Fréttablaðið - 02.06.2011, Page 8
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR8
1. Fyrir hvað stendur skamm-
stöfunin SAF?
2. Hver er forseti FIFA?
3. Hver er skammstöfun alþjóðlegu
leiklistarsamtakanna?
SVÖR
1. Samtök ferðaþjónustunnar 2. Sepp
Blatter 3. ASSITEJ
UMHVERFISMÁL Lagning rafmagns-
línu milli Hellisheiðarvirkjunar og
Sandskeiðs, sem kölluð er Þorláks-
hafnarlína 3, mun hafa veruleg
neikvæð umhverfisáhrif að mati
Skipulagsstofnunar.
Landsnet stefnir að því að leggja
tvær línur frá Hellisheiðarvirkjun
til Þorlákshafnar. Línurnar eru
kallaðar Þorlákshafnarlínur 2 og
3, og eiga að sjá orkufrekum iðn-
aði á svæði vestan Þorlákshafnar
fyrir orku.
Skipulagsstofnun gerir ekki
miklar athugasemdir við línu 2,
þar sem hún á að liggja um svæði
sem þegar hefur verið raskað.
Lína 3 á hins vegar að liggja frá
tengivirki Orkuveitu Reykjavíkur
á Orrustuhól á Hellisheiði, öðru
hvoru megin við Skálafell og að
Sandfelli við Þorlákshöfn, um land
sem ekki hefur verið raskað.
Verði línan lögð verður veruleg
röskun á stærstu landslagsheildun-
um á Hengils- og Hellisheiðarsvæð-
inu sem enn eru ósnortnar vega
sjónrænna áhrifa, að mati Skipu-
lagsstofnunar. Í áliti stofnunarinn-
ar kemur fram að með auknu raski
á Hengilssvæðinu hafi verndargildi
ósnortinna svæða farið vaxandi.
„Skipulagsstofnun telur því
ótvírætt að lagning Þorlákshafn-
arlínu 3 muni hafa verulega nei-
kvæð áhrif á landslag og muni
rýra talsvert útivistargildi svæð-
isins í kringum Skálafell sem
Sveitarfélagið Ölfus hefur skil-
greint sem hverfisverndarsvæði
vegna útivistar,“ segir í álitinu.
Þar segir jafnframt að Lands-
net hafi ekki fært rök fyrir því
að línurnar geti ekki legið sam-
hliða eftir leið 2 á stórum kafla,
sem muni hafa mun minni
umhverfisáhrif.
- bj
Lagning rafmagnslínu til Þorlákshafnar mun hafa veruleg neikvæð áhrif að mati Skipulagsstofnunar:
Rýrir útivistargildi svæðisins við Skálafell
LÍNUR Leggja á tvær rafmagnslínur milli
Hellisheiðarvirkjunar og Þorlákshafnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT
Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI
Meiri Vísir.
Óska eftir að kaupa enska
linguaphone námskeiðið
English course námskeiðið upplýsingar 865 7013
DÓMSMÁL Fulltrúi ákæruvaldsins skilaði í gær Hákoni
Stefánssyni, íslenskum ferðamanni, ginflösku sem
gerð var upptæk í tollinum á Keflavíkurflugvelli
árið 2008.
Hákon hafði tvær ginflöskur í fórum sínum þegar
hann kom heim úr ferðalagi fyrir þremur árum,
en samkvæmt reglugerð ráðherra var leyfilegt að
fara með að hámarki einn lítra í gegnum tollinn.
Umboðsmaður Alþingis hafði hins vegar stuttu
áður komist að þeirri niðurstöðu að reglugerðin
stæðist ekki lög og neitaði Hákon því að borga sekt
vegna flöskunnar. Honum var í kjölfarið stefnt fyrir
ólögmætan innflutning á áfengi.
Aðalmeðferð á málinu átti að fara fram fyrir
Héraðsdómi Reykjaness í gær en í upphafi með-
ferðarinnar lét fulltrúi ákæruvaldsins verjandann
í málinu fá flöskuna og tilkynnti að málið yrði látið
niður falla. Málskostnaður var síðan ákveðinn 690
þúsund krónur, sem skulu greiðast af hinu opinbera.
Lögum um innflutning áfengis var breytt þrem-
ur mánuðum eftir að málið kom upp. Því er ekki
lengur uppi vafi um lögmæti takmörkunarinnar á
innflutningi á áfengi í gegnum tollinn. - mþl
Var stöðvaður með tvær flöskur í tollinum 2008 en neitaði að greiða sekt:
Fékk ginflöskuna aftur frá tollinum
STJÓRNMÁL Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í umhverfis- og sam-
gönguráði Reykjavíkurborgar
leggja til að fallið verði frá því
að innleiða svokallaða 15 metra
reglu í sorphirðu borgarinnar.
