Fréttablaðið - 10.06.2011, Blaðsíða 48
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR32
sport@frettabladid.is
KOLBEINN SIGÞÓRSSON lá í rúminu á hóteli íslenska liðsins í Álaborg í gær með 39 stiga hita, aðeins tveimur
dögum fyrir fyrsta leik Íslands á EM U-21 liða í Danmörku. Hann gat ekki æft með liðinu í gær og er tvísýnt hvort hann
nái leiknum gegn Hvíta-Rússlandi á morgun.
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
framkvæmdar
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin
framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106-
/2000 m.s.br.
Allt að 6.000 tonna laxeldi í sjókvíum í Reyðarfirði,
Fjarðabyggð.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á
heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulagsstofnun.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 11. júlí 2011.
Skipulagsstofnun
FÓTBOLTI Á morgun hefur Ísland
leik á EM U-21 landsliða í Dan-
mörku. Liðið mætir Hvíta-Rúss-
landi í Árósum, en strákarnir hafa
aðsetur í Álaborg þar sem hinir
tveir leikir Íslands í riðlakeppn-
inni fara fram.
Eins og kunnugt er gekk á ýmsu
á miðvikudaginn og þurftu strák-
arnir að leggja á sig langt ferða-
lag til að komast á leiðarenda. Þeir
voru því margir þreyttir í gær.
„Það hefði verið ágætt að fá
æfingu í morgun til að hrista
ferðaþreytuna af sér,“ sagði
Alfreð Finnbogason við Frétta-
blaðið, en hætta varð við æfingu
liðsins í gærmorgun vegna vatns-
elgs á æfingavellinum. Strákarn-
ir æfðu þó síðdegis, nema Kol-
beinn Sigþórsson sem er veikur.
Gylfi Þór Sigurðsson, sem veikt-
ist í fyrradag, gat þó tekið þátt í
æfingunni af fullum krafti.
Eyjólfur Sverrisson landsliðs-
þjálfari segir að liðið njóti þess
hversu vel leikmenn þekkist eftir
að hafa spilað saman síðan um
haustið 2009.
„Það þarf samt að fríska upp á
ýmislegt í okkar leik, bæði varn-
ar- og sóknarleikinn, og rifja upp
þær hlaupaleiðir sem leikmenn
eiga að nota. Það er afar mikil-
vægur þáttur í okkar leik. Við
viljum hafa þetta á hreinu svo að
leikmenn rói allir í sömu átt og séu
að spila sama leikinn.“ Hann segir
að liðið muni áfram gera það sem
gekk svo vel í undankeppninni.
„Við höfum farið vel á því að
spila eins og við höfum gert. Við
höfum spilað sóknarbolta og erum
ákveðnir fram á við. Það var orð-
inn félagsliðabragur á liðinu og
samspilið var að virka vel.“
Hann segir það sérstaklega eft-
irtektarvert hversu liðið og leik-
mennirnir hafi vaxið og dafnað
með hverjum leiknum í undan-
keppninni og fram til dagsins í
dag.
„Þegar ég hugsa til þess
hvernig strákarnir voru þegar
við spiluðum okkar fyrsta
leik í undankeppni finnst mér
breytingarnar ótrúlegar. Allir
leikmenn hafa stórbætt sig og eru
enn að vaxa, enda er liðið orðið
miklu öflugra. Þetta er það sem
yngri landsliðin eiga að ganga út
á og strákarnir sýndu í þessari
keppni hvað þeir hafa náð langt,“
sagði Eyjólfur, sem segist samt
alltaf hafa séð hvað bjó í liðinu.
„Þeir búa yfir mjög góðri tækni
og höfðu alla burði til að fara
langt, og gera enn. Ég sagði þeim
strax þá að þeir ættu að hafa trú á
eigin getu og þeir hafa sjálfir áttað
sig á því með tíð og tíma hversu
góðir þeir eru. Þeir hafa líka séð
að hlutirnir ganga upp þegar þeir
eru gerðir á réttan máta.“
Hann segist ekki hafa mikið
spáð í hina hliðina – mótlætið. „Ég
legg áherslu á það sem við getum
gert og hugsa ekki um annað.
Aðalmálið er að við vitum hvert
við ætlum og hvernig við ætlum
að spila. Það þarf að vera á hreinu
og svo sjáum við hvernig útkoman
verður.“
Þurfum allir að róa í sömu áttina
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur í mörg horn að líta fyrir fyrsta leik Íslands á EM U-21 landsliða á
morgun. Ýmislegt hefur gengið á fyrstu tvo dagana í Danmörku en strákarnir náðu loksins að æfa í gær.
