Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 110

Fréttablaðið - 07.05.2011, Page 110
7. maí 2011 LAUGARDAGUR70 „Þeir eru mjög ánægðir með dvölina hér hingað til enda búnir að fá gott veður og allt gengið að óskum,“ segir Davíð Óskar Ólafsson en hann heldur utan um myndatöku á vegum True North fyrir hið fræga franska tískuhús Hermés. Tökulið frá Frakklandi og fulltrúar frá tískuhúsinu eru búnir að vera hér á landi í nokkra daga ásamt hvítrússnesku fyrirsætunni Olgu Sherer, en hún er meðal ann- ars andlit hönnuða á borð við Marc Jacobs og Herve Leger. „Við erum búin að vera að mynda á ýmsum stöðum á Suður landi og nú er verið að ákveða hvert för- inni er heitið næst. Frakkarnir hafa hrifist af fjölbreyttu lands- lagi Íslands. Þeir eru að tala um af hverju þeim hafi ekki dottið í huga að koma hingað áður,“ segir Davíð Óskar og bætir við að það séu mikil forréttindi fyrir svona framleiðslu að þurfa bara að snúa sér við og fá þá allt annað mynd- efni. Hermés tískuhúsið er rót gróið fjölskyldufyrirtæki sem var stofn- að árið 1837. Hönnuðir á borð við Martin Margiela og Jean Paul Gaultier hafa hannað fyrir merkið sem er best þekkt fyrir eftirsótt- ar leðurtöskur, sem margra ára biðlisti er eftir, til að mynda hina frægu Birkin-tösku sem er nefnd eftir frönsku söng- og leikkonunni Jane Birkin. Davíð segir að mikið sé um að fræg tískumerki leiti til Íslands til að taka upp myndaþætti og að það eigi eflaust bara eftir að aukast en mörg verkefni True North fel- ast í að aðstoða erlend tökulið sem koma hingað til lands. Umrædd myndataka er af haust og vetrarlínu Hermés og segir Davíð að fatnaðurinn sem er með í för sé íburðarmikill og flottur. „Þetta eru til dæmis stórir pelsar sem ég sé alveg fyrir mér að fari vel á ríkum konum úti í heimi. Þessi fatnaður er örugglega jafn mikils virði og gott einbýlishús á Ísland,“ segir Davíð og bætir við þetta sé mjög flott tískumynda- taka. Afraksturinn má svo sjá í sérstöku Hermés tímariti sem kemur út næsta haust. alfrun@frettabladid.is PERSÓNAN „Þetta var, eins og allt þetta ævintýri, voða gaman,“ segir Baldvin Z, leikstjóri kvikmyndarinnar Óróa. Hún var opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Kristiansand í Noregi sem er nýafstaðin. Viðtökurn- ar voru mjög góðar, bæði þar og í Toronto þar sem myndin var sýnd skömmu áður. „Á frumsýningunni í Noregi var mikið af ungu fólki í bland við bransaliðið. Það talaði um hvað ung- lingarnir sátu grafkyrrir allan tímann. Þau eru vön því að þeir verði órólegir ef þeim leiðist en myndin hélt þeim allan tímann,“ segir Baldvin. Nokkrar opinskáar partí- og kynlífssenur eru í myndinni og fóru þær fyrir brjóstið á sumum. „Ég tók eftir því að þeir eru viðkvæmari en við, sérstak- lega í Kanada. Þau eru alls ekki vön því að það sé farið svona með efnið. Það kom pínu á óvart.“ Baldvin, handritshöfundurinn Ingibjörg Reynis- dóttir og aðalleikarinn Atli Óskar Fjalarsson svör- uðu spurningum áhorfenda á hátíðunum og ein kom þeim í opna skjöldu. Í byrjun myndarinnar kyssir persóna Atla Óskars annan strák og var hann spurð- ur að því hvort kossinn hafi verið raunverulegur eða hvort um tölvugrafík hafi verið að ræða. Órói verður sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim á næstunni. Þessa dagana er verið að sýna hana í Portúgal, í júní verður hún sýnd í Edinborg og í júlí ferðast hún til Seúl í Suður-Kóreu. Í haust verður hún svo sýnd í Varsjá í Póllandi og í fleiri löndum Evrópu. -fb Órói hneykslar Kanadamenn Í NOREGI Atli Óskar Fjalarsson og Ingibjörg Reynisdóttir með rauðar rósir í Kristiansand ásamt Baldvini Z. DAVÍÐ ÓSKAR ÓLAFSSON: HEILLAÐIR AF ÍSLANDI OG KOMA AFTUR Tískuhúsið Hermés mynd- ar vetrarlínu á Íslandi Lilja Hlín Pétursdóttir Aldur: 21 árs. Starf: Bréfberi hjá Íslandspósti í Hafnarfirði. Fjölskylda: Pabbi Pétur Örn Péturs- son, mamma Hólmfríður Þórisdóttir og fjögur systkini. Búseta: Lækjargata í Hafnarfirði. Stjörnumerki: Hógvær og góð vog. Lilja vann myndasögukeppni Ókeibæ-kur og hlaut að launum útgáfusamning við fyrirtækið. „Við höfum