Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 2
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Jón, er ekki hættulegt að gera
hreindýr rándýr?
„Hættan er takmörkuð svo fremi að
rándýrið – veiðimaðurinn – missi
ekki stjórn á sér.“
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor á
Akureyri, segir að fá megi verulega hærri
tekjur af hreindýrum hérlendis með því
að selja veiðileyfi til hæstbjóðanda í stað
þess að úthluta leyfunum á föstu verði.
MENNTUN Grunnframfærsla
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
(LÍN) hækkar um tíu prósent á
næsta skólaári, en ríkisstjórnin
samþykkti tillögu mennta- og
menningarmálaráðherra þess
efnis í gær.
Með þessu fer grunnfram-
færsla einstaklings úr 120 þús-
undum upp í 133 þúsund, upphæð
fyrir einstakling í sambúð með
eitt barn verður 166 þúsund og
upphæð fyrir einstæð foreldri
með eitt barn verður 192 þúsund.
- þj
Grunnframfærsla námsfólks:
LÍN hækkar
um 10 prósent
SPURNING DAGSINS
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Siemens
þvottavélar,
þurrkarar og
uppþvottavélar
á tilboðsverði.
Hreint & klárt
í maí
BARNALÁN Danskar konur eignast mun
fleiri börn nú en fyrir aldarfjórðungi.
NORDICPHOTOS/GETTY
DANMÖRK Danskar konur eru mun
duglegri við barneignir nú en
fyrir aldarfjórðungi, en ný könn-
un OECD leiðir í ljós að Danmörk
er það aðildarland þar sem meðal-
fjöldi barna hefur aukist mest frá
árinu 1984.
Árið 2009 átti hver dönsk kona
1,84 börn, sem er nær þriðjungs-
hækkun frá 1984. Í dönskum miðl-
um kemur fram að þessi hækk-
un sé rakin til þess að konum sé
í auknum mæli gert kleift að sam-
þætta fjölskyldulíf og starfsframa.
Næst á eftir Dönum komu Svíar,
Hollendingar, Norðmenn og Belg-
ar, en barneignir hafa dregist mest
saman í Mexíkó á tímabilinu. - þj
Ný úttekt OECD:
Aukning í barn-
eignum Dana
BANDARÍKIN, AP Flóðin í Missis-
sippi náðu nærri 15 metra hæð í
borginni Memphis í gær, sem er
reyndar ekki met en olli engu að
síður miklum skaða.
Ekki er búist við því að flóðin
byrji að réna þar í borg fyrr en
í dag.
„Það verður dýrt að hreinsa
til eftir þetta, það krefst mikils
vinnuafls,“ sagði Bob Nations,
framkvæmdastjóri björgunar-
sveita, og sér fram á erfiða
daga, bæði fyrir félaga sína og
íbúana.
Sunnar með fljótinu bjuggu
íbúar sig undir hið versta. Flóð-
in eru að berast niður með ánni
og hafa bændur reynt að verja
uppskeru sína með því að reisa
heimatilbúnar stíflur. - gb
Flóðin í Mississippi:
Mikið tjón við
bakka fljótsins
AKUREYRI Lögreglan á Akureyri
notar nú reiðhjól í auknum mæli
við eftirlit. Tveir hjólandi lög-
reglumenn stöðvuðu drukkinn
ökumann vespu aðfaranótt þriðju-
dags á Mýrarvegi við Kaupang.
Maðurinn, sem er fæddur árið
1987, var sviptur ökuréttindum.
Samkvæmt lögreglunni á Akur-
eyri gefst þessi ferðamáti vel á
stærri mannamótum.
Einnig henta reiðhjólin vel
við eftirlit að næturlagi, enda
heyra lögreglumenn betur til inn-
brotsþjófa, sem heyra þá síður
lögregluna nálgast. - sv
Akureyrarlögreglan hjólar:
Ölvaður maður
á vespu náðist
JAFNRÉTTISMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra ætlar
ekki að kæra úrskurð kærunefnd-
ar jafnréttismála, vegna ráðning-
ar Arnars Þórs Mássonar í starf
skrifstofustjóra, til dómstóla.
