Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 22

Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 22
22 2. júní 2011 FIMMTUDAGUR Þessa dagana vinnur stjórn-lagaráð að því að semja frum- varp til nýrrar stjórnarskrár. Það er löngu tímabært. Í frum- varpinu verður ákvæði um þjóð- aratkvæðagreiðslur og hvernig til þeirra verði stofnað. Senni- lega verður lagt til að tiltekinn hluti kjósenda og e.t.v. einnig til- tekinn hluti alþingismanna geti óskað eða krafist þjóðaratkvæða- greiðslu um tiltekin mál. Þetta verður mikið framfaraskref. Eðli málsins samkvæmt verða þjóðar- atkvæðagreiðslur einkum haldn- ar um mikilvæg álitaefni. Þess vegna má búast við að þjóðar- atkvæðagreiðslurnar geti stuðl- að að því að kjósendur í landinu verði upplýstari og betur að sér um brýn álitamál, sem til þessa hafa einkum verið til umfjöll- unar meðal stjórnmálamanna. Það getur líka orðið til að bæta ákvarðanatöku stjórnvalda. Nú eru margir kostir við það fyrirkomulag að almenningur kjósi trausta og skynsama full- trúa á þing til að setja land- inu lög og ákveða hlutina. Mörg álitamál sem stjórnvöld þurfa að taka afstöðu til eru flókin. Það er tímafrekt að kynna sér þau á fullnægjandi hátt. Hver getur óskað sér þess að þurfa að setja sig inn í mál á borð við Icesave- deiluna, þegar það er hægt að nota tímann í annað? Eða taka afstöðu til flókinna breytinga á smáatriðum í skattalöggjöfinni? Staðreyndin er sú að frá sjón- armiði einstaklinga virðist tím- inn sem fer í að hugsa um sam- eiginleg málefni okkar oft fara fyrir lítið. Með því að hugsa um landsins gagn og nauðsynj- ar kasta menn tíma sínum á glæ. Það er margt sem veldur því. Eitt er að venjulegt fólk er valdalítið. Ef lesandi þessar- ar greinar hefur sett sig mjög vel inn í tiltekið mál, til dæmis um staðsetningu Landspítal- ans, eða Vaðlaheiðargöng, eða tvöföldun Suðurlandsvegar, eða Sundabraut, svo nokkur dæmi séu tekin, er líklegast að sú ágæta þekking sem þessi ábyrgi og áhugasami borgari hefur aflað sér komi að litlu gagni nema svona í spjalli við vini og kunningja. Þetta er ein ástæðan fyrir því að það er gott að velja fólk á þing til að taka ákvarðanir og setja sig inn í hlutina. Önnur ástæða er sú að eftir því sem fólk hefur eytt meiri tíma í að setja sig inn í hin samfélagslegu málefni getur það verið fljótara að átta sig á nýjum álitaefnum. Þegar allt kemur til alls virðast stjórn- mál, öðrum þræði að minnsta kosti, vera „fag“. Látum fag- mennina um þetta, er oft sagt. Og við látum fagmennina um þetta. Stjórnmálin virðast vera atvinnugrein, sumir hafa atvinnu af stjórnmálavafstri jafnvel frá unga aldri. En ég vil taka allt annan pól í hæðina. Almenningur hefur nefnilega gott af því að „kasta tíma sínum á glæ“ og hugsa um landsins gagn og nauðsynjar og skeggræða hlutina. Auðvitað í hófi. Þegar allt kemur til alls er það ekki sæmandi fyrir menn að lifa lífinu án afskipta eða þátt- töku í ákvörðunum sem varða lífshagsmuni þeirra. Sinnuleysi um slíkt sæmir ekki frjálsu fólki. Og ég fæ ekki betur séð en að að halda þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál séu góð leið til þess að vekja fólk upp af doðan- um. Og knýja það til þess að