Fréttablaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 10. júní 2011 11 J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Landsbankinn lækkar skuldir viðskiptavina Kynntu þér nýja skuldalækkun Landsbankans. Við lækkum 2 Við lækkum fasteignaskuldir 3 Við lækkum aðrar skuldir1 Við endurgreiðum 20% af vöxtum Þær aðgerðir sem nú eru kynntar koma til framkvæmda fyrir 1. október 2011. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Eski- firði hefur ákært tvo menn um tvítugt fyrir að brjótast ítrekað inn og stela munum að verðmæti á þriðju milljón króna. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fjársvik. Þeir brutust inn í verkstæði Skógræktar ríkisins í Hallormsstað á síðasta ári. Þar stálu þeir fimm keðjusögum, að áætluðu verðmæti ríflega 1,2 milljónir króna, svo og þremur bensínbrúsum, að því er segir í ákæru. Næst lá leiðin í sumarbústað á Fljótsdalshéraði. Þar létu menn- irnir greipar sópa og stálu raf- magnstækjum og borðbúnaði. Þeir reyndu að brjótast inn í annan sum- arbústað en urðu frá að hverfa eftir að hafa unnið skemmdir á honum. Skömmu síðar brutust þeir inn í læstan geymslugám á Egilsstöðum og stálu þar nokkru magni af hrein- lætisvörum. Næst brutust þeir inn í hafnsögubátinn Vött og stálu sjón- auka, talstöð, lyfjum og fleiru. Þeir komust einnig inn á Hótel Capitano á Neskaupstað, eftir að hafa feng- ið lykil hjá manni og konu, sem ákærð eru í málinu fyrir þátttöku. Þar stálu þeir matvöru og áfengi fyrir nær 200 þúsund krónur. Loks sviku þeir á þriðja tug þúsunda út með greiðslukorti sem þeir höfðu stolið. - jss Tveir ungir rummungsþjófar létu greipar sópa á Austurlandi: Ákærðir fyrir milljónaþjófnaði HALLORMSSTAÐUR Mestum verðmæt- um náðu þjófarnir hjá Skógrækt ríkisins í Hallormsstað. MENNING Borgarstjórinn í Reykja- vík, Jón Gnarr, leitar nú eftir ábendingum um íbúa í Reykjavík sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á liðnu ári. Í kjöl- farið verður einn borgar- búi útnefndur Reykvíkingur ársins. „Með því að veita árlega slík verðlaun á meðan ég er borgarstjóri hef ég hug á því að efla áhuga Reyk- víkinga á því að gera eitthvað fyrir borgina sína og samborg- ara,“ segir Jón Gnarr um útnefn- inguna. Sá sem verður að lokum fyrir valinu mun hljóta vegleg verð- laun en þriggja manna dómnefnd hefur verið skipuð til að velja úr innsendum tillögum. - mþl Borgarstjóri Reykjavíkur: Leitar að Reyk- víkingi ársins JÓN GNARR FRAKKLAND Rúmlega hundrað líkum hefur verið náð upp úr flaki Air France vélar sem fórst í Atlantshafi fyrir tveimur árum. Ekki var mögulegt að ná upp líkamsleifum fleiri en þessara 104, en fimmtíu lík fundust fljót- andi í hafinu strax eftir slysið. 228 manns voru um borð í vélinni þegar hún fórst og létust allir. Farið verður með líkin í líkhús í Frakklandi þar sem reynt verð- ur að bera kennsl á þau. Verið er að rannsaka flugrita vélarinnar og hefur komið í ljós að vélin hrapaði í þrjár og hálfa mínútu áður en hún skall í sjóinn. - þeb Reynt að bera kennsl á 104: Líkum náð úr vél Air France BRAK ÚR VÉLINNI Hér má sjá brasilíska sjóliða veiða upp brak úr Air France A330 í júní árið 2009. NORDICPHOTOS/AFP EVRÓPUMÁL Íslenska ríkið hefur greitt 4,2 milljarða króna í Þróun- arsjóð EFTA frá árinu 1994. Fram til ársins 2004 runnu pen- ingarnir til þróunarmála í Grikk- landi, Portúgal, á Írlandi og Spáni, en eftir austurstækkun ESB 2004 hafa fleiri ríki bæst í hópinn, svo sem Pólland og Rúmenía. Hæstar voru greiðslurnar árin 2009 og 2010, eða 2,3 milljarðar samtals. að því er fram kemur í svari utanríkisráðuneytis við fyrir spurn Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar þingmanns. - kóþ Framlög Íslands í Þróunarsjóð: 4,2 milljarðar til ESB-ríkja GRIKKLAND Þúsundir látinna Grikkja hafa fengið greiddan líf- eyri löngu eftir að þeir kvöddu jarðneskt líf, að því er atvinnu- málaráðherra Grikkja, Louka Katseli, greindi frá í gær. Að minnsta kosti 4.500 látnir opinberir starfsmenn höfðu fengið lífeyri upp á samtals 265 milljónir íslenskra króna á ári. Athuga á hversu margir þeirra 9.000 sem samkvæmt þjóðskrá eru yfir 100 ára aldri eru í raun á lífi, en manntali í Grikklandi er ábótavant. - ibs Þúsundir svindla í Grikklandi: Lífeyrir greidd- ur eftir andlát BJÖRGUN Björgunarskipið Vörður var ásamt björgunarsveitum frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal kallað út í gærmorgun til hjálpar báti sem var strandaður við Arnarstapa. Björgunarsveitarmenn nálguð- ust bátinn bæði frá sjó og landi en ganga þurfti sex kílómetra um brattar hlíðar til að komast að honum. Einn maður var um borð en hann var ómeiddur. Línu var komið í bátinn og hann dreginn af strandstað til hafnar. - mþl Björgunarsveitin kölluð út: Báti bjargað við Arnarstapa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.