Fréttablaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 6
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR6 TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk Nýjar og betri umbúðir! EVRÓPUMÁL Gildandi grunnsátt- málar Evrópusambandsins, þar með taldar viðbætur Lissabon- sáttmálans, hafa verið þýddir á íslensku og eru fáanlegir í einu skjali á síðu utanríkisráðuneytis. Þetta er í samræmi við þá stefnu að þýða á íslensku lykilskjöl er snerta aðildarviðræður Íslands og ESB, segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Sáttmálarnir eru grund- völlur alls starfs ESB, sem sækir heimildir til að samþykkja nýja löggjöf til þeirra, segir þar jafn- framt. Þýðingarmiðstöð ráðuneytisins vann verkið, sem er 388 síður. - kóþ Þýðingarmiðstöð skilar af sér: Sáttmálar ESB komnir á netið VÍSINDI Doktor Hörður G. Kristins- son, rannsóknastjóri hjá Matís, hlaut í gær hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs á Rann- sóknaþingi Rannís. Hörður tók við viðurkenningunni úr hendi forsætis ráðherra, sem jafnframt er formaður Vísinda- og tækniráðs. Hörður er fæddur árið 1972 og lauk doktorsnámi í matvælalífefna- fræði frá Massachusetts-háskóla árið 2001. Verðlaunin hafa frá 1987 verið veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr. Þau eru nú tvær milljónir króna. - sh Fær hvatningarverðlaun: Hörður þykir skara fram úr FÆR TVÆR MILLJÓNIR Hörður tók við verðlaununum úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem er formaður Vísinda- og tækniráðs. ALÞINGI Þingmenn virðast hafa óvenju mikið að segja um hin ýmsu mál þessa dagana og mæl- endaskrár um hin ólíkustu mál eru langar. Þar að auki er mikið um andsvör og svör við andsvör- um, oft á milli samflokksmanna, sem ræða saman um málefnin úr ræðustól Alþingis. Oftar en ekki er um stjórnarandstæðinga að ræða og stjórnarliðar hafa um þetta eitt orð: málþóf. Á meðan reyna forystumenn flokka og þingflokka að semja um þinglok, en ekki liggur enn fyrir samkomulag þar um. Heimildir Fréttablaðsins herma að það séu fyrst og fremst frum- varp sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun, hið minna svo- kallaða, og frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gjaldeyris- höft sem standa í sjálfstæðis- mönnum og hamla því að þeir séu tilbúnir til samninga um lok þings- ins. Stjórnarliðar eru staðráðnir í að koma þessum málum í gegnum þingið nú, í einhverri mynd. Kvóta- frumvarpið tekur enda á strand- veiðum sem stunda á í sumar, svo líta mætti á það sem meiri háttar ósigur fyrir ríkisstjórnina takist henni ekki að fá frumvarp um þær samþykktar. Bæði þessi frumvörp komu fram eftir að framlagningar frestur rann út, en hann var 1. apríl. Stjórnarandstæðingar hafa gagn- rýnt það mjög og sakað stjórnina um hræsni, en eitt af markmiðum hennar var að bæta starfshætti þingsins, meðal annars með því að virða frest um framlagningu. Steingrímur J. Sigfússon fjármála ráðherra segir að vissu- lega hefði verið betra að fá mál inn fyrir þann frest. Starfshættir hafi þó batnað til muna og í raun hafi aðeins þrjú meiri háttar mál komið að frestinum loknum: fisk- veiðistjórnun, raunar tvö frum- vörp, frumvarp um gjaldeyrishöft og bandormur um aðgerðir í ríkis- fjármálum. Hið síðastnefnda er til- komið vegna kjarasamninga. Steingrímur segir að of mikið hafi verið gert úr því að mikinn tíma þurfi í kvótafrumvarpið hið minna. Aldrei hafi staðið til að það fengi neina flýtiafgreiðslu, en það ætti að vera hægt að afgreiða málið núna, enda hafi það legið frammi í nokkrar vikur. Stjórnarliðar sem Frétta blaðið hafði samband við voru margir hverjir á því að leyfa stjórnarand- stöðunni að fara í málþóf, kysi hún svo. Ekki kæmi til greina að láta hana kúska stjórnina til hlýðni í kvótamálum. kolbeinn@frettabladid.is Ekkert samkomulag liggur fyrir á Alþingi Ekki hefur enn náðst samkomulag um lok þingsins. Kvótinn og gjaldeyrishöft standa í sjálfstæðismönnum. Stjórnarliðar ræða um að stjórnarandstæðingar séu farnir að beita málþófi. Reyna að semja um að ljúka þingi á næstu dögum. ÁHUGASAMIR Alþingismenn eru óvenju áhugasamir um fjölmörg mál þessa dagana, ef marka má fjölda þeirra sem tjá sig í stórum og smáum málum. Málþóf, segja stjórnarliðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ATVINNULÍF Stjórnendur og starfsmenn banka fylgjast margir með yfirheyrslum og málsóknum á hendur fyrrverandi vinnufélögum. Þeir vilja ekki lenda í sömu sporum og eru hræddir við að taka ákvarð- anir, að sögn Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Sam- keppniseftirlitsins. „Þetta eru kerfislægir hvatar sem hægja á ferlinu,“ segir hann. