Fréttablaðið - 11.05.2011, Qupperneq 22
11. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● garðhúsgögn
● TJALDAÐ Í GARÐINUM
HEIMA Börnum finnst fátt
skemmtilegra á sumrin en að
skella sér í útilegu, en á tímum
okurverðs á eldsneyti er hætt
við að margir neyðist til að
sleppa ferðalögum innanlands í
sumar. Á sama tíma er óþarfi að
svipta smáfólkið fjörinu og þeirri
upplifun að kúldrast í svefnpoka
undir tjaldhimni á bjartri sumar-
nóttu og tilvalið að slá upp
tjaldi í garðinum heima.
● VERNDUM HNÉN Garð-
verkin geta reynt á líkamann,
sérstaklega hnén. Því er um að
gera að koma sér upp góðum
hnépúðum. Hægt er að kaupa
slíka í verslunum sem selja
garðáhöld en einnig er hægt
að föndra þá heima úr mjúkum
svampi og slitsterku líni.
● SNYRTA ÞARF TRÉ REGLULEGA
Tré má klippa allan ársins hring. Þægilegra er
þó að gera það á lauflausum tíma frekar en yfir
hásumarið, svo umfang þess sem hreinsa þarf úr
garðinum verði minna. Beittar klippur og sagir má
nota á minni greinar en stór tré er best að fella
með keðjusög.
Gott er að grisja og snyrta trén
reglulega. Of þétt trjákróna skyggir
á grasflötina svo hún verður
mosavaxin. Ráðleggingar um
snyrtingu runna og trjáa er meðal
annars að finna á www.rit.is.
●ILLGRESIÐ KÆFT MEÐ DAGBLÖÐUM Í baráttunni við illgresi
sem sprettur upp í beðum eru ýmsar leiðir færar. Ýmsar tegundir af eitri
eru á markaðnum en fyrir þá sem vilja síður nota þau er ráð að kæfa ill-
gresið með plasti, dúk eða dagblöðum. Dagblöð henta prýðilega til
verksins en þau grotna með tímanum ofan í
jarðveginn. Beðið er þakið með þykku lagi af
dagblöðum svo hvergi sjáist í jörð og papp-
írinn sniðinn utan um þær plöntur sem
eiga að standa upp úr. Því næst er 10 til
15 cm lagi af sandi, mómold eða trjákurli
stráð yfir dagblöðin. Ef passað er að engin
glufa myndist milli dagblaðanna ætti ekki
að bóla á illgresinu aftur.
Svalir þurfa ekki að ná yfir marga
fermetra til að hægt sé að nota
þær. Þar gildir að skipuleggja þær
vel og jafnvel á allra minnstu svöl-
unum má koma fyrir nettum garð-
stól og örlitlu hringlaga borði. Til
að koma blómum og kryddjurt-
um fyrir á litlu rými getur verið
gott að hengja blómaker á svala-
handriðið, festa ker á vegg og setja
blómavasa upp á lítil borð til að
nýta plássið. Þá getur komið vel
út að leggja fallega útimottu eða
annað efni sem þolir að vera úti á
svo lítinn gólfflöt. Það gerir sval-
irnar hlýlegar og ekki skemmir að
mottan sé í skærum, sumarlegum
lit.
Litlar svalir
puntaðar
BM Vallá ehf.
Breiðhöfða 3
110 Reykjavík
Sími: 412 5050
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
bmvalla.is
Sumarið er komið!
Má bjóða þér landslagsráðgjöf?
Hafðu samband við söludeild BM Vallá og við aðstoðum
þig við útfærslu hugmynda og efnisval.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
·
S
ÍA
·
1
1
1
3
0
8
Happdrætti
Allir sem nýta sér landslagsráðgjöf og kaupa í kjölfarið efni til
framkvæmda hjá BM Vallá fara í pott og geta unnið ferð til
London fyrir tvo. Gildir út árið 2011.
Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir,
landslagsarkitekt okkar, veitir viðskiptavinum ókeypis
ráðgjöf og aðstoð við mótun hugmynda og útfærslu.
Ráðgjöfin ásamt tölvuteikningu er þér að kostnaðarlausu.
Hafðu samband við sölufulltrúa okkar og pantaðu tíma.