFLOST Í HAFNARHÚSINU Raflistahátíðin RAFLOST + PIKSLAVERK var opnuð í Hafnarhúsinu á fimmtudag og stendur fram á morgun. Boðið er upp á úrval viðburða, meðal annars fyrirlestra, smiðjur, innsetningar og myndbands- og hljóðverk eftir bæði íslenska og erlenda listamenn. Í dag standa meðlimir í LornaLAB fyrir opinni smiðju í notkun Arduino-bretta í Hafnarhúsinu, frá klukkan 13 til 17 í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. ÍSLENSKA ÓPERAN KVEÐUR GAMLA BÍÓ OPIÐ HÚS Í GAMLA BÍÓI Í DAG KL. 1315 í tilefni flutninga Íslensku óperunnar í tónlistarhúsið Hörpu Gestum velkomið að skoða húsið Kaffi á boðstólum í græna herberginu Búningamátun Leikskrár, plaköt og myndbönd úr sýningum Íslensku óperunnar til sölu á vægu verði Allir velunnarar óperunnar og aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir! - DAGUR HARMONIKUNNAR - Velkomin á létta tónleika Harmonikufélags Reykjavíkur í dag, laugardaginn 7. maí kl. 16:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fjölmörg tónleikaatriði á dagskrá. Harmonikufélag Reykjavíkur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.