Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 34
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR26
BAKÞANKAR
Sigríðar
Víðis
Jónsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. skyldi, 6. verkfæri, 8. saur, 9.
fjallaskarð, 11. tveir eins, 12. dútl, 14.
drykkjarílát, 16. málmur, 17. vafi, 18.
mar, 20. persónufornafn, 21. treysta.
LÓÐRÉTT
1. hluta sólarhrings, 3. tveir eins, 4.
reiðufé, 5. svelg, 7. litaskipti, 10. slit,
13. atvikast, 15. göngulag, 16. hylli,
19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ætli, 6. al, 8. tað, 9. gil,
11. uu, 12. stúss, 14. bikar, 16. ál, 17.
efi, 18. sær, 20. ég, 21. trúa.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. tt, 4. lausafé, 5.
iðu, 7. litblær, 10. lúi, 13. ske, 15. rigs,
16. ást, 19. rú.
... og ég hef alltaf
skammast mín fyrir
vörturnar mínar!
Sérstaklega þessa á
bakinu sem er risastór!
... Gulli frændi var líka
með margar vörtur. Ég
hef þær frá honum. Þær
voru úti um allt á nefinu á
honum! Risastórar!
... Eftir að ég
byrjaði að taka
clorhexoplyrofin er
ég hætt að kroppa
í þær á nóttunni!
Bla! Já! Ég meina JÁ!
Mamma keypti þetta ljóta belti
handa mér um daginn.
Langar þig í
það?
Nei takk, ég
nota ekki belti.
Mér gæti aldrei liðið vel með
hluta af kú utan um mittið á
mér.
Ég er heppin að vera
mamma…
Ég er með sæti á besta stað
á bestu sýningu veraldar - á
uppvexti barnanna minna.
Og það eru bara ellefu ár
þar til ég fæ frí.
Erfiður
dagur?
Hvernig varð það að viðtekinni hug-mynd að börn sem hafa áhuga á að
stunda íþróttir stefni almennt á að verða
afreksíþróttafólk eða atvinnumenn? Þau
skuli öll skara fram úr – með góðu eða illu.
HREYFING er fyrir öllu. Kannski sérstak-
lega í ljósi þess að fimmta hvert barn á
Íslandi mælist yfir kjörþyngd og fimm
prósent barna of feit. Við eigum mikið af
frábærum kornungum íþróttabörnum – en
það þurfa ekki allir krakkar að verða
afreksmenn. Við myndum aldrei gera
þá kröfu á alla fullorðna sem vilja
hreyfa sig.
ÉG var barn sem hafði gaman af
íþróttum. Ég endaði hins vegar með
að ráfa kófsveitt á milli greina af því
að ég meikaði ekki hvað allir voru
æstir í að láta mig taka þetta graf-
alvarlega. Ég var til dæmis ekki
búin að æfa körfubolta nema í
stutta stund, ellefu ára, þegar
mér var uppálagt að taka þátt í
móti. Ég varð mjög stressuð þar
sem ég kunni enn varla regl-
urnar. Hafði fyrst og fremst
byrjað að æfa því þarna voru
skemmtilegir krakkar. Mótið
fór með mig. Ég steig ofan á
tærnar á stelpu sem brjálaðist.
Fékk sjálf boltann í hausinn
og fannst ég glötuð. Tórði út
veturinn, hætti síðan. Áður hafði ég farið
á sundæfingu en séð að ég hafði ekki roð
við afreksfólkinu þar. Bekkjarfélagarnir
voru allir farnir að æfa fimm daga í viku
þegar ég loks rankaði við mér. Of gömul.
Kornung.
BRÓÐIR minn æfði fótbolta og ég man vel
eftir sumrinu þegar hann var fjórtán ára.
Hann gat ekki farið í sumarfrí með okkur
því hann þurfti að mæta á stífar æfingar.
Litlu seinna fór ég sjálf að æfa karate.
Þegar kom að prófi númer þrjú, rauða
beltinu, hætti ég. Glopraði því þó aldrei út
úr mér að mig hefði bara langað að læra
sjálfsvörn í friði.
ÉG fann mig í samkvæmisdansi. Adam
var þó ekki lengi í paradís. Í bænum
mínum voru nánast engir strákar að æfa
dans og í níunda bekk mátti ég ekki lengur
keppa á mótum og dansa við stelpu. Ég
var ókeppnisfær. Skilaboðin voru að þar
með væri botninn dottinn úr þessu sprikli
mínu. Takk og bless.
ÉG lærði líka á píanó og ekki er minni
afreksáhersla þar. Eftir sex ára nám var
ég komin með upp í kok af skölum, prófum
og stigsprófum. Keppnisskapið hjá mér
kom ekki fyrr en síðar. Ég held að þegar
ég var barn hafi mig bara langað að fá
að vera barn. Hlaupa, sprikla, spila af
fingrum fram – og hafa það gaman.
Kæra 7 ára barn, hertu þig
Margrét Erla Maack
er fjölmiðlakona, uppistandari og
magadans kennari.
Hún hefur þó enn ekki ákveðið hvað hún vill
verða þegar hún er orðin stærri.