hitt heilan helling af blaðamönnum og hina keppend- urna en þetta er víst stór þáttur af keppninni,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn liðsmanna Vina Sjonna, sem flytja framlag Íslands í Eurovision. Keppnin hefst á þriðju- daginn í Düsseldorf en Vinirnir flytja lag Sigurjóns Brink, Coming Home, við enskan texta ekkju hans, Þórunnar Ernu Clausen. Laginu hefur ekki verið spáð mikilli velgengni en eftir því sem á hefur liðið hefur það verið að fikra sig upp um sæti í könnunum. „Það verður hins vegar engin brjálaður ef við komumst ekki áfram. Við erum alveg búin undir það að þetta geti verið búið á þriðjudaginn því þetta er mikið lottó.“ Strákarnir sex hafa verið duglegir við að mæta í hinar og þessar Euro- vision-veislur og slógu í gegn í makedónsku veislunni. „Pálmi hlammaði sér bara við raf- magnspíanóið, spilaði einhvern brjálaðan forleik og svo stál- um við bara senunni.“ Önnur æfing hópsins var í gær og Hreimur segir að hún hafi gengið vonum framar, þau atriði sem Þórunn og fólkið frá RÚV vildu fá fram náðu í gegn. Á blaðamannafundin- um sýndu „strákarnir okkar“ tónlistarhæfi- leika sína, tóku ansi veglega Eurovision- syrpu með gömlum og gildum Euro- vision-slögurum og uppskáru mikið lófaklapp frá allri pressunni. Þór- unn Erna tók meira að segja lagið í I Will Never Let You Go. „Í kvöld erum við síðan að fara að spila í partíi hjá hollensku keppendunum og svo til Noregs.“ -fgg Slógu í gegn hjá Makedónum VINSÆLT MERKI Tökulið frá franska tískuhúsinu Hermés er statt hér á landi til að gera tískuþátt með haust- og vetrarlínu merkisins. Davíð Óskar Ólafsson leiðbeinir Frökkunum í myndatökunni og segir þá vera yfir sig hrifna af landinu. NORDICPHOTO/GETTY MIKIÐ STUÐ Hreimur Örn og félagar í Vinum Sjonna eru búnir að æfa sig fyrir keppnina á þriðjudaginn og eru við öllu búnir. Ókeypis tannlæknaþjónusta Tryggingastofnun | Laugavegi 114 | 105 Reykjavík | Sími 560 4400 | tr@tr.is Fyrir hverja? Sjúkratryggð börn tekjulágra foreldra/forráðamanna á Íslandi. Hvaða þjónusta? Nauðsynlegar tannlækningar að mati tannlækna tannlæknadeildar HÍ. Hvar er þjónustan veitt? Í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16, Reykjavík. Hægt er að sækja um endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar fyrir börn utan af landi. Hvernig er sótt um? „Umsóknareyðublað um tannlæknaþjónustu fyrir börn“, á tr.is/tannvernd-barna. Skila umsókn til Tryggingastofnunar, Laugavegi 114 og umboða hennar um land allt. Skönnuðum afritum af undirrituðum umsóknum má skila á netfangið tannverndbarna@tr.is. Hvenær er þjónustan veitt? Umsóknarfrestur er 1.maí til 1. júní 2011. Þjónustan er veitt á tímabilinu 1. maí til 26. ágúst. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tryggingastofnun í síma 560 4400, gjaldfrjálst númer 800 6044, hjá umboðum sýslumanna um allt land og á vefnum tr.is. S am kv æ m t lö gu m u m f él ag sl eg a að st oð 9 9/ 20 07 o g re gl ug er ð nr . 40 8/ 20 11 ÍM Y N D U N A R A F L / T R FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SKÚBB Meiri Vísir. Sun 29.5. Kl. 20:00 Góði dátinn Svejk (Kúlan) Allir synir mínir (Stóra sviðið) Mið 11.5. Kl. 20:00 Fim 12.5. Kl. 20:00 Mið 18.5. Kl. 20:00 Síð. sýn.Ö Sun 8.5. Kl. 14:00 Sun 8.5. Kl. 17:00 Sun 15.5. Kl. 14:00 Sun 22.5. Kl. 14:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fös 13.5. Kl. 20:00 Lau 14.5. Kl. 16:00 br.sýn Fim 19.5. Kl. 20:00 Fös 3.6. Kl. 20:00 Lau 4.6. Kl. 20:00 Fim 9.6. Kl. 20:00 Fös 10.6. Kl. 20:00 U Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Brák (Kúlan) Fös 13.5. Kl. 20:00 Aukasýn. Sun 15.5. Kl. 20:00 Aukasýn. Lau 7.5. Kl. 20:00 Frums. Sun 8.5. Kl. 20:00 Sun 15.5. Kl. 20:00 Fös 20.5. Kl. 20:00 Lau 21.5. Kl. 20:00 Verði þér að góðu (Kassinn) Ö Ö Ö Ö Ö Ö Haze (Stóra sviðið) Fim 2.6. Kl. 20:00 Við sáum skrímsli (Stóra sviðið) Fös 20.5. Kl. 20:00 Lau 21.5. Kl. 20:00 Ö Big Wheel Café (Stóra sviðið) Fös 27.5. Kl. 20:00 Subtales - Söngur millistéttarinnar (Kassinn) Þri 24.5. Kl. 20:00
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.