Fréttablaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 24
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
HENRY MANCINI tónskáld (1924-1994) lést þennan dag.
„Þegar ég hlýddi á tóna sem barn ákvað ég að
komast að því hvernig þeir eru samansettir.“
Guðrún Agnarsdóttir læknir hefur alla tíð sinnt fjölbreyti-
legum störfum sem tekið hefur verið eftir. Sem sérfræðingur
í veiru- og ónæmisfræði, sem alþingiskona fyrir Samtök um
kvennalista og fyrir störf sín sem yfirlæknir Neyðarmóttöku
vegna nauðgana á Slysa- og bráðamóttöku Landspítala í Foss-
vogi. Síðustu árin hefur hún sinnt starfi forstjóra Krabba-
meinsfélags Íslands og verið formaður stjórnar Almanna-
heilla en hún hefur nýlega látið af þeim störfum. Guðrún er
sjötug í dag.
„Jú, ég er nýhætt að vinna og nýt þess að ráða yfir tíma
mínum þó að mér hafi alla tíð þótt gaman að mæta í vinn-
una,“ segir Guðrún, sem þykir það góð tilfinning að verða
sjötug. „Það er dásamleg tilfinning að fá að vera lifandi, heil-
brigð og fá að eldast. Það er nefnilega ekki alltaf þannig.
Hvert ár er því í mínum huga ávinningur.“
Guðrún segist eiga skemmtilegar og hlýjar afmælisminn-
ingar frá því að hún var barn og man að sérstaklega þótti
henni merkilegt að verða tíu ára. Afmæli hennar ber einnig
upp á árstíma sem bauð upp á að hægt væri að leika sér úti,
sumarið rétt að hefjast en afmælisbörnin voru hins vegar
yfirleitt svo puntuð að ekki var hægt að fara í hvaða leik sem
var. Í ár kallar Guðrún saman nánustu fjölskyldu og vini í
matarboð á heimili þeirra Guðrúnar og eiginmanns hennar,
Helga Valdimarssonar, læknis og prófessors. Þau hjón eiga
þrjú börn og Guðrún á tvo stjúpsyni en barnabörnin eru tólf.
„Þetta verður smátt í sniðum og notalegt en ég er reyndar
mikið fyrir það að hitta fólk og gefa því gott að borða og vil
hafa fjölskyldu og vini nærri mér. Í sjálfu sér finnst mér ég
þó hafa minni áhuga á eigin afmæli eftir því sem ég eldist,
ég held það sé ekki fælni því ég er ekki hrædd við að eld-
ast. Ætli það sé ekki frekar að mér finnst svo mikilvægt að
njóta hvers dags og grípa öll tækifæri til að gera sér glaðan
dag að ég lít ekki á afmæli sem eina tækifærið til að halda
upp á eitthvað.“
Eins og ævistarfið gefur til kynna á Guðrún mörg áhuga-
mál en gjarnan má finna hana að störfum í garðinum á heim-
ili hennar í Reykjavík eða þá í Svarfaðardalnum. Þar eru þau
hjónin skógarbændur, en Guðrún hefur lokið skógræktar-
námi. „Það líður að því að við förum norður og ég vona bara
að allir skaflar séu bráðnaðir svo við getum farið að gróð-
ursetja. Um helgina fer ég svo að huga að því að setja niður
kryddjurtir og grænmeti. Þetta er yndislegur árstími og ég
nýt þess að fylgjast með fuglunum annast sársvanga tístandi
unga í hverju hreiðri.“ juliam@frettabladid.is
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR LÆKNIR OG
FYRRVERANDI ÞINGKONA: ER SJÖTUG
Nýtur þess að
fá að eldast
EKKI MIKIL AFMÆLISMANNESKJA Í SEINNI TÍÐ „Ég lít ekki á afmæli
sem eina tækifærið til að halda upp á eitthvað,“ segir Guðrún.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Konráð Páll Ólafsson
Asparási 2, Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. maí.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn
3. júní kl. 15.00.
Ingigerður St. Óskarsdóttir
Guðjón Árni Konráðsson Teresita Ragmat
Jóna Ósk Konráðsdóttir August Håkansson
Guðmundur Kr. Konráðsson Krittiya Huadchai
Konráðsson
barnabörn og langafabörn
MOSAIK
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
Aðalsteinn Sigfús
Árelíusson
frá Geldingsá á Svalbarðsströnd,
lést 28. maí. Útför hans fer fram frá Svalbarðskirkju
mánudaginn 6. júní kl. 13.30.
Lára Kristín Sigfúsdóttir Hallgrímur Haraldsson
Hafsteinn Sigfússon Eygló Kristjánsdóttir
Halldór Heiðberg Sigfússon María Guðrún Jónsdóttir
Sigrún Heiðdís Sigfúsdóttir Valbjörn Óskar Þorsteinsson
Sólveig Sigfúsdóttir Reynir Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir og afi
Maríus Guðmundsson
Fornhaga 17,
lést á dvalarheimilinu Grund 30. maí.
Ingibjörg Maríusdóttir Haraldur Benediktsson
Guðmundur St. Maríusson Guðný Pétursdóttir
Guðrún Rós Maríusdóttir Helgi Leifur Þrastarson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Guðrúnar Kjarval
Sérstakar þakkir til þeirra er önnuðust hana
á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Hrafnhildur Tove Kjarval Robin Lökken
Jóhannes S. Kjarval Gerður Helgadóttir
Kolbrún S. Kjarval
Ingimundur S. Kjarval Temma Bell
María S. Kjarval Nielserik Hald
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórhildur Halldórsdóttir
kennari,
Skeiðarvogi 125, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala 30. maí síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn
8. júní kl. 15.00.
Börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur vináttu og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Gunnfríðar Ásu
Ólafsdóttur, Lóló,
Hrafnistu í Reykjavík, áður
Lindarbraut 2 á Seltjarnarnesi,
sem lést föstudaginn 6. maí s.l. Sérstakar þakkir til
starfsfólks deildar 4G á Hrafnistu í Reykjavík.
Ólafía I. Gísladóttir Ari Jónsson
Auðun Pétur Gíslason
Viggó Kristinn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn
90 ára afmæli
Sigríður
Bárðardóttir
frá Jarðlangsstöðum
verður níræð þann 3. júní og af því
tilefni er öllum vinum, nágrönnum
og skyldfólki boðið til veislu að
Suðurlandsbraut 4, þann sama dag og
stendur gleðin frá kl. 17 og fram eftir
kvöldi.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
auðsýnduð okkur samúð og vinarhug
við fráfall og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa
Erlings Edwald
lyfjafræðings.
Jóhanna Edwald
Tryggvi Edwald Erla Erlingsdóttir
Sigrún Edwald Sigurður Egill Guttormsson
Ari Edwald Þórunn Pálsdóttir
Þórdís Edwald Ármann H. Þorvaldsson
og afabörnin
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Valgerður
Gísladóttir
frá Hjaltastaðahvammi,
lést mánudaginn 30. maí síðastliðinn. Útför hennar
verður gerð frá Laugarneskirkju fimmtudaginn
9. júní nk. kl. 15.00. Sérstakar þakkir eru færðar
hjúkrunarfólki deildar 2b Hrafnistu í Hafnarfirði.
Fyrir hönd ættingja,
Jón K. Björnsson
Baldur Jónsson Ragnheiður Brynjólfsdóttir
Gísli Rúnar Jónsson
Björn Jónsson Guðný Gunnarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi
og langafi,
Oddgeir H. Steinþórsson
húsasmíðameistari, Lyngbergi 8,
Þorlákshöfn,
lést þriðjudaginn 31. maí á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Sólrún Guðmundsdóttir.