taka misvitrar ákvarðanir um málin. Þá þarf hver og einn kjósandi sem hefur haft skoðun á hinu erf- iða máli að standa fyrir máli sínu gagnvart kunningjum sínum og vinum í umræðum um málið. Það hlýtur að vera bæði hollt og gott. Við höfum lengi haft þing, sem hefur tekið einmitt mis- vitrar ákvarðanir um mikilvæg mál. Stundum virðist það líka hafa látið sér nægja að taka ekki ákvarðanir um mikilvæg mál. Þá hafa ákvarðanirnar að því er virðist eiginlega bara tekið sig sjálfar, svo furðulegt sem það nú er. Það er enginn skortur á stórum málum í samtíma okkar. Hér fyrr voru nefnd fáein dæmi. En það má bæta nýjum dæmum við. Spurninguna um lögleiðingu staðgöngumæðrunar, sem þing- menn voru næstum því búnir að hleypa í einum hvínandi hvelli í gegn fyrir fáeinum vikum. Spurninguna um hvort við eigum að viðhafa almennilegt landa- mæraeftirlit. Hvort við eigum að banna starfsemi samtaka ef þau virðast einkum fást við glæpa- starfsemi. Hvort við eigum að takmarka botnvörpuveiðar til að vernda hafsbotninn. Þetta eru auðvitað bara fáein dæmi. Að mínu mati eru þau mál sem hér hafa verið nefnd ekki endilega öll heppileg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur. En ég tel að hugmyndir og fyrirætlanir stjórnvalda um mál af þessu tagi verðskuldi hins vegar örugglega mun ítarlegri og nánari skoðun og ígrundun af hálfu almennings en farið hefur fram til þessa. Ég vil því varpa fram þeirri hugmynd að í stjórnarskrá verði ekki aðeins kveðið á um mögu- leikann á að knýja fram þjóðarat- kvæðagreiðslur, heldur verði þar einnig kveðið á um að unnt sé að kalla saman ráðgefandi þing um tiltekin mál. Það má hugsa sér að stjórnvöld þurfi að halda þjóðar- atkvæðagreiðslur um málefni af nánar afmörkuðum toga ef 20% atkvæðabærra manna óska eftir því. Þá mætti hugsa sér að ef ekki fást alveg nógu margir til að óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu – ef til dæmis aðeins 10–15% atkvæðabærra manna hafa skrif- að undir slíka ósk – þyrftu stjórn- völd að setja á fót ráðgefandi þing um málið. Ráðgefandi þing yrði eins konar millileið. Það hefði mjög stuttan starfstíma. Á þing- ið yrði valið með vönduðu slembi- úrtaki, til dæmis 50 einstakling- ar til að starfa í til dæmis 3 til 5 daga. Þetta ráðgefandi þing – eins konar kviðdómur eða kvið- stefna – þyrfti að fá vönduð gögn um málið frá stjórnvöldum auk þeirra gagna sem hin opinbera umræða hlýtur ævinlega að skila. Og þingið þyrfti að senda frá sér niðurstöðu um málið, helst rökstudda. Búast má við að slík ráðstefna gæti kostað svolítið fé. Það er allt í lagi. Það hefur nefnilega marga kosti í för með sér að kalla til slíkrar ráðstefnu. Undirbúningur ráðstefnunnar krefst þess að stjórnvöld taki saman almenni- leg gögn um kost og löst á fyrirhugaðri ákvörðun, því ann- ars er hætta á að ráðstefnan leggist gegn ákvörðuninni. Mig grunar að þetta eitt og sér gæti verið mjög mikið framfaraskref í stjórnsýslunni í landinu okkar. Hið opinbera álit sem ráðstefn- an sendi frá sér myndi auk þess verða aðhald fyrir stjórnsýsl- una og löggjafann. Og síðast en ekki síst myndi þátttaka í ráð- stefnunni vera til þess fallin að mennta þátttakendur og efla með þeim borgaralegar