Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 50
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR42
golfogveidi@frettabladid.is
Aðeins örfáir dagar eru í að lax-
veiðitímabilið byrji. Veiði hefst í
Norðurá og Blöndu á sunnudag-
inn, en báðar þessar ár voru á
meðal aflahæstu áa síðasta sumar.
Í Norðurá veiddust 2.279 laxar á
fjórtán stangir en í Blöndu veidd-
ust 2.777 laxar á átta stangir.
Auk þess hefst veiði í Straumum,
ármótum Norðurár og Hvítár, og á
Ferjukotseyrum í Borgarfirði.
Haraldur Eiríksson, markaðs- og
sölufulltrúi SVFR, er bjartsýnn á
góða veiði í Norðurá í sumar.
„Auðvitað er erfitt að spá fyrir
um veiðina,“ segir Haraldur. „Það
er samt óhætt að segja að menn séu
almennt bjartsýnir. Það er allavega
búið að selja öll veiðileyfin í ána í
júní. Jákvæðu tíðindin, hvað opn-
unina snertir, er að það virðist
vera nóg af vatni í ánni. Í fyrra var
það einmitt vatnsleysið sem gerði
mönnum erfitt og fyrir og það olli
því að opnunin var frekar döpur
þótt nóg væri af fiski í ánni.“
Stefán Sigurðsson, hjá Lax-á,
verður sjálfur í Blöndu við opn-
unina. Hann segir að vel hafi geng-
ið að selja veiðileyfi í ána og líkt og
Haraldur segist hann vongóður
um að veiðin í Blöndu verði góð í
sumar, enda hafi síðustu tvö ár
verið metár.
Hugurinn kominn á árbakkann
„Blanda er ein allra sterkasta
júní-áin og það er óhætt að segja
að maður sé spenntur. Ég hef lítið
sofið undanfarnar nætur enda hug-
urinn kominn á árbakkann,“ segir
Stefán. „Í fyrra sáum við engan
lax fyrr en kvöldið fyrir opnunina.
Nú hafa menn aftur á móti þegar
komið auga á lax og enn eru nokkr-
ir dagar til stefnu – það veit á gott.
Oftast hafa veiðst á bilinu 10 til 18
laxar við opnunina. Í fyrra voru
þeir hins vegar 40, allt stórlaxar.
Það er því ekki að ástæðulausu að
maður liggur andvaka.“
Í ársskýrslu Veiðimálastofnunar
sem kynnt var á aðalfundi stofn-
unarinnar í byrjun maí er farið
yfir veiðihorfurnar fyrir sumar-
ið. Í skýrslunni segir að á síðustu
þremur árum hafi stangveiði nátt-
úrulegra laxa verið sú mesta frá
því skráningar hófust. Í fyrra hafi
laxinn almennt gengið fyrr í árnar
en árin þar á undan og von sé til
að svo verði áfram og viðsnúningur
hafi orðið á göngutíma.
Búist við góðri veiði í sumar
„Sveiflur hafa ávallt verið í veiði á
laxi og fylgjast yfirleitt að nokkur
góð ár og nokkur slæm þar til við-
snúningur verður,“ segir í skýrsl-
unni. „Í ljósi þess má búast við
að stangveiðin sumarið 2011, úr
náttúrulegum laxastofnum, verði
áfram góð og verði vel yfir meðal-
stangveiði. Sleppingar gönguseiða
í hafbeitarár voru áfram umtals-
verðar á síðasta ári og því líkur til
að veiði í þeim verði áfram umtals-
verð. Í þeim ám ræðst fiskgengd af
fjölda slepptra seiða ásamt endur-
heimtuhlutfalli úr sjó en það fylg-
ist að verulegu leyti að við endur-
heimtuhlutfall á náttúrulegum
laxi.“
Þar sem laxveiðin er formlega að
ganga í garð er ágætt að brýna það
fyrir veiðimönnum að skrá veiðina
samviskusamlega í veiðibækur.
Slíkt er mjög mikilvægt til að afla
þekkingar um ástand fiskstofna og
nýtingu þeirra. trausti@frettabladid.is
Laxveiðin hefst í Norðurá
og Blöndu á sunnudaginn
Laxarnir eru byrjaðir að bylta sér í Blöndu. Meira vatn er í Norðurá en á sama tíma í fyrra. Talsmenn
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og Lax-á eru bjartsýnir. Veiðimálastofnun býst við góðri laxveiði í sumar.
„Þegar ég sá fiskinn fékk ég hálf-
gert taugaáfall. Mig grunaði ekki
að hann væri svona stór og var
því rólegur allan tímann. Kannski
náði ég honum vegna þess að ég sá
hann ekki fyrr en í löndun,“ segir
Tómas Skúlason, sem landaði 23
punda urriðahæng í Þingvalla-
vatni um liðna helgi.
