Fréttablaðið - 11.05.2011, Side 18
Reykjavík er einn af 25 vinsælustu áfangastöðum ferða-
manna árið 2011 samkvæmt úrslitum kosninga á ferða-
vefnum Condé Nast Traveller. Borgin er í 22. sæti yfir
vinsælustu áfangastaðina strax á eftir Kraká í Póllandi. Efst
á listanum eru París, Róm, London og Barcelona.
„Við byrjuðum með fáeinar íbúðir
á Akureyri í fyrrasumar en höfum
nú bætt við yfir fimmtíu eignum
í miðbæ Reykjavíkur, á Akureyri,
Höfn og í Keflavík. Eftirspurnin
er mikil og hefur velta fyrirtæk-
isins sjöfaldast á einu ári,“ segir
Baldvin Þór Baldvinsson, annar
eigenda íbúðaleigunnar Iceland
Summer sem stofnuð var í fyrra til
að gefa íbúðaeigendum tækifæri
á að nýta eignir sínar til útleigu
meðan heimilisfólkið fer í frí.
Iceland Summer svarar lang-
þráðri þörf erlendra ferðamanna
eftir íslenskum heimilum, en sams
konar þjónusta hefur fyrir löngu
fest sig í sessi víða um heim.
„Ferðamönnum þykir kostur að
búa í heimilislegum og vel búnum
íbúðum þegar þeir sækja stórborg-
ir og minni bæi heim, enda er frá-
bært að koma sér fyrir á fallegu
heimili á besta stað í bænum og
geta liðið eins og heima hjá sér
fjarri heimahögum,“ segir Baldvin
og bætir við að fólk fái mikið fyrir
peninginn, en lágmarks útleiga er
tvær nætur í senn.
„Iceland Summer leggur metnað
sinn í að leigja út fyrsta flokks
íbúðir með nútíma þægindum og
skoðar allar eignir vandlega svo
fólk taki enga sénsa á að lenda í
illa búnum kompum þegar það
kemur til landsins,“ segir Baldvin.
Iceland Summer er í samstarfi
við innlenda aðila og erlendar
ferðaskrifstofur, ásamt því að
halda úti bókunarsíðum víðs vegar
um heiminn.
„Við höfum einblínt á erlent
ferðafólk, en Íslendingar óska
í auknum mæli eftir íbúðum til
leigu, enda mun hagstæðara þegar
upp er staðið, ekki síst þegar fleiri
en tveir ferðast saman. Meðalverð
á nótt í íbúð er 25 þúsund krónur,
sem er fljótt að borga sig ef nokkr-
ir taka sig saman því algengt verð
á hótelgistingu nú er um 20 þúsund
fyrir nóttina,“ segir Baldvin, sem
enn leitar eftir eignum til útleigu
á Höfn í Hornafirði, á Mývatni,
Egilsstöðum og í miðbæ Reykja-
vík sökum mikillar eftirspurnar.
Sjá nánar á icelandsummer.com.
thordis@frettabladid.is
Heimilisleg lúxustilvera
Heima er allra best. Það sannast á sívaxandi eftirspurn eftir útleigu íslenskra heimila til útlendra og
íslenskra ferðalanga, enda jafnast ekkert á við heimilislegan aðbúnað þegar dvalið er að heiman.
Baldvin Þór Baldvinsson og Sigurður Bjarni Gíslason, meðeigandi hans að Iceland
Summer, sem hefur ekki undan að leigja út íslensk heimili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSLENSKT
KISUNAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
Harðfisktöflur sem
kisur elska
VINSÆLVARA
Borgardekk
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
MENNING
Vesturferðir bjóða
upp á gönguferð frá
Aðalvík til Hesteyrar.
Hornstrandir hafa í
seinni tíð fengið á
sig dulúðlegan blæ.
Með myndum eins
og Börnum náttúr-
unnar og skáldsögu
Yrsu Sigurðardóttur, Ég
man þig, hefur skap-
ast æ meiri áhugi á að
kynnast þessu merka
svæði.
Heimild: www.
vesturferdir.is