Fréttablaðið - 11.05.2011, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 11. maí 2011 25
Óskarsverðlaunahafinn Al Pacino
hefur bæst í ört stækkandi leik-
hóp mafíumyndarinnar Gotti:
Three Generations samkvæmt
bandaríska stórblaðinu Washing-
ton Post. Myndin fjallar, eins og
nafnið gefur til kynna, um Gotti-
mafíufjölskylduna sem öllu réð í
undirheimum New York í lok síð-
ustu aldar. Pacino mun leika Neil
Dellacroce, glæpahöfðingja og
lærimeistara John Gotti eldri sem
leikinn verður af John Travolta.
Þetta þykir vel við hæfi því
fáum hefur tekist jafn vel upp og
Pacino að leika mafíósa eða glæpa-
foringja. Hann var ákaflega eftir-
minnilegur í hlutverki Michaels
Corleone í Guðföðurmyndunum
þremur og ekkert síðri sem Lefty
Ruggiero í Donnie Brasco, Carlito
Brigante í Carlito‘s Way og Tony
Montana í Scarface.
Leikarahópurinn fyrir
myndina er þar með næst-
um kominn á hreint þótt
enn eigi eftir að ráða í
hlutverk John Gotti yngri.
Leikstjóri verður
Barry Levinson
en meðal ann-
arra leikara
má nefna Joe
Pesci, Lindsay
Lohan og Ellu
Blue Travolta.
Pacino til liðs við Gotti
Hugh Laurie, sem farið hefur á
kostum í hlutverki dr. Gregory
House í sjónvarpsþáttunum House,
hefur gefið það út að næsta þátta-
röð verði sú síðasta. „Ég held að
þetta verði síðasta þáttaröðin
með mér. Ég hef allavega skilið
þetta þannig,“ hefur Radio Times
Magazine eftir leikaranum.
Laurie, sem hefur verið tilnefnd-
ur til sex Golden Globe verðlauna
og fengið tvenn fyrir leik sinn í
þáttunum, hyggst einbeita sér að
tónlistarferli sínum en hann gaf
nýverið út sína fyrstu blúsplötu,
sem nefnist Let Them Talk. Hann
hyggst koma fram á nokkrum tón-
leikum í sumar í Evrópu og hann
viðurkennir að hann kunni betur
við tónlistarsviðið en leiklistina.
Laurie flutti til Los Angeles til að
geta leikið í þáttaröðinni en segist
ekki skilja hvers vegna þættirnir
hafi lifað í sjö ár. „Ég hélt að þeir
myndu endast í tvær vikur.“
Hættur í House
SAMAN Al Pacino og John
Travolta munu leika saman í
mafíumyndinni Gotti: Three
Generations. Fáir eru jafn
góðir í að leika glæpafor-
ingja og Pacino.
Jóhanna Guðrún ætlar að syngja
til heiðurs bandarísku söngkon-
unni Evu Cassidy á tónleikum
í Salnum 16. júní. Cassidy var
þjóðlagasöngkona frá Washing-
ton í Bandaríkjunum en lést
aðeins 33 ára gömul árið 1996.
Hún gaf út tvær plötur á sínum
ferli sem náðu einungis athygli
á hennar heimaslóðum í Banda-
ríkjunum. Fjórum árum eftir
dauða hennar var hennar útgáfa
af Somewhere Over the Rainbow
spiluð á BBC í Englandi og þá
fóru hjólin að snúast. Bróðir Evu,
Dan Cassidy, kemur fram á tón-
leikunum með Guðrúnu. Miða-
sala fer fram á Midi.is.
Til heiðurs
Evu Cassidy
Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir
ætlar að spila á tónlistarhátíð-
um í Þýskalandi, Ungverjalandi,
Póllandi og víðar í júlí og ágúst.
Áður en sveitin fer út ætlar hún
að loka sig af í hljóðveri ásamt
upptökustjórunum Ólafi Arnalds
og Styrmi Haukssyni og vinna
að næstu plötu sinni, sem er
væntanleg með haustinu. Næstu
tónleikar Árstíða verða á föstu-
daginn á Café Rosenberg, þar
sem gestum gefst tækifæri til að
heyra lög af nýju plötunni auk
eldri laga. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22 og er aðgangseyrir
1.500 krónur.
Spilar víða
um Evrópu
FARINN Hugh Laurie hyggst hætta sem
dr. House í sjónvarpsþáttunum House
og einbeita sér að blústónlist.
ÁRSTÍÐIR Hljómsveitin ætlar að spila
á tónlistarhátíðum víða um Evrópu í
sumar.
TIL HEIÐURS CASSIDY Jóhanna Guðrún
syngur til heiðurs Evu Cassidy á tón-
leikum í Salnum í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN