Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 20
11. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ● garðhúsgögn Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA, stendur fyrir samkeppni nú á vormánuðum í samvinnu við Hveragerðisbæ. Tilefnið er garðyrkjusýningin Blóm í bæ sem hald- in verður í Hveragerði 23.- 26. júní. Í ár er þema sýningar- innar Skógurinn. Samkeppnin er einstaklingskeppni félagsmanna en þó er leyfilegt að fleiri taki sig saman um tillögur. Vinnings- tillagan verð- ur framkvæmd á vegum Hvera- gerðisbæjar undir umsjá Félags skrúðgarðyrkjumeistara en fram- kvæmdum á að vera að mestu lokið fyrir sýninguna Blóm í bæ. Keppt er um hönnun á gamalli einkalóð í bænum sem nú verður gerð að tímabundnum almenn- ingsgarði. Húsið sem var á lóðinni fór illa í jarðskjálftanum 2008 og var nýlega fjarlægt. Garðurinn er gróinn og talsvert af stórum trjám og runnum. Þar sem húsið stóð áður er nú malar- plan sem einnig er hluti af samkeppn- issvæðinu. Lagt er upp með að svæðið henti sérstaklega vel sem áningar- staður með eldri borgara í huga. Lóðin liggur við Reykjamörk, milli tjaldsvæðis og Lista- safns Árnesinga. Gaman verður að sjá hvernig til tekst en almenning- ur getur virt fyrir sér afraksturinn á sýningunni Blóm í bæ í júní. Nánari upplýsingar á www.fila.is Keppt um hönnun garðs í Hveragerði Gaman verður að sjá afrakstur vinningstillögunnar í samkeppni FÍLA og Hveragerðis- bæjar. Garður er sönn paradís þeim sem hann eiga og draumastaður fyrir samfundi og hvers kyns veisluhöld þegar sumarið yljar líkama og sál. Barnaafmæli eiga þar sérstaklega vel heima og í raun óhugsandi að ætla smáfólki að hangsa inni þegar sólin skín og útileikir kalla. Þá þykir börnum hreinasta hátíð að borða kökur undir bláhimni og sötra litskrúðuga afmælisdrykki. Garðveisla og ÆSKUFJÖR Veislumatur lítur aldrei eins fallega og girnilega út og í blómum prýddum garði, þar sem yndislegt er að njóta veitinga og samveru úti undir berum himni. Enda þótt sólin skíni kemur kertaljós ótrúlega fallega út í dagsbirtunni og setur hátíðlegan blæ á veisluhöldin. Garðveislur bjóða upp á skemmtilega leiki fyrir gestina, eins og krokket. Svalandi jarðarberja- hristingur í sumarlegum glösum freistar í sólríkri garðveislu. Litríkar múffur með stjörnum og dísætu kremi eru ómótstæði- legt góðgæti þar sem börn koma saman. Það tilheyrir að verða svolítið kökukám- ugur í framan þegar veislan býður líka upp á veltingar í iðagrænu grasinu. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.