Fréttablaðið - 11.05.2011, Síða 8
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR
Aðskiljum ríki og kirkju
Hvatning til stjórnlagaráðs
Við undirrituð hvetjum stjórnlagaráð að bera fram
sérstaka tillögu um afnám 62. greinar stjórnarskrár
Íslands og afnema þar með ákvæði um sérstaka vernd
Þjóðkirkjunnar. Við teljum að stjórnarskrá Íslands eigi
að tryggja jafnrétti og fullt trúfrelsi einstaklinga óháð
trúar- eða lífsskoðunum þeirra.
Mikill meirihluti hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju
Frá árinu 1993 hafa skoðanakannanir ítrekað sýnt að mikill meiri-
hluti Íslendinga er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju. Samkvæmt
könnun Capacent frá 2010 kemur í ljós að „Ríflega 73% þeirra sem
taka afstöðu annað hvort með eða á móti aðskilnaði ríkis og kirkju
segjast nú hlynnt honum en tæplega 27% eru andvíg aðskilnaði.“*
Er þetta sambærileg niðurstaða og fékkst 2009 en þá kom enn
fremur fram að 70% þeirra sem tilheyra Þjóðkirkjunni eru hlynntir
aðskilnaði ríkis og kirkju.
Í stuttu máli er mikill meirihluti allra Íslendinga, óháð trúarafstöðu,
lífsskoðun eða trúfélagsskráningu hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju.
Leyfum þjóðinni að kjósa
Þó að mikill meirihluti Íslendinga vilji aðskilja ríki og kirkju telja
undirrituð að vænlegast sé að stjórnlagaráð leggi fram sérstaka
tillögu um afnám 62. greinar stjórnarskrárinnar sem verður síðan
lögð undir dóm kjósenda í þjóðaratkvæði samfara kosningu um nýja
stjórnarskrá. Þannig getur almenningur kosið sérstaklega um
aðskilnað ríkis og kirkju óháð öðrum tillögum stjórnlagaráðs.
Undirrituð:
Aðgerðir til aðskilnaðar ríkis og kirkju (AARK).
Ásatrúarfélagið.
Búddistasamtökin SGI á Íslandi.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur og forstöðumaður
Fríkirkjunnar við Tjörnina.
Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju (SARK).
Siðmennt – félag siðrænna húmanista á Íslandi.
Vantrú.
Heimild:
*Capacent http://www.capacent.is/frettir-og-frodleikur/thjodarpulsinn/thjodar-
pulsinn/2010/10/06/Malefni-kirkjunnar/
SARK - Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju greiddu fyrir þessa auglýsingu.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Námskeið
um réttindi
lífeyrisþega
12. maí: Útibúið í Hamraborg, Hamraborg 8
19. maí: Útibúið á Selfossi, Austurvegi 20
Farið verður yfir núgildandi reglur á réttindum
og greiðslum lífeyrisþega hjá Tryggingastofnun.
Skráning og nánari upplýsingar á vef bankans
og í síma 410 4000.
Fjölbreytt úrval af rafskutlum
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
ALÞINGI Í frumvarpi um breytingar
á barnalögum sem Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra mælti
fyrir á Alþingi í gær er lögð
áhersla á að styrkja sáttaferlið í
þeim tilvikum sem foreldrar geta
ekki komið sér saman um forræði.
Ekki á að heimila dómurum að
skera úr um sameiginlega forsjá
með dómi, að því er Ögmundur
greinir frá.
