Fréttablaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 6
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR6 LETTLAND, AP Valdis Zatler, forseti Lettlands, virðist hafa hrapað í vinsældum á lokasprettinum fyrir forsetakosningar, sem haldnar verða í dag. Hann fór hörðum orðum um þingmenn á lettneska þinginu um síðustu helgi, sagði þá veika fyrir spillingu og vill efna til þjóðar- atkvæðagreiðslu um hvort rjúfa eigi þing. Hann þótti öruggur með sigur, en samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum er enginn sjáanlegur sigurvegari. - gb Forsetakosningar í uppnámi: Gerði að engu sigurlikur sínar VALDIS ZATLER Ásakanir forsetans fóru illa í kjósendur. NORDICPOTOS/AFP DÓMSMÁL Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara, fór fram á fimm ára fangelsisdóm yfir öllum sakborningunum í svokölluðu Exeter-máli á síðasta degi aðalmeð- ferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Björn sagði í málflutningi sínum að þremenningarnir sem ákærðir eru í málinu hefðu skipulagt Exeter-flétt- una ýmist með eigin hags- muni í huga eða MP banka en enginn hefði hins vegar gætt hagsmuna Byrs, sem hefði að endingu setið uppi með tjónið af viðskiptunum. Ákærðir í málinu eru Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarfor- maður Byrs, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrver- andi sparisjóðsstjóri, og Styrmir Þór Braga- son, fyrrverandi forstjóri MP banka. Þeir tveir fyrrnefndu eru taldir hafa gerst sekir um umboðssvik þegar þeir í sameiningu hafi ákveðið að lána félaginu Exeter Holding millj- arð króna til að kaupa stofnfjárbréf í Byr af þeim sjálfum, öðrum stjórnendum Byrs og MP banka. Styrmir er ákærður fyrir hlutdeild í brotunum og peningaþvætti fyrir að taka við fénu sem greiðslu á skuldum við MP banka. Athygli vekur að farið sé fram á jafnþunga refsingu yfir Styrmi og hinum tveimur, enda var Styrmir ekki starfandi hjá Byr – sem veitti hin meintu ólögmætu lán – og er auk þess ekki ákærður sem aðalmaður í brotunum. Hins vegar mátti heyra á orðum saksókn- ara að hann teldi Styrmi í raun hafa haldið um flesta þræði í málinu. Hann hefði teiknað upp lausnina sem að lokum hefði orðið ofan á og fært sér í nyt vandræði Jóns Þorsteins og Ragnars – sem og Ágústs Sindra Karlssonar, eiganda Exeter Holding – til að láta Byr veita mjög áhættusamt lán svo MP banki fengi skuldir sínar greiddar. Reynir Karlsson, verjandi Jóns Þorsteins, sagði það „fráleitt og ósannað“ að skjólstæð- ingur hans og Ragnar hefðu „í sameiningu“ veitt annað lánanna tveggja sem um ræðir í málinu eins og haldið er fram í ákæru, enda hefði Jón Þorsteinn engar heimildir haft til lánveitinga út úr Byr. Ólafur Eiríksson, verjandi Ragnars, sagði að ásakanirnar á hendur Ragnari væru „tilbúin atburðarás“ saksóknarans. Fráleitt væri að halda því fram að Ragnar hefði verið tilbúinn að eyðileggja mannorð sitt og valda vinnu- veitanda sínum tjóni upp á einn milljarð til að bjarga einkahlutafélagi sínu sem hann hefði ekki verið í persónulegri ábyrgð fyrir. Ragnar Hall, lögmaður Styrmis, sagði skjól- stæðing sinn einungis hafa unnið í þágu MP banka og hann bæri enga ábyrgð á lánveit- ingum Byrs. „Það er ekkert komið fram um að skjólstæðingur minn hafi með hvatningu eða fortölum fengið meðákærðu til að gera eitthvað ólögmætt,“ sagði Ragnar. Lögmaður Byrs gerir skaðabótakröfur á hendur sakborningunum sem nema lánunum sem nú eru glötuð. Kröfunum var harðlega mótmælt af mörgum ástæðum og þá sagði lög- maður Jóns Þorsteins enn fremur að þær sner- ust um „líf eða fjárhagslegan dauða þessara manna,“ sem yrðu óhjákvæmilega gjaldþrota ef fallist yrði á þær. Dómur