Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.06.2011, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 02.06.2011, Qupperneq 34
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR26 BAKÞANKAR Sigríðar Víðis Jónsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. skyldi, 6. verkfæri, 8. saur, 9. fjallaskarð, 11. tveir eins, 12. dútl, 14. drykkjarílát, 16. málmur, 17. vafi, 18. mar, 20. persónufornafn, 21. treysta. LÓÐRÉTT 1. hluta sólarhrings, 3. tveir eins, 4. reiðufé, 5. svelg, 7. litaskipti, 10. slit, 13. atvikast, 15. göngulag, 16. hylli, 19. óreiða. LAUSN LÁRÉTT: 2. ætli, 6. al, 8. tað, 9. gil, 11. uu, 12. stúss, 14. bikar, 16. ál, 17. efi, 18. sær, 20. ég, 21. trúa. LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. tt, 4. lausafé, 5. iðu, 7. litblær, 10. lúi, 13. ske, 15. rigs, 16. ást, 19. rú. ... og ég hef alltaf skammast mín fyrir vörturnar mínar! Sérstaklega þessa á bakinu sem er risastór! ... Gulli frændi var líka með margar vörtur. Ég hef þær frá honum. Þær voru úti um allt á nefinu á honum! Risastórar! ... Eftir að ég byrjaði að taka clorhexoplyrofin er ég hætt að kroppa í þær á nóttunni! Bla! Já! Ég meina JÁ! Mamma keypti þetta ljóta belti handa mér um daginn. Langar þig í það? Nei takk, ég nota ekki belti. Mér gæti aldrei liðið vel með hluta af kú utan um mittið á mér. Ég er heppin að vera mamma… Ég er með sæti á besta stað á bestu sýningu veraldar - á uppvexti barnanna minna. Og það eru bara ellefu ár þar til ég fæ frí. Erfiður dagur? Hvernig varð það að viðtekinni hug-mynd að börn sem hafa áhuga á að stunda íþróttir stefni almennt á að verða afreksíþróttafólk eða atvinnumenn? Þau skuli öll skara fram úr – með góðu eða illu. HREYFING er fyrir öllu. Kannski sérstak- lega í ljósi þess að fimmta hvert barn á Íslandi mælist yfir kjörþyngd og fimm prósent barna of feit. Við eigum mikið af frábærum kornungum íþróttabörnum – en það þurfa ekki allir krakkar að verða afreksmenn. Við myndum aldrei gera þá kröfu á alla fullorðna sem vilja hreyfa sig. ÉG var barn sem hafði gaman af íþróttum. Ég endaði hins vegar með að ráfa kófsveitt á milli greina af því að ég meikaði ekki hvað allir voru æstir í að láta mig taka þetta graf- alvarlega. Ég var til dæmis ekki búin að æfa körfubolta nema í stutta stund, ellefu ára, þegar mér var uppálagt að taka þátt í móti. Ég varð mjög stressuð þar sem ég kunni enn varla regl- urnar. Hafði fyrst og fremst byrjað að æfa því þarna voru skemmtilegir krakkar. Mótið fór með mig. Ég steig ofan á tærnar á stelpu sem brjálaðist. Fékk sjálf boltann í hausinn og fannst ég glötuð. Tórði út veturinn, hætti síðan. Áður hafði ég farið á sundæfingu en séð að ég hafði ekki roð við afreksfólkinu þar. Bekkjarfélagarnir voru allir farnir að æfa fimm daga í viku þegar ég loks rankaði við mér. Of gömul. Kornung. BRÓÐIR minn æfði fótbolta og ég man vel eftir sumrinu þegar hann var fjórtán ára. Hann gat ekki farið í sumarfrí með okkur því hann þurfti að mæta á stífar æfingar. Litlu seinna fór ég sjálf að æfa karate. Þegar kom að prófi númer þrjú, rauða beltinu, hætti ég. Glopraði því þó aldrei út úr mér að mig hefði bara langað að læra sjálfsvörn í friði. ÉG fann mig í samkvæmisdansi. Adam var þó ekki lengi í paradís. Í bænum mínum voru nánast engir strákar að æfa dans og í níunda bekk mátti ég ekki lengur keppa á mótum og dansa við stelpu. Ég var ókeppnisfær. Skilaboðin voru að þar með væri botninn dottinn úr þessu sprikli mínu. Takk og bless. ÉG lærði líka á píanó og ekki er minni afreksáhersla þar. Eftir sex ára nám var ég komin með upp í kok af skölum, prófum og stigsprófum. Keppnisskapið hjá mér kom ekki fyrr en síðar. Ég held að þegar ég var barn hafi mig bara langað að fá að vera barn. Hlaupa, sprikla, spila af fingrum fram – og hafa það gaman. Kæra 7 ára barn, hertu þig Margrét Erla Maack er fjölmiðlakona, uppistandari og magadans kennari. Hún hefur þó enn ekki ákveðið hvað hún vill verða þegar hún er orðin stærri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.