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins sem kynnt var í gær og fjallar um fjárhagsstöðu og fjárhagslega endurskipulagningu 120 stórra fyrirtækja kemur fram að staða tæplegra helmings fyrirtækja sé mjög slæm en aðeins fimmtungur í góðri stöðu. Þriðjungur fyrirtækjanna hefur lokið fjárhagslegri endur- skipulagningu. Fram kemur í skýrslunni að bankar eigi minni hlut nú í fyrirtækjum en áður. Strax eftir hrunið fór hann í sjötíu prósent. Hluturinn er nú kominn í 49 prósent. Páll sagði ranga hvata tefja endurreisnin efnahags- lífsins. Þar á meðal væri hræðsla innan fjármála- geirans við of mikla skuldaniðurfellingu. Þá hefðu sumir hagsmuna að gæta af kyrrstöðunni, svo sem skilanefndir gömlu bankanna. „Hætt er við að þessir röngu hvatar togi okkur alla leið til Japan,“ sagði Páll og rifjaði upp að í banka- kreppunni þar hefðu bankar lengt í lánum og aukið fyrirgreiðslur. Af þeim sökum hefði orðið til upp- vakningar, óskilvirk og of skuldsett fyrirtæki. - jab FORSTJÓRINN OG RÁÐHERRA Páll Gunnar Pálsson telur nokkra þætti tefja fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir endurskipulagningu fyrirtækja ganga hægt: Skilanefndirnar hagnast á kyrrstöðu AKUREYRI „Við verðum þá að mæta kostnaðinum með peningum úr vasa skattgreiðenda á Akureyri, sem er mjög ósanngjarnt,“ segir Geir Kristinn Aðalsteinsson, for- seti bæjar stjórnar á Akureyri. Geir segir ríkið ekki munu taka þátt í rekstrar kostnaði Menningar hússins Hofs, heldur einungis bygginga- framkvæmdinni, eins og kveðið er á um í samningnum frá árinu 2003. Ríkið styrkti framkvæmdina um 950 milljónir, en heildar- kostnaður endaði í 3,3 milljörðum króna. Árlegur rekstrarkostnaður Hofs er um 330 milljónir og leggur Akureyrar bær þar til 56 milljón- ir króna. „Ríkið er ekki að brjóta neina samninga, en þetta snýst um sanngirni og jafnrétti. Ráðamenn verða að átta sig á að landsbyggð- inni blæðir,“ segir Geir. Akureyrarbær fær 120 milljónir króna á ári til menningar reksturs. Á ársgrundvelli verður framlag ríkis- sjóðs til Tónlistarhússins Hörpu um 510 milljónir króna og framlög til Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru hækkuð um 45 milljónir, í 717 millj- ónir króna, vegna flutninga hennar til Hörpu og þar af leiðandi hærri húsaleigu. „Þetta er mikið áhyggjuefni og vissulega ósanngjarnt,“ segir Geir. „Við vitum öll að peningar eru af skornum skammti, en boltinn er hjá ríkinu. Þetta er eilíf valdabarátta og við vonum bara að ráðamenn muni skipta um skoðun.“ - sv Ríkið veitti einungis framlög til byggingar Menningarhússins Hofs á Akureyri en tekur ekki þátt í rekstri: Akureyringar standa einir að rekstri Hofs HOF Forseti bæjarstjórnar á Akureyri segir ríkið ekki munu styrkja rekstur Hofs, sem kostar um 330 milljónir á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SUNNA Útgjöld ríkisins Stofnun Upphæð 2011 Tónlistarhúsið Harpa 509,7 m.kr. Íslenski dansflokkurinn 113 m.kr. Þjóðleikhúsið 647 m.kr. Sinfóníuhljómsveit Íslands 717,1 m.kr. Heimild: Frumvarp til fjárlaga 2011 VIÐSKIPTI Viðskiptaráð hefur kynnt fimm áhersluatriði sem það legg- ur til að verði höfð að leiðar ljósi við uppbyggingu og endurreisn hagkerfisins á komandi árum. Atriðin eru sett fram í nýrri skoð- un Viðskiptaráðs. Stefnt er að því að Ísland verði fyrirmynd annarra landa um góða stjórnarhætti, að fjöldi starfa í einkageiranum verði aukinn, að framboð vinnuafls til einkageirans verði aukið, að rekstrarumhverfi fyrirtækja verði alþjóðlega samkeppnishæft og að skilvirkni hins opinbera verði stöðugt aukin. - mþl Skoðun Viðskiptaráðs: Skapi umhverfi til athafna DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl- maður, með ríkisfang í Kongó, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals. Maðurinn framvísaði í byrjun mánaðarins fölsuðu vegabréfi við vegabréfseftirlit á Keflavíkur- flugvelli. Hann sýndi landa- mæralögreglu þar falsað franskt vegabréf. Maðurinn játaði brot sitt ský- laust. - jss Framvísaði fölsuðu vegabréfi: Fangelsisrefsing fyrir skjalafals LEIFSSTÖÐ Maður frá Kongó framvísaði fölsuðu vegabréfi í Leifsstöð í byrjun mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lestu myndasögurnar í dag- blöðunum? Já 38,2% Nei 61,8% SPURNING DAGSINS Í DAG Ertu bjartsýn/n á gengi íslenska U-21 landsliðsins á Evrópu- mótinu í Danmörku? Segðu þína skoðun á visir.is krossgáta ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Gott á þig! Þú getur ekki bara kallað fólk það sem þér dettur í hug! Áái! Þetta... bara.... Þetta bara datt út úr mér... (Fliss!) Eins og ég myndi nokk- urn tímann nota bakpoka á hjólum! Ókei, mér er sama. Gerðu það sem þú vilt. Mér þykir leitt að hafa móðgað þig með því að hafa reynt að vera almennileg. Sniff! KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.