fellur í málinu innan fjögurra vikna. stigur@frettabladid.is KJÖRKASSINN Sumarjógúrt með mangó frá MS. Frábær í útileguna, í bústaðinn eða hvar sem þú ert á ferðinni í sumar. ms.is Saksóknari vill Exeter-menn alla þrjá í fimm ára fangelsi Farið er fram á jafnþunga refsingu yfir öllum sakborningunum í Exeter-málinu. „Tilbúin atburðarás saksóknara,“ segir verjandi. Bótakrafa Byrs sögð snúast um „líf eða fjárhagslegan dauða þessara manna“. KREFJAST SÝKNU Verjendur allra sakborninganna fara fram á sýknu, en til vara vægustu refsingu sem lög leyfa. Varakrafan er meðal annars rökstudd með því að þeir hafi hreina sakaskrá og að sú óvægna fjölmiðlaumfjöllun sem þeir hafi þurft að sæta sé mikil refsing í sjálfri sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BJÖRN ÞORVALDSSON Það er ekkert komið fram um að skjólstæðingur minn hafi með hvatningu eða fortölum fengið með- ákærðu til að gera eitthvað ólögmætt. RAGNAR H. HALL VERJANDI STYRMIS ÞÓRS BRAGASONAR UMHVERFISMÁL Heildarmagn úrgangs snarminnkaði á milli áranna 2008 og 2009 og greina menn þar greinilega niðursveiflu efnahagslífsins. Um 600 þúsund tonn af úrgangi féllu til árið 2009 en yfir 700 þúsund tonn árið áður. Heildarmagn úrgangs hafði vaxið ár frá ári á tímabilinu 1995- 2008 en á milli áranna 2008 og 2009 minnkaði það um tæp sautj- án prósent. Íbúum fækkaði um innan við eitt prósent milli sömu ára og getur íbúafækkun því ekki útskýrt hve mikið hefur dregið úr úrgangi. Samdráttur í efnahagslífi verð- ur því að teljast líkleg skýring að mati Umhverfisstofnunar, sem tekur saman tölur yfir magn og ráðstöfun úrgangs í landinu. Blandaður úrgangur frá heim- ilum og fyrirtækjum minnkaði um þrjátíu prósent á milli 2008 og 2009 á meðan flokkaður úrgang- ur minnkaði um rúmlega tólf pró- sent. Það hlutfall sem fer til urð- unar minnkar enn og er komið niður í 31 prósent og hlutur jarð- gerðar stækkar. Hlutur annarrar endurvinnslu stendur hins vegar í stað, en hann stækkaði mikið fram til 2007. Svipað magn af úrgangi var brennt árið 2009 og árið á undan. - shá Magn úrgangs minnkaði um sautján prósent milli áranna 2008 og 2009: Hrunið sést vel á ruslahaugum SORPURÐUN Úrgangur var yfir 100 þúsund tonnum minni á milli áranna 2008 og 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNARSKRÁ Forsætisnefnd Alþingis hefur fallist á erindi stjórnlagaráðs um að starfstími ráðsins verði framlengdur um mánuð. Stjórnlagaráð hefur því tíma til júlíloka til að skila frum- varpi til stjórnskipunarlaga. Í þingsályktun um skipun stjórnlagaráðs kom fram að ráðinu væri heimilt að óska eftir lengri starfstíma um allt að mánuð. Stjórnlagaráð hóf störf 6. apríl síðastliðinn og hefur hist alls tíu sinnum síðan. Þá fer starfið einnig fram í þremur nefndum sem fjalla um afmarkaða hluta stjórnarskrárinnar. - mþl Lýkur störfum í lok júlí: Starfstími stjórnlagaráðs framlengdur Eiga Íslendingar að ganga úr NATO? Já 33,7% Nei 66,3% SPURNING DAGSINS Í DAG Telur þú að banna eigi sölu á tóbaki annars staðar en í apótekum? Segðu þína skoðun á visir.is NOREGUR Norskur maður á fertugs- aldri hefur verið dæmdur í tíu ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gegn eiginkonu sinni. Hann skvetti meðal annars yfir hana brennisteinssýru svo að hún býr við varanleg lýti á andliti, hálsi, höndum og fótleggjum. Sýruárásin átti sér stað í fyrra, en maðurinn sagðist saklaus og bar því við að hann hafi talið að nuddolía hafi verið í flöskunni sem hann skvetti úr á konu sína. Lögmaður mannsins sagði að dómnum yrði áfrýjað. - þj Ofbeldismaður dæmdur: Fékk tíu ára dóm fyrir sýruárás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.