dyggðir. Þjóðaratkvæðagreiðslur og ráðgefandi þing Kringumstæður dýra, umhverfi þeirra, afkomumöguleikar þeirra, eru mismunandi. Með tímanum getur það leitt til mismunar innan tegundarinnar; mismunur þessi er oft orðinn arfgengur eins og dæmin sýna, fiskar vaxa í mismunandi stærð þótt hafi nóg æti, menn eru misstórir vexti, misgóðir í kúluvarpi, músík, ólíkir á litinn, lögun á nefi er mismunandi, allt getur þetta erfst. Þ a n n i g g e t u r o r ð i ð erfðafræði legur munur á einstaklingum innan tegundarinnar. Breytileikinn getur verið frá manni til manns, milli héraða, milli landa. Sumir lifa af harðneskjuleg skilyrði, aðrir ekki. Maðurinn lifir á mörkum – lífvænlegra skilyrða. Visst úrval hefur til dæmis gert ákveðnum hópum auðveldara að búa í Síberíu en öðrum. Vissar stjórnmálastefnur afneituðu því, að menn gætu verið misjafnir að erfðum, menn áttu þá að vera jafnir við fæðingu, þ.e. eins. En erfðafræði þessa máls er bærilega skýr. Auðvitað eru menn ólíkir að upplagi, þ.e. erfðum. Og auðvitað ráða aðstæður mjög hvernig úr rætist. Breytileiki innan tegundarinnar homo sapiens er vel þekktur en hann er ekki af völdum vondra manna. Snemma á 20. öldinni loddi mjög við önnur stjórnmálaöfl sú kenning að hvíti maðurinn byggi við meiri greind en dekkri kynstofnar. Mælitækni og túlkun reyndust haldlítil vísindi. Sumt var falsað. Í skólum vestrænna iðnvæddra landa varð geta til bóknáms aðalviðmið þegar almenna hæfni átti að meta. Ó, vei! Verksvit er reyndar fallegasta tegund af viti. Gott verksvit þarf til að mæla það. Auðvitað eru menn misjafnir að upplagi, en upplagið er afar erfitt að meta eða mæla, túlkun á niðurstöðum ennþá flóknari. Hér er mikið pláss fyrir hleypidóma, sleggjudóma og fordóma. Samansetning á hinum fjölmörgu erfðaþáttum einnar manneskju gefur heildarútkomu – þá sem mann varðar kannski um – en þá samansetningu er ekki hægt að mæla. Að ofan var bent á hve ólíkir og mismunandi við menn værum. Nú verður að finna út hvernig við förum að því að lifa saman, svo ólíkir sem við erum. Við reynum að samræma alla hluti – það er svo hagkvæmt – og réttlátt! – samræmt er námsefni skóla, stærð banana á markaði, klæðaburður nemenda, tímasetning á upphafi skóladags. Varla getur samræming allra málaflokka verið góð fyrir alla – svo ólík sem við erum innbyrðis. Við erum dálítið ólík innbyrðis Samfélagsmál Valgarður Egilsson læknir Stjórnarskrá Þorbergur Þórsson hagfræðingur En ég vil taka allt annan pól í hæðina. Almenningur hefur nefnilega gott af því að „kasta tíma sínum á glæ“ og hugsa um landsins gagn og nauðsynjar og skeggræða hlutina. Auðvitað í hófi. Stilling hf. | Sími 520 8000 www.stilling.is | stilling@stilling.is Sjá nánar á: stil l ing.is/hjolafestingar ÞÚ SPARAR 2.595 TILBOÐ 11.400 VERÐ ÁÐUR 13.995 AFMÆLISTILB OÐ TAKMARKAÐ MAGN Hjólafestingar Fylgist með störfum Stjórnlagaráðs og hafið áhrif á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins. Bein útsending frá sameiginlegum fundi ráðsins er á hverjum fimmtudegi kl. 13 á vefsíðu ráðsins: www.stjornlagarad.is. Fundirnir eru opnir almenningi. Öll gögn ráðsins má finna á vefsíðunni. Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.