„Sú leið var í frumvarpinu þegar
það kom inn á mitt borð síðastliðið
haust. Ég tók þá leið út með hlið-
sjón af því sem ég tel vera slæma
reynslu annars staðar á Norður-
löndum hvað þetta snertir. Þar eru
uppi ýmsar efasemdaraddir um
ágæti þess fyrirkomulags. Danir
eru til dæmis að leggja lokahönd á
mikla úttekt um það mál.“
Ráðherrann segir það hafa sýnt
sig að dómskerfið sé ekki alltaf í
takt við veruleikann. „Markmiðið
sem við stefnum að er að tryggja
rétt barnsins við foreldra sína og
að sú umgengni verði í eins mikilli
fjölskyldusátt og hægt er.“
Guðmundur Steingrímsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
sagði á þingfundi í gær að þrátt
fyrir aukna áherslu á sáttaleið
myndu forræðismál engu að síður
fara fyrir dómstóla. Hann benti á
að rökstuðningurinn fyrir heimild
dómara til að úrskurða sameigin-
lega forsjá væri ágætur í frum-
varpinu.
„Það er þess vegna undrunarefni
að ráðherra taki heimildina út.“
Innanríkisráðherra vísaði í rann-
sóknir annars staðar á Norðurlönd-
um og vaxandi efasemdir um að
reynslan þar væri góð. Guðmundur
kallaði þá eftir rannsókn á reynslu
af þessum málum á Íslandi.
Ögmundur segir frumvarpið
fela í sér grundvallaruppstokkun
og endurmat á barnalögum. „Það
byggir á vinnu sem hefur staðið
sleitulaust frá haustinu 2008. Það
má segja að grundvallarstefið í
þessu frumvarpi sé að skoða allt
umhverfið frá sjónarhóli barnsins
og markmiðið er að styðja réttar-
stöðu barns í hvívetna enda er vísað
í samþykktir Sameinuðu þjóðanna
um þau efni.“
Samningur Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins var fullgilt-
ur á Íslandi árið 1992. Hann hefur
ekki verið lögfestur en Alþingi sam-
þykkti árið 2009 þingsályktunartil-
lögu þess efnis. ibs@frettabladid.is
Styrkja á sáttaferlið
í forræðisdeilum
Ekki á að heimila dómurum að skera úr um sameiginlega forsjá barns með
dómi. Efasemdaraddir eru annars staðar á Norðurlöndum um slíkar heimildir
dómara, að sögn innanríkisráðherra. Frumvarpið sætti gagnrýni á Alþingi í gær.
BARNALÖG Breytingar á barnalögum eiga að styðja réttarstöðu barna.
NORDICPHOTOS/GETTY
DANMÖRK Lögreglan á Fjóni gæti
verið komin á sporið með að
leysa dularfullt morðmál sem
hefur vakið mikla athygli um
alla Danmörku. Lýst hefur verið
eftir manni og hafa þegar borist
fjölmargar ábendingar.
Hjónin Bjarne Johannessen og
Heidi Nielsen voru skotin til bana
á kvöldgöngu í skógi við Óðinsvé
hinn 13. apríl síðastliðinn og hefur
lögreglu lítt miðað í rannsókn sinni
fram að þessu.
Fyrir nokkru fannst þó veski
sem stolið hafði verið af Johann-
essen eftir morðin við húsnæði
júdófélags skammt frá vettvangi
glæpsins.
Sama kvöld og morðin áttu sér
stað sást grunsamlegur maður við
júdóklúbbinn, en hann sást einnig á
upptökum úr öryggismyndavélum
við sundlaug sama kvöld. Sundlaug-
in er einmitt miðja vegu milli morð-
vettvangsins og júdóklúbbsins.
Maðurinn sem lýst er eftir er um
þrítugt og var með kringlótt gler-
augu og ljósbrúnt kaskeiti. Lög-
regla leggur áherslu á að maður-
inn sé ekki grunaður um morðin,
en hún vilji þó ná tali af honum út
af málinu. - þj
Vatnaskil í dularfullu glæpamáli í Óðinsvéum:
Lögreglan komin á
sporið í morðmáli
LÝST EFTIR MANNI Lögreglan á Fjóni
lýsir eftir manni sem gæti gefið mikil-
vægar upplýsingar um morð á miðaldra
hjónum í síðasta mánuði.
NORDICPHOTOS/GETTY