Arnar Þór var ráðinn sem
skrifstofustjóri á nýrri skrifstofu
stjórnsýslu- og samfélagsþróunar
í ráðuneytinu. Anna Kristín Ólafs-
dóttir taldi að með ráðningunni
hefðu jafnréttislög verið brotin
og kærði málið til kærunefndar
jafnréttismála, sem úrskurðaði að
jafnréttislög hefðu verið brotin.
Málið var tekið til skoðunar í
forsætisráðu-
neytinu, hjá
ríkislögmanni
og hjá rýnihópi
þriggja sér-
fræðinga.
Í niðurstöðu
rýnihóps-
ins segir að
mismunandi
niðurstöður
kærunefndar
jafnréttismála annars vegar og
ráðuneytisins hins vegar byggi
fremur á því að „ólíkum aðferð-
um hafi verið beitt við að meta
hæfni umsækjenda en að hæfasti
umsækjandinn hafi ekki verið
skipaður“.
Forsætisráðherra segist í til-
kynningu vilja ljúka málinu í sátt.
„Þrátt fyrir að ýmis atriði hefðu
getað réttlætt málshöfðun til
ógildingar úrskurði kæruefndar
jafnréttismála, m.a. að mati rík-
islögmanns, er það vilji forsætis-
ráðherra að freista þess að ljúka
málinu með sátt,“ segir í tilkynn-
ingu.
Ráðherra hefur því falið
ríkislögmanni að hefja formlegar
sáttaumleitanir í málinu.
Telja að ólíkum aðferðum hafi verið beitt við að meta hæfa umsækjendur:
Jóhanna leitar sátta við Önnu Kristínu
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
SJÁVARÚTVEGUR Ríkisstjórnin
afgreiddi frumvarp um breytingar
á lögum um stjórn fiskveiða í gær.
Samkvæmt frumvarpinu er gerð sú
grundvallarbreyting á lögunum að
leiga á varanlegum aflaheimildum
verður óheimil.
Veiðigjald hækkar mikið og
allt að fimmtán hundruð millj-
ónum deilt sérstaklega út til
landsbyggðarinnar.
Frumvarp sjávarútvegsráðherra
um breytingar á stjórn fiskveiða
var afgreitt í ríkisstjórn í gær og
verður til umfjöllunar í þingflokk-
um stjórnarflokkanna í dag, ef
áætlanir ganga eftir. Þá er lokið
tafsamri vinnu sem hófst eftir að
sáttanefnd í sjávarútvegi skilaði
ráðherra lokaskýrslu og tillögum
sínum 7. september í fyrra.
Jón Bjarnason
sjávarútvegsráð-
herra sagði eftir
ríkisstjórnar-
fundinn að meg-
instef frum-
varpsins væri að
fiskveiðiauðlind-
in væri í eigu og
ráðstöfun þjóð-
arinnar.
Þegar þing-
flokkar stjórnarflokkanna hafa
lokið sinni yfirvegun fá hagsmuna-
aðilar að sjá frumvarpið og fyrst
þá verður það lagt fyrir Alþingi.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
29. apríl er næsta víst að nýtingar-
tími útgerðarinnar verði fimmtán
ár með mögulegri framlengingu
um fimm ár á miðjum samnings-
tíma. Þær aflaheimildir verði
leigðar gegn gjaldi. Í byrjun fara
hins vegar um átta prósent afla-
heimilda í potta til samfélags-
legra verkefna – líkt og nú er með
byggða- og strandveiðakvóta. Að
fimmtán árum liðnum er gert ráð
fyrir því í frumvarpinu að þetta
hlutfall verði fimmtán prósent af
heildarafla.
Ein af stórum spurningum sem
er ósvarað um efni frumvarpsins
er hvernig farið verður með við-
bótaraflaheimildir. Eftir því sem
næst verður komist færi stór hluti
þeirra í pottana til að hraða upp-
byggingu þeirra.
Eins og áður sagði verður
framsal varanlegra aflaheimilda
óheimilt en kvóti sem aðeins er
bundinn til eins árs í senn verður
framseljanlegur.
Veiðigjald hækkar umtalsvert,
en þær breytingar eru settar fram
í sérstöku frumvarpi. Heimildum
greinir á um hversu mikið og nefnd
hefur verið 50 prósenta hækkun.
