Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2011, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 11.05.2011, Qupperneq 30
11. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR22 sóknarferð á föstum samskiptum og frösum og meðferð þeirra er ekki aðeins sprenghlægileg held- ur undur fim og flott danssýning um leið og klunnalegar hreyfing- ar mynda mótvægi við fagmann- legan dans. Hreyfingar eiga stóran þátt í sýningunni og mynda í sjálf- um sér heilt tungumál sem stund- um er aðeins hljóðskreytt með innskotum orða. Við langborð hittast vinir og sitja þar eins og bráðókunnugt fólk, tala út í loftið en allt sem er sagt er þó svo ofur kunnug- legt. Leikkonurnar Álfrún, Dóra, Saga og Margrét eru hver annarri glæsilegri í glitrandi kjólum sem hristast og skjálfa eins og laufblöð í vindi þegar þær bregða á leik. Flottir búningar hjá Rósu Hrund Kristjánsdóttur. Sveinn Ólafur Gunnarsson lék einhvers konar eiginmann og stundum heldur vandræðalegan mann og stundum pirraðan mann og stundum ein- hvers konar fulltrúa hins venju- lega. Félagi hans Friðgeir Einars- son lenti í heldur vandræðalegri hlutverkum eins og manninum sem át allt upp eftir öðrum og var eins og amaba sem tók form af umhverfinu en eiginleg fastmótuð hlutverk var þó ekki um að ræða. Dóra Jóhannsdóttir er svo hlægileg að hún þarf ekki nema að lyfta augabrúnum, þá liggur salurinn, en í upphafi situr hóp- urinn og snæðir einhvern fínan eftirrétt þar sem örlítil rjómarönd lendir á vörum og aðeins út á kinn og sá litli matardans var alveg nægjanlegur til þess að fá allan salinn á sitt band. Að ná orði og halda því getur verið vandasamt þegar margir eru saman komnir og hvernig sú glíma getur geng- ið fyrir sig er snilldarlega unnið af þeim við borðið langa í algeru tilgangsleysi. Misskilningur og oftúlkun í samtali hjóna var einnig óborgan- legt þegar hann og hún takast á í meðförum þeirra Sveins og Dóru. Þar var margt sem kom á óvart og byrjunarreitir í dansatriðum gáfu aldrei til kynna hvar eða hvernig þau myndu enda. Margrét Bjarnadóttir var áber- andi liðugust, minnti helst á litlu rússnesku fimleikastúlkurnar sem komu hingað á árum áður. Að fylgj- ast með danstryllingshristingi hennar var spennuþrungið. Álfrún Helga Örnólfsdóttir var eins og marsipanævintýri í sínum fallega bleika kjól, barnshafandi en þó hoppandi og spriklandi eins og hún ætti lífið að leysa. Saga Sigurðar- dóttir átti getnaðarfulla spretti í sínum fjólubláa glingurkjól með hárið svo ofurrautt og mikið. Hún brá af sér hluta af hárinu á ein- hverjum tímapunkti og breyttist í trylltan gæðing. Leit að innan- tómum orðum varð að hljóðum, að tónum sem magnaðir voru upp og stökk þá tónlistarstjórinn Gísli Galdur fram með hljóðnema og nýr rythmi hófst. Eitt aðalviðfangsefnið var þó hvort hægt væri að ögra sjálfum sér, hvort hægt væri að vera frum- legri en nokkur annar hefur nokk- urn tíma verið. Kannski var flett upp í uppeldisfræði Piagets í sam- bandi við hvað maðurinn í raun og veru er, nefnilega allt það sem hann hefur orðið fyrir. Örvænting- arfullar tilraunir til frumlegheita áttu mjög vel við umræður síð- ustu vikna. Fletirnir voru marg- ir og hugdettur allar kunnugleg- ar í þessum samskiptadansi sem endaði í einni ferhyrndri mynd. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Mjög heilsteypt, spreng- hlægileg og smart sýning! 22 menning@frettabladid.is Leiklist ★★★★ Verði þér að góðu Sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Höfundur: Leikhópurinn Ég og vinir mínir. Leikstjórn: Friðrik Frið- riksson og hópurinn. Flytjendur: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Gísli Galdur Þorgeirs- son, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir og Gísli Galdur Þorgeirsson. Eftir fyrsta raunverulega sólskins- daginn var ljúft að bregða sér inn í myrkrið í kassa Þjóðleikhússins og láta virkilega skemmta sér á frum- sýningu á laugardaginn. Sýning- in Verði þér að góðu er unnin af leikhópnum Ég og vinir mínir og þar eru svo sannarlega á ferðinni vinir sem veltast hver um annan og krefjast hver af öðrum um leið og þeir ögra hver öðrum og öllu því samskiptamynstri sem þeim dettur í hug að til sé millum vina. Fastir frasar hnjóta um þrösk- ulda vandræðagangs í tryllings- legum takföstum dansi, ýmist vél- rænum eða ofur tónliprum. Hvaða samtöl skipta máli og hvaða sam- töl eru bara innantómt hjal og bull og byrjun á einhverju sem á að vera eitthvað annað en verður svo það þriðja og breytist svo kannski í tóna og skjálfandi sveiflur? Hópurinn leggur af stað í rann- Heilsteypt steypa Skáldsagan Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttir hlaut á mánudag Bóksalaverðlaunin í Quebec í Kanada – Prix des libraires de Quebec. Veitt voru verðlaun fyrir skáldskap frá Quebec og erlend skáld- rit. Auk Auðar voru meðal annars Michel Houellebecq og Sofi Oks- anen tilnefnd. Prix des libraires de Quebec eru ein helstu bókmennta- verðlaunin í fylkinu og eru haldin í sambandi við bók- menntahátíð sem nú stendur yfir. Meðal fyrri verðlaunahafa eru höfundar á borð við Cor- mac McCarthy, Jonathan Safran Foer og Khaleid Hosseini. Vegur Auðar Övu fer vaxandi í frönskumælandi löndum en bækur hennar seljast afar vel í Frakklandi. Afleggjarinn er þriðja skáldsaga Auðar. Tvær síðustu komu út hjá Sölku en Auður Ava hefur nú gert útgáfu- samning við Bjart. Auður Ava verðlaunuð í Quebec AUÐUR AVA ÓLAFSDÓTTIR INGA DÓRA STEFÁNSDÓTTIR MESSÓSÓPRAN heldur tónleika á morgun klukkan 18.00 í Þjóðmenningarhúsinu en hún útskrifast með BMus-gráðu frá tónlistardeild Listaháskólans í vor. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir Árna Thorsteinson, J.S. Bach og Leonard Bernstein. Flytjendur auk Ingu Dóru eru Elísabet Einarsdóttir sópran og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.