Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 10
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR10
DANMÖRK Lars Lökke Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
segist ekki ætla að rjúfa þing og
boða til nýrra kosninga. Síðustu
daga hefur heyrst sterkur orð-
rómur þess efnis en á sínum viku-
lega blaðamannafundi í gær sagði
Lökke að slíkt væri honum ekki
efst í huga.
Hægriflokkarnir sem eru nú við
völd hafa verið að rétta úr kútnum í
skoðanakönnunum undanfarið þar
sem áður rífleg forysta vinstri-
flokkanna hefur dregist jafnt og
þétt saman. Því telja margir stjórn-
málaskýrendur að Lökke nýti sér
tækifærið og blási jafnvel til kosn-
inga í þessari viku.
„Í Danmörku er kosið á fjögurra
ára fresti og yfirstandandi kjör-
tímabili lýkur í nóvember. Það
er sá tímarammi sem við höfum
til afnota og margt liggur fyrir
okkur,“ sagði Lökke á fundinum.
Hann sagði að mörg stórmál
þyrfti að klára áður en gengið yrði
til kosninga. Þar á meðal væri
frumvarp um stefnumótun til árs-
ins 2020 þar sem gert væri ráð
fyrir miklum breytingum á eftir-
launakerfinu. Meðal annars verður
eftirlaunaaldur hækkaður í þrep-
um en auk þess eru boðaðar breyt-
ingar á skattakerfi, námsstyrkjum
og þar fram eftir götunum.
Gert er ráð fyrir að spara um 47
milljarða danskra króna á tíma-
bilinu til að koma jafnvægi á ríkis-
fjármálin.
Lökke vildi þó ekki útiloka neitt
þar sem hann sagði að mögulega
yrði nauðsynlegt að boða til kosn-
inga eftir að umbótafrumvarpinu
yrði komið í gegn. - þj
Danska stjórnin ætlar ekki að boða til þingkosninga:
Vill ljúka umbótum
fyrir kosningar
LARS LÖKKE RASMUSSEN Forsætis-
ráðherra Danmerkur segist ekki hafa
hugsað sér að boða til kosninga.
GETTYIMAGES/AFP
Viðskiptavinir Símans
fá 25% afslátt af
GSM aukahlutum í dag!
Magnaðir
miðvikudagar!
GSM
ferðahleðslutæki
á 25% afslætti
Fimmtudagur 12. maí.
Sauðárkrókur kl. 12 á Mælifelli, Aðalgötu 7.
Akureyri kl. 18 á Strikinu, Skipagötu 14.
Föstudagur 13. maí.
Akranes kl. 12 á Gamla kaupfélaginu.
Mánudagur 16. maí.
Reykjavík kl. 12 á Grand hótel, Sigtúni 38.
Reyðarfjörður kl. 18 í fundarsal AFLs Búðareyri 1.
Þriðjudagur 17. maí.
Selfoss kl. 12 á Hótel Selfoss.
Miðvikudagur 18. maí.
Suðurnes kl. 12 á Flughóteli.
RAFIÐANAÐARSAMBAND ÍSLANDS
Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | sími: 580 5200 | Fax: 580 5220 | rsi@rafis.is
KYNNINGAFUNDIR
VEGNA KJARASAMNINGS
RSÍ OG SA/SART
Á ALMENNA MARKAÐNUM
EFNAHAGSMÁL Viðskiptaráð Íslands
(VÍ) hefur áhyggjur af vexti hins
opinbera miðað við einkageirann.
Hlutfallið milli geiranna hefur auk-
ist um fimmtung frá árunum fyrir
hrun.
Í Skoðun, fréttabréfi VÍ, sem
kemur út í dag, er sett fram ákveð-
in aðferð til að
meta styrk hag-
kerfisins til að
standa undir
opinberri þjón-
ustu. Með svo-
nefndum stuðn-
ingsstuðli
atvinnulífsins er
fjöldi starfsfólks
í einkageiranum
borinn saman
við þá sem hafa framfæri sitt af
hinu opinbera, hvort sem er í formi
launagreiðslna eða bóta.
Á síðasta ári var hlutfallið 1,54
opinbera geiranum í hag þar sem
125 þúsund starfsmenn voru á
almennum vinnumarkaði á móti
rúmlega 190 þúsund manns hjá
hinu opinbera. Það er nær fimmt-
ungi hærra hlutfall en var árið 2007
þegar stuðullinn var 1,29.
Að mati VÍ ber lægri stuðull
vitni um sterkara hagkerfi, og því
er hækkunin sem hefur orðið að
undanförnu nokkurt áhyggjuefni.
„Við erum nú með opinberan
geira sem er í samræmi við umsvif
atvinnulífs eins og það var á bólu-
tímanum,“ segir Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri VÍ, í samtali við
Fréttablaðið.
„Við höfum, eins og margir aðrir,
kallað eftir því að opinber rekstur
verði færður til baka í samræmi
við núverandi efnahagsaðstæður.
Það verður sársaukafull aðgerð, en
því hraðar sem það gengur, þeim
mun sterkara verður hagkerfið á
eftir.“
Finnur leggur þó áherslu á að
með þessum orðum sé ekki gert
lítið úr mikilvægi opinberrar þjón-
ustu eða velferðarkerfisins.
Í fréttabréfinu sé einmitt lögð
áhersla á að atvinnulíf og heimil-
in í landinu séu ekki tveir aðskildir
hópar, heldur séu hagsmunir þeirra
samtvinnaðir.
Hagsæld til lengri tíma bygg-
ist hins vegar á öflugum einka-
geira sem sé forsenda þess að hið
opinbera geti veitt nauðsynlega
þjónustu.
„Atvinnurekstur á einkarekn-
um forsendum mun á endanum
draga hagkerfið upp úr kreppunni
og skapa verðmæti til að standa
undir lífsgæðum og velferð,“ segir
Finnur.
Hann bætir því við að hjálplegt
væri ef „umræða um atvinnumál
endurspeglaði þetta samhengi í
meiri mæli og að í aðgerðum stjórn-
valda fælist hvatning til atvinnu-
rekstrar frekar en hitt“.
thorgils@frettabladid.is
Hlutur einkageirans of rýr
Viðskiptaráð Íslands segir hátt hlutfall opinbera geirans í atvinnulífinu vera áhyggjuefni. Samkvæmt
stuðningsstuðli hefur hlutur hins opinbera aukist um fimmtung frá árinu 2007. Átaks sé því þörf.
FINNUR ODDSSON
VERK AÐ VINNA Viðskiptaráð Íslands segir áhyggjuefni að vegur opinbera geirans í
íslensku atvinnulífi sé að vaxa í hlutfalli við einkageirann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir að berja
annan mann í höfuðið með járn-
eða álröri. Refsingin var skilorðs-
bundin til tveggja ára.
Fórnarlambið hlaut skurð á
enni sem sauma þurfti saman.
Árásarmaðurinn játaði sök
fyrir dómi. Hann var jafnframt
dæmdur til að greiða þeim sem
hann sló skaðabætur að fjárhæð
376.125 krónur. Hann á ekki að
baki neinn sakaferil svo vitað sé.
Sex mánuðir á skilorði:
Barði mann
með málmröri
JÖKULLINN HULINN Á hæsta fjalli
Þýskalands, Zugspitze (2.962m),
hafa menn tekið til þess ráðs að hafa
jökulinn undir striga frá maí fram í
septemer ár hvert. NORDICPHOTOS/AFP