Ljóst er hins vegar að drjúgum
hluta tekna af veiðigjaldi, sem
verða þá allt að fimm milljarðar
verði það hækkað um 50 prósent,
verður deilt út til landsbyggðar-
innar sérstaklega. Þessar breyt-
ingar taka gildi frá og með nýju
fiskveiðiári 1. september en aðrar
breytingar ári síðar.
svavar@frettabladid.is
Framsalið aflagt og
veiðigjaldið hækkað
Samkvæmt frumvarpi sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða verður framsal
varanlegra aflaheimilda afnumið. Veiðigjald hækkar og hluti þess eyrnamerkt-
ur landsbyggðinni. Nýtingar- eða leigutími útgerðarinnar verður fimmtán ár.
FARSÆLL Á VEIÐUM Verði framsalið aflagt er talið að það gæti tekið súrefnið frá
útgerðum sem stólað hafa á leigukvóta. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
JÓN BJARNASON
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur,
líkt og héraðsdómur áður,
hafnað kröfu lögreglunnar
um gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir manni sem beitti unga
stúlku kynferðislegu ofbeldi á
Austurvelli fyrir viku.
Maðurinn réðst aftan að stúlk-
unni, á meðan hún sat á hækjum
sér og kastaði af sér vatni, og
stakk fingri fyrirvaralaust upp
í endaþarm hennar. Sjálfur taldi
hann sig, að eigin sögn, hafa
stungið fingrinum í leggöng
hennar. Hún kærði hann fyrir
nauðgunartilraun.
Maðurinn stökk á flótta en
náðist skömmu síðar. Hann
hefur við yfirheyrslur sagst
hafa „viðurstyggð“ á þessum
„fíflagangi“ sínum.
Dómurum þótti maðurinn
ekki nægilega hættulegur til
að það réttlætti að setja hann í
varðhald á grundvelli almanna-
hagsmuna. - sh
Réðst á konu á Austurvelli:
Hafna kröfu
um varðhald
FÓLK Framlag Íslands í Eurovision-söngvakeppninni,
lagið Coming Home í flutningi Vina Sjonna, var eitt
tíu laga sem komust upp úr fyrri undanriðli keppn-
innar í gærkvöldi og mun því taka þátt í lokakeppn-
inni á laugardagskvöld.
Flutningur lagsins, sem er eftir Sigurjón heitinn
Brink og konu hans, Þórunni Ernu Clausen, var lýta-
laus á sviðinu í Düsseldorf. Fáni Íslands kom svo upp
úr síðasta umslaginu af þeim tíu sem höfðu að geyma
sigurvegara kvöldsins. Það sama hafði gerst undan-
farin tvö ár.
„Við trúum þessu ekki ennþá, við erum öll hágrát-
andi hérna,“ sagði Þórunn þegar Fréttablaðið náði tali
af henni nokkrum mínútum eftir að úrslitin lágu fyrir.
Þórunn segir að hópurinn hafi verið búinn að
afskrifa það að komast áfram. „Við héldum að þetta
væri löngu búið, fyrst Sviss var inni og Noregur og
Rússland voru bæði eftir. Við skildum samt ekki af
hverju myndatökumaðurinn var hérna á okkur.“
Að sögn Þórunnar hugðist hópurinn nýta sigurvím-
una í að skemmta sér ærlega í gærkvöldi, enda fjöl-
skyldur Sigurjóns og Þórunnar staddar í Þýskalandi
til að fylgjast með árangrinum.
Spurð hver markmiðin séu fyrir laugardagskvöld-
ið segir Þórunn að það hafi ekki verið rætt. „Undan-
úrslitin voru miklu erfiðari fyrir okkur heldur en
laugardagurinn. Nú höfum við bara gaman af þessu.
Markmiðið er bara að gera þetta frá hjartanu eins og
við gerðum í dag,“ segir Þórunn Erna Clausen. - sh
Íslenski fáninn dróst úr lokaumslaginu í þriðja sinn á þremur árum:
Vinir Sjonna komnir í úrslitin
ÓAÐFINNANLEGUR FLUTNINGUR Sexmenningarnir í Vinum
Sjonna voru, líkt og aðrir í hópnum, himinlifandi í gærkvöldi.
NORDICPHOTOS/GETTY