ENGIN ÆFING Í GÆRMORGUN Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari, við æfingasvæðið
í Álaborg í gær. wFRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Þetta var erfitt ferða-
lag í gær og kannski eru menn
álíka þungir og Mihajlo Biber-
cic núna en menn verða flottir á
æfingu seinni partinn.“ Blaðamað-
ur brosti við þetta svar Alfreðs
Finnbogasonar sem gat sjálfur
ekki leynt glottinu sem færðist
yfir andlit hans. Greinilegt var að
Alfreð var þar með að fara eftir
settum reglum sektarsjóðs U-21
landsliðsins um að nefna ákveðna
menn á nöfn í viðtölum við okkur
fjölmiðlamenn í Álaborg í gær.
Eftir því sem fleiri viðmæl-
endur komu í viðtal komu hin
nöfnin fljótlega í ljós.
„Fyrsti leikurinn er mikilvægur
en auðvitað væri gaman að klína
honum upp í sammarann gegn
Dönum eins og Mihajlo Bibercic
gerði hérna í denn en við sjáum til
hvernig fer,“ sagði Skagamaður-
inn Arnór Smárason eftir að hann
var spurður hvort hann hlakkaði
til að leika gegn danska landslið-
inu, þar sem hann væri nú einu
sinni að spila með dönsku félags-
liði.
Svo var komið að Jóhanni Berg
sem fór ekkert sérstaklega fínar
leiðir að því að nefna sinn mann
á nafn. „Við höfum ekki áhyggjur
og erum bara Salih Heimir yfir
þessu.“
Þriðja nafnið sem átti að nefna
var Lúka Kostic, fyrrum þjálfari
U-21 landsliðsins. Haraldi Björns-
syni tókst meira að segja að gera
það og hafa nafn hans í eðlilegu
samhengi.
„Að þessu hefur maður verið
að vinna lengi. Við komumst ekki
svona langt þegar við vorum hjá
Luka [Kostic] en núna hefur allt
gengið upp,“ sagði Haraldur.
Fimmti og síðasti viðmælandi
minn klikkaði þó á þessu. Öllu
verra er að þarna var á ferð sjálf-
ur landsliðfyrirliðinn og einn aðal-
mannanna í sektarnefnd lands-
liðsins. Blaðamaður var vitaskuld
löngu búinn að átta sig á hvernig í
pottinn væri búið og benti Bjarna
á yfirsjónina. „Nei, ég trúi þessu
ekki,“ sagði fyrirliðinn þá og gróf
andlitið í lúkurnar.
Sektir eins og þessar eru þekkt-
ar í íþróttaliðum og menn eru
vitaskuld sektaðir fyrir annað
en framkomu í fjölmiðlum. En nú
verða ný nöfn eða önnur orð fund-
in fyrir okkur fjölmiðlamennina
og þessum þremur knattspyrnu-
hetjum fyrrum Júgóslavíu á
Íslandi þökkuð góð störf. - esá
Leikmenn U-21 landsliðsins verða að segja ákveðin orð í viðtölum til að sleppa við sektir:
Lúka Kostic, Salih Heimir og Mihajlo Bibercic
ALFREÐ FINNBOGASON Það er mjög
skemmtileg stemning í íslenska lands-
liðshópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Anton Brink
fjalla um EM
U21 í Danmörku
eirikur@frettabladid.is - anton@frettabladid
FÓTBOLTI Hvít-Rússar komu
til Árósa á miðvikudaginn en
þar munu þeir hafa aðsetur
meðan á mótinu stendur.
Hvít-Rússar hafa verið í
æfingabúðum í Þýskalandi, þar
sem þeir unnu 8-0 og 8-1 sigra á
áhugamannaliðum.
Georgi Kondratyev, þjálfari
Hvít-Rússa, segist þekkja
mótherja liðsins í riðlinum
vel. „Þeir eru orðnir eins og
ættingjar mínir því ég veit allt
um þá,“ sagði Kondratyev í
viðtali á UEFA-síðunni. Fyrsti
leikur Hvít-Rússa er einmitt á
móti Íslandi á morgun. - óój
Þjálfari Hvít-Rússa um Ísland:
Þeir eru eins og
ætttingjar mínir
GEORGI KONDRATYEV Með EM-bikarinn
þegar dregið var í riðla. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Billy Stark, þjálfari
U-21 landsliðs Skotlands, segir
íslenska landsliðið líklegast
til þess að koma á óvart á
Evrópumótinu í Danmörku.
„Á miðjunni og frammi standa
þeir jafnfætis hinum þjóðunum.
Markaskorun liðsins talar sínu
máli. Það er bara spurning
hvernig þeim gengur að verjast.“
Stark segir muna miklu að stór
hluti leikmannanna hafi reynslu
með A-landsliðinu. Það hafi gert
gæfumuninn þegar íslenska liðið
sigraði það skoska í umspilinu í
október síðastliðnum. - ktd
Þjálfari Skota um íslenska liðið:
Líklegir til að
koma á óvart
SLÓGU ÚT SKOTA Strákarnir fagna marki
gegn Skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI