Fréttablaðið - 11.05.2011, Qupperneq 6
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Tónlistarhúsið Harpa
verður opnað formlega
á föstudaginn en fram-
kvæmdum á að ljúka í
sumar. Að baki er margra
ára barátta fyrir bygging-
unni og basl við að klára
hana. Fréttablaðið leit yfir
sögu tónlistarhússins.
Þó að rætt hafi verið um nauðsyn
tónlistarhúss í langan tíma var
það ekki fyrr en í byrjun árs 1999
sem ríkið og Reykjavíkurborg til-
kynntu að þau ætluðu að beita sér
fyrir byggingu tónlistarhúss og
ráðstefnumiðstöðvar í miðborg-
inni. Ári seinna var samþykkt
tillaga um afmörkun lóðar við
Austurbakka Reykjavíkurhafn-
ar undir húsið og efnt var til hug-
myndasamkeppni um skipulag
lóðarinnar og næsta nágrennis.
Samningur um byggingu tónlist-
arhúss og ráðstefnumiðstöðv-
ar var síðan undirritaður í apríl
árið 2002.
Geir Haarde og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, sem þá voru
fjármálaráðherra og borgar-
stjóri Reykjavíkur, undirrituðu
samninginn ásamt Tómasi Inga
Olrich, þá menntamálaráðherra,
og Sturlu Böðvarssyni, þáver-
andi samgönguráðherra. Tekið
var fram í samningnum að um
einkaframkvæmd yrði að ræða,
og að sami einkaaðili myndi
einnig reisa og reka alþjóðlegt
hótel á eigin kostnað. Ríki og
borg stofnuðu einkahlutafélagið
Austurhöfn-TR til þess að hrinda
verkefninu í framkvæmd.
Fjárhagslega sterkur fram-
kvæmdaraðili valin
Útboðslýsing kvað á um að tón-
listarhúsið yrði sautján þúsund
fermetrar að stærð og að hótelið
yrði átján til tuttugu þúsund fer-
metrar. Þá var gert ráð fyrir 38
þúsund fermetrum í öðrum bygg-
ingum sem framkvæmdaaðili
myndi kaupa byggingarétt á og
ráðstafa að vild. Fjórum tilboðum
var skilað í verkið en einn hópur-
inn hætti við þátttöku í janúar
2005. Hinir þrír skiluðu fortil-
boðum inn í maí sama ár og síðar
var tveimur boðið að halda áfram
og þróa tillögurnar enn frekar. Í
ágúst lágu endanleg tilboð fyrir
og tilkynnt var að eignarhalds-
félagið Portus Group, í eigu
Landsbankans og Nýsis, sem voru
að hluta í eigu Björgólfs Guð-
mundssonar, hefði hreppt hnossið
við hátíðlega athöfn hinn 21. sept-
ember 2005. Tilboðið hljóðaði upp
á rúmlega tólf milljarða stofn-
kostnað, en árlegt framlag ríkis
og borgar var áætlað að hámarki
600 milljónir á ári.
Gengið var til samninga við
Portus-hópinn í mars 2006, en
Björgólfur Guðmundsson var
sem kunnugt er stjórnarfor-
maður Portusar. Tillaga hópsins
þótti hafa vinninginn í bygging-
arlist, lausn á rekstri bílastæða,
viðskiptaáætlun, fjárhagsleg-
um og stjórnunarlegum styrk,
og metnaðarfullri dagskrá og
starfsemisáætlun. Hin tillagan,
tillaga Fasteignar/Klasa, þótti
Portusi fremri í hönnun og heild-
arskipulagi. Matsnefndin sem tók
um þetta ákvörðun taldi að fyrir-
tækið Portus væri öflugt og fjár-
hagslega sterkt og tillagan væri í
fullu samræmi við menningarleg
markmið.