Í bókun fulltrúanna segir að
þó að hugmyndafræðin bak við
reglubreytinguna sé skiljanleg
og jákvætt að leita leiða til að
tryggja að sorphirðan standi
undir sér sé mikilvægt að gætt sé
jafnræðis, sanngirni og haft sé
gott samstarf við borgarbúa. - bj
Sjálfstæðismenn í borginni:
Vilja hætta við
15 metra reglu
SORP Reykjavíkurborg vill að eigendur
sorpíláta sem standa lengra en fimmtán
metra frá gangstétt greiði aukalega fyrir
að fá sorpið sótt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Eiginfjárframlag
ríkissjóðs vegna endurreisnar
bankanna nemur 135 milljörðum
króna, samkvæmt greinargerð
fjármálaráðherra sem rædd var á
Alþingi í gær. Það er um 250 millj-
örðum króna lægri upphæð en
gert var ráð fyrir, en upphaflega
var reiknað með 385 milljarða
króna kostnaði.
Stjórnarand-
staðan gagn-
rýndi mál ið
harðlega og
taldi að með
samningum
nytu kröfuhaf-
ar einir betri
stöðu ba nk-
anna. „Þetta
mun tryggja
gömlu bönkun-
um meira eða
minna allan ávinning af þeim
hagvexti sem hér verður,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í umræð-
unum. Hann sagði að búið væri
að finna þá sem myndu soga hag-
vöxtinn til sín, gömlu bankana.
Samflokksmaður hans, Sigurð-
ur Kári Kristjánsson, tók undir
þetta og sagði ríkisstjórnina hafa
slegið skjaldborg um erlenda vog-
unarsjóði en brugðist almenningi
og íslenskum fyrirtækjum. Hann
kallaði eftir því að forsætis- og
fjármálaráðherra gerðu grein
fyrir því hvernig þeir myndu axla
ábyrgð sína í málinu.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
maður Framsóknarflokksins,
gekk skrefinu lengra og kallaði
eftir afsögn; ef ekki ríkisstjórnar-
innar allrar þá fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra svaraði í engu kröf-
um um afsögn. Hann sagði samn-
ingana um endurreisn bankanna
byggja á fyrstu endurskoðun
efnahagsáætlunar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, en undir hana hefðu
ritað, fyrir Íslands hönd, Geir H.
Haarde, Árni Mathiesen og Davíð
Oddsson.
Steingrímur segir í samtali við
Fréttablaðið að sé greinargerðin
skoðuð komi í ljós að gríðarlega
flókið verkefni hafi verið leitt
til lykta á farsælan hátt. Unnið
hafi verið algjörlega á forsendum
neyðarlaganna og hagsmunir
innlendra aðila, nýju bankanna
og innstæðueigenda, hafi verið
hafðir í huga.
„Þetta mun lækka vaxta-
greiðslur ríkisins síðustu tveggja
ára um líklega fjörutíu milljarða
króna. Ríkið hefur því notið góðs
af þessu og ríkið er jú við öll.“
Auk eiginfjárframlags ríkis-
ins veitir ríkið tveimur bönk-
um víkjandi lán; Arion banka að
fjárhæð þrjátíu milljarðar króna
og Íslandsbanka að fjárhæð 25
milljarðar króna. Er það gert til
að þeir geti uppfyllt skilyrði FME
um sextán prósenta eiginfjár-
hlutfall. kolbeinn@frettabladid.is
Endurreisn banka
kostar 190 milljarða
Kostnaður ríkissjóðs við endurreisn viðskiptabankanna er 250 milljörðum lægri
en reiknað var með. Stjórnarandstaðan gagnrýnin og telur ríkisstjórn meta
hagsmuni kröfuhafa ofar heimilanna. Afsagnar fjármálaráðherra krafist.
ALÞINGI Hart var tekist á á Alþingi í gær og flugu ýmis stóryrði. Meðal annars var
afsagnar fjármálaráðherra krafist og ríkisstjórnin sökuð um tilræði við almenning í
landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Ný byggingarreglugerð
Drög að nýrri byggingarreglugerð
hafa nú verið send út til umsagnar,
en þau koma í kjölfar nýrra laga um
mannvirki sem tóku gildi um síðustu
áramót. Alls komu átta vinnuhópar,
skipaðir 60 fulltrúum hagsmuna-
aðila, að endurskoðuninni. Drögin
má kynna sér á heimasíðu umhverfis-
ráðuneytisins.
SKIPULAGSMÁL
Ufsi hækkar um 10 prósent
Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna
og útvegsmanna var ákveðið að
hækka verð á slægðum og óslægðum
ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu
eða seldur til skyldra aðila, um 10
prósent. Verð þetta gildir frá og með
1. júní 2011.
SJÁVARÚTVEGUR
Vélarvana í innsiglingunni
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík
var kölluð út í gærmorgun þegar
bátur varð vélarvana í innsigling-
unni í Grindavík. Björgunarbátur
sveitarinnar var kominn að bátnum
nokkrum mínútum síðar, og dró
bátinn til hafnar.
BJÖRGUN
LEIFSSTÖÐ Ráðherra var óheimilt að setja hámark á leyfilegt
magn áfengis sem taka má með sér í gegnum tollinn með
reglugerð. Hámarkið hefur nú verið lögfest. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEISTU SVARIÐ?