„Við félagi minn vorum á
löngum tíma búnir að fara um allt
vatn og leita að fiski en það var
mjög dapurt yfir þessu. Síðasta
morguninn fór ég út til að taka
nokkur köst og hann var á í þriðja
kasti. Sá fiskur var fljótur að losa
sig en tveimur köstum seinna
setti ég í þennan glæsifisk,“ segir
Tómas, sem eins og aðrir sem
verða þeirrar gæfu aðnjótandi að
setja í risaurriða í Þingvallavatni
lýsir viðureigninni sem kostulegri.
Fiskinn sá hann aldrei fyrr en
í löndun eftir tæplega klukkutíma
viðureign. Þá hafði Tómas þurft að
vaða út í vatnið til að losa línuna,
sem var nær öll úti. Á meðan hélt
félagi hans í stöngina.
„Ég landaði því urriðanum
blautur upp að eyrnasneplum en
hamingjusamur,“ segir Tómas,
sem ætlar urriðanum stað á vegg
veiðiverslunarinnar Veiðiportsins
sem hann á og rekur.
Urriðinn er 97 sentimetrar á
lengd og 58 að ummáli. Hann
veiddist á sökklínu og straumflugu
með keilu sem heitir Páskaunginn.
Taumurinn var tólf pund.
- shá
Tómas Skúlason náði að landa urriðatrölli í Þingvallavatni eftir langa baráttu:
Fékk taugaáfall þegar ég sá fiskinn
GLÆSILEGUR 23 PUNDA HÆNGUR Vatnaveiðin í vor einkennist meðal annars af
köldu veðri og risaurriðum úr Þingvallavatni. MYND/TÓMAS
Opnunarhollin á urriðasvæðunum í Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal gerðu
ágæta veiði. Í Mývatnssveitinni komu 310 urriðar en um hundrað fiskar í
Laxárdalnum. Veitt er á 24 stangir.
Bjarni Höskuldsson umsjónarmaður segir menn ánægða með veiðina,
sérstaklega vegna þess hversu kalt hafi verið á fyrstu dögum veiðitímans.
Hins vegar er eftir því tekið hversu vel fiskurinn er haldinn eftir veturinn og
margir stórir urriðar hafa veiðst. Þar af eru nokkrir um og yfir sjö pund, sem
Bjarni lýsir sem „nær afmynduðum“ vegna stærðar sinnar. - shá
400 urriðar á land í Laxá í köldu veðri
María er hönnuð af fyrrver-
andi formanni SVFR, Krist-
jáni Guðjónssyni. Alloft
hefur þessi skæða laxatúpa
gefið fyrsta laxinn við opnun
Norðurár í Borgarfirði, en
veiði í Norðurá hefst einmitt
nú um helgina.
Gott vatn er í ánni og því
afar líklegt að fyrstu laxarnir
taki túpur að þessu sinni.
UPPSKRIFT:
1“ eirrör
Tvinni – Svartur UNI 6/0
Stél – Svartlituð hár af hjartar-
dindli ásamt nokkrum þráðum af
Krystal Flash
Vöf – Ávalt silfur UNI tinsel
Búkur – Appelsínugult ullarband
Hringskegg – Svartlituð hænu eða
Schlappen fjöður
Haus – Svartur.
Með 1“ túpunni er gott að nota
Kamasan þríkrækju #8
Mynd og uppskrift af Flugan.is
María líkleg í
Norðuránni
NORÐURÁ Í BORGARFIRÐI Norðuráin er oft kölluð drottning íslenskra laxveiðiáa.
Svæðið sem hægt er að veiða á er um 65 kílómetra langt.
FL
U
G
A
N MARÍA
5 LAXAR fengust úr Norðurá fyrsta veiðidaginn í fyrra. Laxarnir voru allir tveggja ára laxar og vænir eftir því. 22 LAXAR var afli opnunar-hollsins í Blöndu í fyrra.
Höskuldur B. Erlingsson, lögreglu-
maður og leiðsögumaður í
Blöndu, sendi forsvarsmönnum
Lax-á tölvupóst í fyrradag þegar
hann var nýkominn úr „vettvangs-
ferð“ í Blöndu.
„Ég tyllti mér á brúnina fyrir
ofan Damminn og sat þar í nokkra
stund,“ skrifar Höskuldur. „Þá bylti
sér fallegur 2 ára lax í miðjum
Damminum. Silfurbjartur og
fallegur og á að giska 12-14 pund.
Annað sá ég ekki en ég neita því
ekki að hjartað tók kipp. Svo í
morgun (gærmorgun) ákvað ég
að kíkja aftur og gá hvort ég yrði
var við eitthvert líf. Og viti menn,
2 laxar lágu neðst á klöppinni fyrir
ofan flúðirnar í Damminum.“ - th
Hjartað tók kipp
DAMMURINN Í BLÖNDU Stefán
Sigurðsson, hjá Lax-á, sést hér með
einn fallegan sem hann veiddi í
Damminum.
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu
fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um
veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði.
Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur
upp á að bjóða.