Framkvæmdir stöðvast
Framkvæmdir hófust eftir að
gengið hafði verið formlega frá
samningum í mars 2006 og var
fyrstu steypunni rennt í mótin í
janúar 2007. Þegar framkvæmdir
hófust var gert ráð fyrir að þeim
yrði lokið árið 2008 en í júlí 2006
tilkynnti ríkisstjórnin þáverandi
að hún vildi fresta framkvæmd-
um um eitt ár til að sporna gegn
þenslu. Þá sagði menntamálaráð-
herrann Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir að hún gerði ráð fyrir að
húsið risi ekki síðar en vorið 2010.
Í kjölfar efnahagshrunsins fór
Portus svo í þrot og framkvæmd-
ir við Hörpu stöðvuðust í nóvem-
ber 2008. Þá stóð hálfklárað tón-
listarhúsið nánast óhreyft fram
í mars 2009, þegar ríki og borg
tóku ákvörðun um að taka við
verkefninu og ljúka við bygg-
ingu hússins. Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra sagði þá að
horft hefði verið í langtímakostn-
að, sem gæti allt að tvöfaldast ef
framkvæmdum hefði verið hætt
þá. Jafnframt væri um 600 störf
að ræða. Austurhöfn, sem var og
er í eigu borgarinnar og ríkisins,
tók yfir bæði Portus og Situs. Hið
síðarnefnda hafði verið stofnað
utan um byggingareitina að tón-
listarhúsinu, en Portus sá um
framkvæmdir og rekstur húss-
ins. Á sama tíma var gengið frá
samkomulagi við Íslenska aðal-
verktaka um að klára byggingu
hússins.
17,5 milljarðar í að klára verkið
Austurhöfn keypti jafnframt
átta milljarða króna kröfu gamla
Landsbankans á Portus, en ekk-
ert var gefið upp um kaupverðið.
Ljóst var þó að það var langt frá
átta milljörðum og Landsbank-
inn sat því uppi með tapið. Nýju
bankarnir, Arion, Íslandsbanki
og Landsbanki, veittu Austur-
höfn síðan sambankalán upp á
allt að 17,5 milljarða króna, sem
var reiknaður kostnaður við að
klára verkið. Sú upphæð stend-
ur enn, að sögn Stefáns Her-
mannssonar, framkvæmdastjóra
Austurhafnar.
Fyrir viku hélt Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands sína fyrstu tónleika
í nýjum heimkynnum og vígði þar
með Hörpu. Opnunarhátíðin verð-
ur haldin um næstu helgi og verð-
ur hún öllum opin. Þar verða um
þúsund flytjendur og er ætlunin
að þar verði þverskurður íslensks
tónlistarlífs.
Þrautaganga Hörpu
HARPA VIÐ FYRSTU TÓNLEIKA Svona var umhorfs fyrir utan Hörpu 3. maí, daginn fyrir fyrstu tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSI Geir Haarde, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Björgólfur
Guðmundsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristrún Heimisdóttir voru kát
þegar tilkynnt var að félag Björgólfs, Portus, hefði þótt hafa bestu tillöguna að
byggingu tónlistarhúss. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TILLAGA PORTUSAR Upphaflega áttu
hótel og höfuðstöðvar Landsbankans
að rísa við hlið tónlistarhússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórunn Elísabet
Bogadóttir
thorunn@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Saga Hörpu hingað til
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
Nýjar
og betri
umbúðir!
Þeir sem óska eftir að leigja sölutjald þann 17. júní nk.
í Reykjavík þurfa að skila inn umsókn fyrir þriðjudaginn
24. maí fyrir kl. 16.00 í Skátamiðstöðina Hraunbæ
123. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru
á vefnum www.skataland.is
Vakin er athygli á því að lausasala á hátíðarsvæðinu er
bönnuð. Sölutjöld eru einungis leigð félögum og
samtökum sem sinna æskulýðs- og íþróttastarfi í
Reykjavík, en ekki einkaaðilum.
Umsóknir um sölutjöld
17. júní 2011 í Reykjavík
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur | Skátasamband Reykjavíkur
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á:
visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU